Þriðjungur sjálfseignastofnana skilar ekki ársreikingum 20. maí 2010 07:53
Tæplega þriðjungur sjálfseignarstofnana sem lögum samkvæmt áttu að skila reikningum sínum fyrir árið 2008 til Ríkisendurskoðunar hefur ekki gert það.Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að samkvæmt lögum ber sjóðum og stofnunum sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá að senda ársreikninga sína til Ríkisendurskoðunar.Hér er um að ræða sjálfseignarstofnanir sem ekki stunda atvinnurekstur, einkum ýmsa styrktar- og minningarsjóði og góðgerðarstofnanir. Ríkisendurskoðun heldur skrá yfir þessa aðila og hefur eftirlit með því að ársreikningar þeirra skili sér. Hafi reikningur ekki borist í eitt ár eða hann reynst ófullkominn að einhverju leyti getur Ríkisendurskoðun vísað málinu til sýslumanns sem eftir atvikum getur falið lögreglu að rannsaka fjárreiður viðkomandi aðila.Í nýbirtu yfirliti Ríkisendurskoðunar kemur fram að í lok apríl sl. höfðu 486 aðilar af samtals 705 sem féllu undir fyrrnefnd lög árið 2008 skilað ársreikningum fyrir það ár. Tæplega þriðjungur eða 219 höfðu ekki skilað.Um miðjan mars sl. sendi Ríkisendurskoðun áskorun til vörslumanna 220 sjálfseignarstofnana sem ekki höfðu skilað reikningum sínum fyrir fleiri en eitt ár. Í lok apríl sl. hafði 121 af þeim skilað gögnum til stofnunarinnar en 99 ekki og hefur sýslumaðurinn á Sauðárkróki, sem annast framkvæmd laganna, mál a.m.k. einnar þeirra til skoðunar. Í samræmi við heimildir í lögum hyggst Ríkisendurskoðun, í samráði við sýslumann, beita sér fyrir því að sjálfseignarstofnanir sem ekki hafa neina starfsemi verði sameinaðar öðrum með skyld markmið eða lagðar niður.Heildareignir sjálfseignarstofnana sem skiluðu reikningum fyrir árið 2008 námu samtals 41,0 milljörðum kr. í árslok. Skuldir þeirra námu samtals 15,1 milljörðum kr. og var eigið fé því samtals 25,9 milljarðar kr. Heildartekjur námu samtals 10,7 milljörðum kr. en gjöld 11,7 milljörðum kr. Af þessum stofnunum höfðu 104 yfir 5,0 milljónir kr. í tekjur á árinu og 100 áttu meira en 30,0 milljónir kr. í eigin fé.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira