Viðskipti innlent

SI: Eitt atvinnuvegaráðuneyti er fagnaðarefni

Samtök iðnaðarins (SI) segir að sameining ráðuneyta sem sinna málefnum atvinnulífsins er fagnaðarefni og í samræmi við stefnu SI til margra ára. Ekki er þó sama hvernig er að verki staðið og þar skortir talsvert á af hálfu ríkisstjórnarinnar.

„Það er fagnaðarefni að loks skuli stjórnvöld ákveðin í að stokka upp stjórnarráðið og færa til nútímans" segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI í tilkynningu um málið

„Eitt atvinnuvegaráðuneyti hefur lengi verið á óskalista okkar. Má sem dæmi nefna stefnuskjal SI frá árinu 1998." Þar segir m.a: „Góð starfsskilyrði þarf til vaxtar og viðgangs alls atvinnulífs en til þess þarf jöfnuður að ríkja í starfsskilyrðum milli atvinnugreina. Þess vegna er nauðsynlegt að nema á brott öll ákvæði í lögum og aðgerðir stjórnvalda sem mismuna atvinnugreinum. Draga þarf úr hefðbundinni en úreltri aðgreiningu á þessu sviði, t.d með stofnun eins atvinnuvegaráðuneytis og að atvinnurekendur ættu aðild að einum heildarsamtökum."

„Það veldur okkur þess vegna vonbrigðum að ríkisstjórnin skuli kjósa að vinna hugmyndir að nýju atvinnuvegaráðuneyti annars vegar og nýju auðlinda- og umhverfisráðuneyti hins vegar án nokkurs samráðs eða samvinnu við atvinnulífið. Ekki kann það góðri lukku að stýra ef knýja á fram róttækar breytingar á öllu þessu kerfi, þ.m.t auðlindastýringu, rannsóknum og stoðkerfinu án þess að tala við þá sem málið varðar helst" segir Jón Steindór og bætir við „Ég skora á ríkisstjórnina að gera hér bragarbót áður en lengra er haldið og ná góðri lendingu. Þá mun ekki standa á stuðningi okkar við þetta mikilvæga mál."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×