Áratugalangt starf í hættu Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. maí 2010 19:53 Eigendur Vörumerkingar sjá á eftir áratugalöngu starfi hjá fyrirtækinu verði ekkert að gert.
Stjórnendur Vörumerkingar sjá fram á að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta eftir 48 ár í rekstri sömu aðila. Ástæðan er gengishrun krónunnar, verðbólga og himinháir vextir, sagði Karl M. Karlsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Sagt var frá því í vikunni að Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár, hefði kvatt starfsfólk sitt eftir áratuga starf hjá fyrirtækinu. Héraðsdómur væri búinn að taka fyrir beiðni um gjaldþrotaskipti fyrirtækisins. Vilhjálmur sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að ævistarfið væri fyrir bí. Að óbreyttu munu stjórnendur fyrirtækisins Vörumerking standa í sömu sporum og Víglundur innan fárra vikna. „Það má segja að við höfum farið i ákveðna stefnumótun í kringum 2000 og lögðum línurnar fyrir næstu ár i uppbyggingu á félaginu," sagði Karl M. Karlsson framkvæmdastjóri. Þetta hefði þýtt endurnýjun á tækjakosti og öðru slíku sem lítur að rekstri. „Það sem hvílir á nýjum vélum hefur hækkað um 110% frá árslokum 2007 til ársloka 2009," sagði Karl. Fyrirtækið réði einfaldlega ekki við slíkar hækkanir. Karl segist enn vera að tala við Lýsingu, sem er fjármögnunarfélag sem Vörumerking hefur átt viðskipti við og jafnframt Landsbankann, en eins og málin standi núna sé útlitið svart. Hann gagnrýnir það jafnframt að þrátt fyrir að beðið sé hæstaréttardóms um það hvort gengistryggð lán hafi verið lögleg sé þegar byrjað að setja félög í þrot. Hann segir að Vörumerking sé í góðum rekstri og njóti góðs af því að Íslendingar hafi, eftir hrun, sótt í meira mæli í íslenska framleiðslu. Skuldastaðan sé hins vegar slæm af fyrrgreindum ástæðum.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira