Samkeppnishæfni Íslands talin í meðallagi 20. maí 2010 13:04 "
Þetta styrkir okkur í trúnni um hvar við þurfum helst að bæta okkur á næstu árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um nýja skýrslu svissneska háskólans Institute for Management Development um samkeppnishæfni þjóða. Samkeppnishæfni Íslands er talin í meðallagi í hópi vestrænna ríkja í skýrslunni. Helstu verkefni íslensku þjóðarinnar á árinu 2010 eru að hraða umbótum í opinbera geiranum, endurskipuleggja hagkerfið og örva það, draga erlenda fjárfestingu inn í landið og endurreisa trúverðugleika landsins út á við ef marka má skýrsluna. Skýrslan tók til 58 landa um allan heim og var kynnt á blaðamannafundi í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í morgun. Skýrslan er byggð á yfir 300 hagvísum auk könnunar meðal stjórnenda í atvinnulífinu og tekur til efnahagslegrar frammistöðu, samfélagslegra innviða, skilvirkni stjórnvalda og skilvirkni atvinnulífsins. Heilt á litið er samkeppnishæfni Íslands talin í meðallagi miðað við önnur lönd sem skýrslan tók til, en landið er metið í 30. sæti. Singapúr þykir samkeppnishæfasta landið, en Singapúr var í þriðja sæti skýrslunnar í fyrra. Þar á eftir koma Hong Kong og Bandaríkin. Sé litið til einstakra þátta kemur Ísland best út úr mælingum á samfélagslegum innviðum en þar er landið metið í 9 sæti. Útlitið er ekki jafnbjart þegar kemur að efnahagslegri framistöðu, en þar er landið metið í 51. sæti. Í skýrslunni kemur fram að það muni taka Ísland meira en tuttugu ár að ná skuldum hins opinbera niður á viðráðanlegt stig, eða undir 60%. Ísland er þar í hópi þjóða á borð við Ítalíu, Portúgal, Belgíu, Bandaríkin og Grikkland. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra gerir reyndar athugasemd við að horft sé til vergra skulda ríkisins, en ekki hreinna skulda, en þá sé myndin skárri.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira