Viðskipti innlent

FME átti að skipta sér af Icesave í Amsterdam

Helga Arnardóttir skrifar
Jónas Fr. Jónsson þáverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins sagði í skýrslu til rannsóknarnefndarinnar að FME hefði ekki getað samkvæmt lögum lagt bann við stofnun útibús nema stofnunin hefði réttmæta ástæðu til.
Jónas Fr. Jónsson þáverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins sagði í skýrslu til rannsóknarnefndarinnar að FME hefði ekki getað samkvæmt lögum lagt bann við stofnun útibús nema stofnunin hefði réttmæta ástæðu til.
Rannsóknarnefnd Alþingis gagnrýnir að Fjármálaeftirlitið (FME) hafi ekki haft afskipti að Landsbankanum í Amsterdam vegna Icesave reikninga þrátt fyrir skýr hættumerki. Þær staðreyndir að gjaldeyrismarkaður var að lokast og aðgangur bankans að evrum var takmarkaðri vorið 2008 hefði átt að gefa Fjármáleftirlitinu nægt tilefni til að blanda sér í málið.

Landsbankinn byrjaði að taka við innlánum á Icesave reikninga í Amsterdam í lok maí 2008. Bankinn hafði þá fengið töluverða gagnrýni breskra fjölmiðla um íslenska banka og efnahags. Einkum var gagnrýnt hátt skuldatryggingarálag bankanna og efasemdir um að Seðlabanki og ríkissjóður gætu komið íslensku bönkunum til bjargar lentu þeir í lausafjárerfiðleikum.

Ræddar voru efasemdir um getu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi til að mæta áföllum í rekstri bankanna. Þá var rætt um skort á erlendum gjaldeyri til að mæta skyndilegum útgreiðslum af innlánsreikningum erlendis.

Jónas Fr. Jónsson þáverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins sagði í skýrslu til rannsóknarnefndarinnar að FME hefði ekki getað samkvæmt lögum lagt bann við stofnun útibús nema stofnunin hefði réttmæta ástæðu til.

Staða Landsbankans hefði verið sterk, hann hefði haft lánshæfiseinkunnina AAA og eiginfjárhlutfall hans verið 12,5%

Í skýrslu Guðmundar Jónssonar, sviðsstjóra hjá FME kom fram að bankinn hefði ætlað að afla evra á gjaldeyrisskiptamarkaði til að greiða úttektir af innlánsreikningum í útibúi Landsbankans í Amsterdam.

Rannsóknarnefndin bendir hins vegar á að gjaldeyrisskiptamarkaður með íslenskar krónur hafði á köflum verið nær óvirkur frá 19. mars 2008. Ekki taldi FME tilefni til að bregðast við því þrátt fyrir að um verulega hættu hafi verið að ræða fyrir LAndsbankann.

Nefndin gagnrýnir að eftiriltið hafi ekki brugðist við og segir að nægt tilefni hefði verið til þess að taka málefni útibúsins sérstaklega þegar aðgangur bankans að evrum hafði takmarkast við lokun gjaldeyrismarkaðar.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×