Fleiri fréttir

Háir vextir og óvissa hamla fjárfestingum

Rúmlega sex af hverjum tíu (62%) forsvarsmanna aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) telja að umtalsverð lækkun stýrivaxta og samsvarandi lækkun útlánsvaxta banka myndi hvetja fyrirtæki þeirra til fjárfestinga.

SA: Störfum gæti fækkað um 1.500 á almennum markaði

Helmingur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggst ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á þessu ári en fjórðungur hyggst fjölga starfsmönnum og sama hlutfall fækka þeim. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar SA meðal aðildarfyrirtækja. Niðurstaðan bendir til þess að störfum á almennum vinnumarkaði fækki um rúmlega 1.500 á árinu.

Áfengissalan jókst um 14,4% milli ára í mars

Sala áfengis jókst um 14,4% í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 35,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu áfengis í mars 0,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 18,7% hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.

Atvinnuleysið í mars meira en á sama tíma í fyrra

Skráð atvinnuleysi í mars var 9,3% eða að meðaltali 15.059 manns og breytist atvinnuleysi lítið frá febrúar, fjölgar um 33 manns að meðaltali. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysi 8,9% eða 14.546 að meðaltali.

Spennandi hvort gjaldeyrishöftin verða afnumin

Spennandi verður hvort dragi til einhverra tíðinda varðandi afnám gjaldeyrishafta í kjölfar annarrar endurskoðunar efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda, en endurskoðunin er á dagskrá sjóðsins á morgun.

Skuldatryggingaálag rikissjóðs stöðugt í 380 punktum

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hefur lækkað nokkuð á undanförnum vikum og nú í morgun stóð álagið til 5 ára í 380 punktum (3,82%). Jafnframt hafa sveiflurnar verið mun minni síðustu daga en oft áður, auk þess sem gildi þess hefur haldist í kringum 380 punkta nokkra daga í röð en það hefur ekki gerst síðan í nóvember á síðasta ári.

OR og Mitsubishi í samstarf á heimsvísu

Fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Mitsubishi Heavy Industries (MHI) undirrituðu í dag í sendiráði Íslands í Tókýó viljayfirlýsingu um samstarf fyrirtækjanna tveggja við jarðhitanýtingu á heimsvísu og innleiðingu visthæfra orkugjafa í samgöngum hér á landi.

Virði Icelandair á bilinu 16 til 25 milljarðar í nýju verðmati

Þýskur banki verðmetur virði eigin fjár Icelandair Group á bilinu 16,4 til 25,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar. Áréttað er að verðmatið tekur ekki til hlutabréfa Icelandair Group sem skráð eru í Kauphöll Íslands og fjárfestar ættu ekki að nýta verðmatið sem grundvöll fyrir fjárfestingarákvörðun.

Markaðurinn telur að yfir 100% af Icesave endurheimtist

Alþjóðamarkaðurinn með skuldabréf virðist telja að endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans mun nema töluvert meir en sem nemur Icesave-skuldinni. Skuldabréf í Landsbankanum halda áfram að hækka og er gengi þeirra nú komið í 11, það er markaðurinn telur að 11% muni fást upp í kröfur á hendur þrotabúinu.

Nýskráningar bíla jukust um 114% milli ára í mars

Töluverð aukin var í nýskráningum fólksbíla í mars. Í nýliðnum mánuði voru nýskráðir 156 nýir fólksbílar á móti 73 stk. í sama mánuði árið 2009 sem gerir liðlega 114% aukningu milli ára.

Innlendar matvörur hafa hækkað um 35,6% frá ársbyrjun 2007

Innlendar matvörur, utan búvara og grænmetis, hafa hækkað um 35,6% frá ársbyrjun 2007 en innfluttar matvörur hafa hækkað um 62,8% á sama tíma. Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur vísitala neysluverðs hækkað frá ársbyrjun 2007 til mars 2010 um 35,3%.

LV lækkar lífeyrisgreiðslur um 10% frá júlí

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hefur ákveðið að leggja til við aðildarsamtök sjóðsins að lækka greiðslur til lífeyrisþega um 10% frá og með 1. júlí 2010 og að áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga verði lækkuð um 10% frá 1. janúar 2010. Þessi ráðstöfun er bein afleiðing yfirstandandi fjármálakreppu sem því miður hefur komið niður á ávöxtun eigna sjóðsins.

Tap hagkerfisins sagt gífurlegt

Bankarnir tóku ekki að fullu tillit til gjaldeyrisáhættu vegna lána í erlendri mynt, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Kaupþingsmenn vildu „taka út pening strax“

Ráðabrugg lykilstjórnenda Kaupþings banka um lántöku út á hækkandi hlutabréfaverð lýsir þeirri fyrirætlun stjórnendanna að auðgast með því að taka "út peninginn strax," svo vitnað sé orðrétt í tölvupóst sem birtur er í rannsóknarskýrslu Alþingis.

Hagnaður Íslandsbanka nam 24 milljörðum króna

Hagnaður Íslandsbanka á síðasta ári nam 23,9 milljörðum króna og er tekjuskattur ársins áætlaður 4,7 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall bankans nam 19,8%. Arðsemi eiginfjár var 30% en enginn arður verður greiddur til eigenda bankans, eftir því sem fram kemur í afkomutilkynningu frá bankanum.

Exista hagnaðist um 90 milljarða á gjaldeyrisviðskiptum

Rannsóknarnefnd Alþingis metur hagnað Exista af gjaldeyrisviðskiptunum við Kaupþing upp á tæpa 90 milljarða íslenskra króna á á árunum 2007 og 2008. Eins og kunnugt er var Exista stærsti eigandi Kaupþings á þessu tímabili en samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar átti félagið í gífurlegum gjaldeyrisviðskiptum við Kaupþing fram að hruninu um haustið 2008.

Skilanefnd Kaupþings hefur skoðað öll málin í skýrslunni

Í kjölfar birtingar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa skilanefnd Kaupþings og starfsmenn hennar farið yfir og greint þær upplýsingar úr skýrslunni er snúa að Kaupþingi og metið hvort allt sem þykir athugavert við starfsemi Kaupþings í skýrslunni hafi verið skoðað af skilanefnd. Niðurstaðan er sú að öll mál sem tengjast Kaupþingi og tekin eru fyrir í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hafa verið í athugun hjá skilanefnd Kaupþings.

Hlutabréf Century Aluminum hækkuðu um 2,66 prósent

Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, hækkaði um 2,66 prósent í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa eitt prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,53 prósent.

CNN semur við Mílu um að sýna frá gosinu

Forsvarsmenn fréttastofu CNN höfðu samband við Mílu í dag, þar sem farið var á leit við fyrirtækið að fá aðgengi að vefmyndavélunum til að geta sýnt beint frá gosstöðvunum á Íslandi á fréttavef CNN. Það leyfi var veitt og er nú myndavélin sem staðsett er á Valahnúk aðgengileg á fréttavef CNN.

Lítilsháttar lækkun á GBI skuldabréfavísitölunni

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 10 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 0,8 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 9,2 milljarða kr. viðskiptum.

Hagnaður Garðabæjar nam 432 milljónum í fyrra

Rekstrarniðurstaða Garðabæjar, samkvæmt ársreikningi A og B hluta, var jákvæð um 432,4 milljónir kr., þar af var rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 395,9 milljónir kr.

Verðmætasköpun á Íslandi um sex milljarðar á dag

Á hverjum virkum degi eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex milljarða króna. Fyrirtæki í Samtökum atvinnulífsins (SA) gegna mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000 fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi.

Ríkissjóður fékk bestu vaxtakjör frá júní í fyrra

Ríkissjóður má vel una við niðurstöðuna í ríkisvíxlaútboðinu sem haldið var í gærdag. Umframeftirspurn hefur ekki verið jafn mikil síðan í nóvember á síðasta ári og vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú eru þau bestu frá júní í fyrra.

Útlán ÍLS minnka um 2,6 milljarða milli ára

Samtals námu útlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) á fyrsta ársfjórðungi 2010 um 6,8 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi 2009. Lánin minnka því um 2,6 milljarða kr. milli ára.

Endurskipulagningu Smáralindar er lokið

Rétt í þessu fékkst staðfesting á frágangi lánssamnings milli Eignarhaldsfélagsins Smáralind ehf. og Norræna fjárfestingabankans og er endurfjármögnun félagsins þar með lokið, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Selja á félagið á þessu ári.

Heildaraflinn minnkaði um 21,5% milli ára í mars

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 21,5% minni en í mars 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14.2% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Dæmdur Rússi meðal stóreigenda Kaupþings

Alisher Usmanov, rússneskur auðmaður og fyrrum fangi með skrautlega fortíð, er sagður hafa átt 1,48% í Kaupþingi þegar bankinn féll haustið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en þar er greint frá því að Usmanov hafi verið á lista yfir þá 20 stærstu skuldarana í íslensku bönkunum þegar þeir féllu.

Baugur hafði tangarhald á bönkunum

"Varla þarf að ræða það að Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Guðmundsson og Bakkabræðurnir réðu ekki við eignarhald á bönkunum. Sjálfir voru þeir í fararbroddi við hömlulausa þenslu útlána sem felldu bankana.“

Gervimenn fengu 5,5 milljarða arð

Gervimaður í útlöndum virðist aðsópsmikill eignamaður í íslensku viðskiptalífi, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

World Class hótar lögsókn vegna skoðanakönnunnar

Lögmaður World Class hefur hótað forráðamönnum MMR lögsókn vegna skoðanakönnunnar Þar sem almenningur var m.a. spurður um viðhorf sín til World Class. Í bréfi lögmannsins, Sigurðar G. Guðjónssonar hrl. segir m.a. að MMR virðist ganga út frá að eigendur World Class hafi fengið skuldir afskrifaðar sem er ekki rétt.

Aðhald ríkisins var of lítið í uppsveiflunni

Þótt töluvert hafi dregið úr skuldum ríkissjóðs á árunum 1995 til 2005 í hlutfalli við verga landsframleiðslu þá lækkuðu þær ekki mikið að nafnvirði. Árið 1998 voru heildarskuldir ríkissjóðs 381 milljarður krónur en 2001 höfðu þær aukist í 491 milljarð krónur. Þetta er meðal annars það sem kemur fram í sjöunda bindi rannsóknarskýrslunnar og snýr að hagstjórn ríkisstjórnarinnar frá 1995 til 2005.

Kaupþing sýslaði grimmt með gjaldeyrinn rétt fyrir hrun

Á þriggja mánaða tímabili, ári fyrir hrunið, keyptu fimm fyrirtæki alls 1,4 milljarða evra í framvirkum samningum af Kaupþingi. Rannsóknarnefnd Alþingis telur að þessi gjaldeyrisviðskipti kunni að falla undir markaðsmisnotkun og hefur vísað málinu til sérstaks saksóknara.

Greiddu tveimur endurskoðendafyrirtækjum 4,5 milljarð

Rannsóknarnefndin telur að sérstakur saksóknari þurfi að rannsaka hvort endurskoðendur hafi brotið starfsskyldur sínar með því að skrifa undir ársreikninga sem ekki gáfu rétta mynd af félögunum sem þeir endurskoðuðu. Vanhöld eru talin vera á ársreikningunum, m.a. hafi eiginfjárhlutföll bankanna ekki endurspeglað raunverulegan styrk þeirra.

Gamma hækkaði um 0,3% í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 21,3 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,4% í 10,1 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 11,2 milljarða viðskiptum.

Alfa verðbréf fá starfsleyfi hjá FME

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Alfa verðbréfum hf. í Reykjavík, starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki, samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Skuldabréf VBS tekin úr viðskiptum

Kauphöllin hefur ákveðið að taka skuldabréf VBS fjárfestingarbanka hf. úr viðskiptum þar sem héraðsdómur hefur úrskurðaði að bankinn skuli tekinn til slitameðferðar, sbr. tilkynningu félagsins dags. 9. apríl 2010.

Peningamarkaðslán voru eins og opnir víxlar

Lilja Steinþórsdóttir, innri endurskoðanda Kaupþings, segir að peningamarkaðslán hafi verið eins og opnir víxlar, engar tryggingar og ekki neitt á bak við þau. Þetta kemur fram í skýrslu Lilju fyrir rannsóknarnefnd Alþingis.

Um 39% heimila skulda meira en þau eiga

Hlutfall heimila sem skuldar meira en það á í húsnæði hefur aukist gríðarlega frá ársbyrjun 2008. Þannig var þetta hlutfall 11% í janúar 2008 og var komið upp í 20% um það leyti sem bankahrunið átti sér stað og um þessar mundir er það líklega komið upp í 39%.

FME átti að skipta sér af Icesave í Amsterdam

Rannsóknarnefnd Alþingis gagnrýnir að Fjármálaeftirlitið (FME) hafi ekki haft afskipti að Landsbankanum í Amsterdam vegna Icesave reikninga þrátt fyrir skýr hættumerki. Þær staðreyndir að gjaldeyrismarkaður var að lokast og aðgangur bankans að evrum var takmarkaðri vorið 2008 hefði átt að gefa Fjármáleftirlitinu nægt tilefni til að blanda sér í málið.

Sjá næstu 50 fréttir