Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gott fólk: Allt önnur lögmál og jafnvel harðari í pólitík miðað við annars staðar Gott fólk með Guðrúnu Högna eru nýir hlaðvarpsþættir í umsjón Guðrúnar Högnadóttur framkvæmdastjóra Franklin Covey. 7.2.2023 13:01
Innkalla MUNA hampolíu vegna of mikils THC Icepharma hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á framleiðslulotu af MUNA hampolíu vegna of hás innihalds af THC (tetrahydrocannabinol). Ráðist er í innköllunina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. 7.2.2023 12:34
Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun. 7.2.2023 11:54
Vegagerðin býður út styrkingu Þrengslavegar Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í styrkingu Þrengslavegar á kaflanum milli Lambafells og Litla-Sandfells. Verkinu á að ljúka fyrir lok sumars. 7.2.2023 10:51
Þrýstu á tollalækkanir á fundi með Bjarna Fulltrúar þriggja stéttarfélaga og Félags atvinnurekenda funduðu í gær með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra þar sem tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda voru til umræðu. 7.2.2023 10:00
Sölumet slegið hjá Play í janúar Sölumet var slegið hjá Play í janúarmánuði og var bókunarstaðan mjög sterk. Flugfélagið flutti 61.798 farþega í janúar með 76,8 prósent sætanýtingu. Mest var nýtingin í flugi til Tenerife og Parísar, í kringum níutíu prósent. 7.2.2023 09:14
Ómar nýr framkvæmdastjóri hjá Digido Ómar Þór Ómarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri vaxtar hjá markaðsstofunni Digido. Hlutverk hans verður að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að vaxa á alþjóðavísu. 7.2.2023 08:53
Öðru sinni dæmdur fyrir stórfelld skattalagabrot á innan við ári Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt framkvæmdastjóra og einn eiganda verktakafyrirtækis í tólf mánaða fangelsi og greiðslu um 207 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattalagabrot. 7.2.2023 07:47
„Allt í þessum drykk er bara drasl“ Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna. 6.2.2023 14:01
Nýr hótelstjóri á Hótel Selfossi í kjölfar eigendaskipta Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss. 6.2.2023 11:04
Aðalheiður Anna og Flóvent sigruðu fyrsta mót meistaradeildar Líflands 2023 Fyrsta mót Meistaradeildar Líflands var haldið síðastliðinn fimmtudag í glæsilegri aðstöðu HorseDay hallarinnar á Ingólfshvoli. Keppt var í fjórgangi og var eftirvæntingin mikil að tímabilið myndi hefjast á ný. 6.2.2023 10:05
Hjón í nýsköpun: Hugmyndin kom óvart í feðraorlofi í Barcelona „Fyrstu mánuðina okkar í Barcelona var ég í feðraorlofi og að læra spænsku eftir að hafa flutt fra Danmörku. Ég hafði útbúið gagnagrunn í Excel um fýsileika vindmylluverkefna og velti fyrir mér hvort ég gæti selt þetta sem vöru en áttaði mig þó á því að ég myndi fljótt gera mig atvinnulausan sem ráðgjafi ef ég seldi grunninn frá mér,“ segir Edvald Edvaldsson um aðdragandann að því að nýsköpunarfyrirtækið Youwind Renewables varð til. 6.2.2023 07:01
Gervigreind framleiddi heila auglýsingaherferð Advania Ný auglýsingaherferð Advania var gerð af gervigreind. Allt ferlið tók einungis fjóra daga og er meira að segja rödd herferðarinnar gervigreind. Kostnaður við gerð auglýsinganna var aðeins brota brot af því sem slík herferð hefði annars kostað. 5.2.2023 12:26
Morgunrútínan að breytast fljótlega og rokkið umfram diskó Það má búast við að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi hafi í nægu að snúast næstu vikurnar því í gær var tilkynnt um það að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefði ráðið hann sem forstjóra frá og með 1. apríl næstkomandi og eins eru tvö barnabörn á leiðinni. Dóttir hans sem á von á barni býr enn heima. 4.2.2023 10:01
Jóhanna Margrét til Play Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur verið ráðin sem yfirmaður viðskiptaþróunar hjá flugfélaginu Play. 4.2.2023 09:29
Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018. 3.2.2023 23:25
Davíð Lúther segir skilið við Sahara Davíð Lúther Sigurðarson, einn stofnenda og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Sahara, er hættur störfum. Hann greinir frá tímamótunum á Facebook. 3.2.2023 17:49
N4 ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á samfélagsmiðlum sjónvarpsstöðvarinnar. 3.2.2023 16:50
244 blaðberum Póstdreifingar var sagt upp Póstdreifingar sagði upp 244 blaðberum í síðasta mánuði. Allir voru þeir í hlutastarfi og sinntu útburði á dagblöðum. Flestum verður þó boðið aftur starf. 3.2.2023 14:35
261 sagt upp í hópuppsögnum í janúar Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar þar sem 261 starfsmanni var sagt upp störfum. 3.2.2023 13:18
Sýknuð í deilu um átján ára millifærslu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Birki Kristinsson, fjárfesti og fyrrverandi landsliðsmann í knattspyrnu, Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis og auk fleiri, í deilu um átján ára millifærslu á hátt í fimmtíu milljónum. 3.2.2023 12:06
Valur Hrafn ráðinn tæknistjóri hjá Stokki Valur Hrafn Einarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri (CTO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Stokki Software. Valur hefur víðtæka reynslu úr tæknigeiranum og hefur frá árinu 2018 stýrt vefþróunardeild Sýnar. 3.2.2023 11:04
Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar. 3.2.2023 10:54
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri Forlagsins segja upp Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Forlagið, og Þórhildur Garðarsdóttir, fjármálastjóri Forlagsins, hafa sagt störfum sínum lausum. Þau hafa starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun fyrirtækisins árið 2007. 3.2.2023 10:23
Úr bæjarstjórastól í forstjórastól OR Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ráðið Sævar Frey Þráinsson, bæjarstjóra á Akranesi, í starf forstjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1. apríl næstkomandi. 3.2.2023 10:13
Jóhanna og Maggý til Svars Jóhanna María Leifsdóttir og Maggý Möller hafa verið ráðnar til tæknifyrirtækisins Svars. Jóhanna kemur til með að starfa sem bókari og Maggý sem verkefnastýra. 3.2.2023 08:50
Fólk farið að nota OpenAl gervigreindina í samtalsmeðferðum Á dögunum sagði Stöð 2 frá því að fyrir forvitnissakir hefði gervigreind verið notuð til að semja stutta kynningu fyrir Ísland í dag. Vísað var í forritið ChatGPT á vegum fyrirtækisins OpenAI sem á síðastliðnum vikum hefur vægast sagt verið að slá í gegn víðs vegar um heiminn. 3.2.2023 07:00
Áhrif óveðurs í desember á Icelandair metin á milljarð Áhrif slæms veðurs í desember síðastliðnum eru talin hafa haft áhrif á rekstur Icelandair upp á um einn milljarð króna. Þar vegur lokun Reykjanesbrautarinnar þungt. Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri flugfélagsins. 2.2.2023 21:55
Yrði stærsti samruni sögunnar en óvissan er um Samkeppniseftirlitið Ritstjóri Innherja áætlar að samruni Íslandsbanka og Kviku yrði sá stærsti í Íslandssögunni, ef af honum yrði. Hann segir ljóst að Samkeppniseftirlitið muni taka langan tíma í meðferð málsins. Það muni gera athugasemdir við ákveðna samrunans. 2.2.2023 20:37
Fimmtán ára gamall sími á sjö milljónir Fyrsti iPhone síminn kom út í júní árið 2007 og seldist í sex milljónum eintaka. Eitt þessara eintaka er nú til sölu á uppboði hjá bandaríska uppboðshúsinu LCG Auctions. Búist er við því að síminn seljist á yfir 50 þúsund dollara, eða rétt rúmlega sjö milljónir í íslenskum krónum. 2.2.2023 16:56
Hugmyndirnar sem keppa í úrslitum Gulleggsins í ár Tíu teymi hafa verið valin til að taka þátt í lokakeppninni um Gulleggið 2023. Keppnin fer fram þann 10. febrúar næstkomandi í Grósku og verður sýnt frá henni í beinni útsendingu hér á Vísi. 2.2.2023 16:28
Nánast öllu starfsfólki Cyren sagt upp Nánast öllu starfsfólki tölvuöryggisfyrirtækisins Cyren hefur verið sagt upp, þar af þrjátíu starfsmönnum á Íslandi. Móðurfyrirtækið stendur á barmi gjaldþrots þrátt fyrir að rekstur íslensku deildarinnar hafi gengið vel. 2.2.2023 15:04
Sautján milljarða hagnaður Landsbankans á krefjandi ári Landsbankinn hagnaðist um sautján milljarða á síðasta ári. Bankaráð bankans hyggst leggja til að greiddur verði 8,5 milljarðar í arð til eigenda bankans vegna reksturs síðasta árs. Bankastjóri bankans segir árið hafa verið krefjandi. 2.2.2023 13:56
Lestur Fréttablaðsins hrynur Lestur Fréttablaðsins hefur minnkað um nærri helming, eftir að ákveðið var að hætta að dreifa blaðinu á heimili fólks. 2.2.2023 13:29
700 hæfileikaríkir knattspyrnudrengir glöddust saman á Ali mótinu Eitt stærsta vetrarmót hjá drengjum í fótbolta Ali mótið var haldið Fífunni um helgina, daganna 27-29. janúar 2023 á heimavelli Breiðabliks í Kópavogi. 2.2.2023 12:58
Ekki bara skortur á mat heldur færi allt of mikið í ruslið Forstjóri Innnes, eins stærsta heildsalans á höfuðborgarsvæðinu, segir að verði úr verkföllum Eflingar hjá Samskipum og Olíudreifingu geti heildsalinn aðeins haldið úti starfsemi í nokkra daga. 2.2.2023 11:15
Allt það helsta frá kynningu Samsung Samsung frumsýndi nýjar vörur í gær sem munu koma í verslanir á næstu vikum. Sýndir voru þrír nýir símar og nýjar fartölvur. 2.2.2023 10:43
Spá elleftu hækkuninni í röð Hagfræðingar Landsbankans spá því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti um 0,5 prósentur í næstu viku. Gangi þessi spá eftir verður það ellefta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. 2.2.2023 10:31
Ástralar vilja ekki borga með Karli Karl III konungur verður ekki á nýjum fimm dollara seðli Ástrala. Verið er að endurhanna seðilinn og verður móðir hans, Elísabet II, fjarlægð af seðlinum. Í staðinn verður seðillinn til heiðurs innfæddum Áströlum. 2.2.2023 09:03
Telur skuggalegt að greinargerð sín um Lindarhvol sé ekki lögð fram Sigurður Þórðarson fyrrverandi ríkisendurskoðandi furðar sig á því hvers vegna greinargerð um Lindarhvol sem hann skilaði Alþingi árið 2018 sé ekki gerð opinber. Hann veltir fyrir sér tilgangi Alþingis sem sýnir slíkan mótþróa. 2.2.2023 07:01
„Það er geggjað að upplifa þessi Aha! móment stjórnenda“ „Við höldum á svo mörgum boltum á lofti alla daga. Ekki bara í vinnunni, heldur líka þegar að við komum heim. Þess vegna segjum við oft að það að fara til markþjálfa sé eins og að fara úr storminum í lognið,“ segir Anna María Þorvaldsdóttir stjórnendaþjálfi hjá Víðsýni. 2.2.2023 07:01
Fjórðungur jarðarbúa daglega á Facebook Fjöldi daglegra notenda samfélagsmiðilsins Facebook nam tveimur milljörðum í desember síðastliðnum. Það er um fjórðungur allra jarðarbúa. 1.2.2023 23:39
Biðja pizzuóða Mosfellinga afsökunar og læra af mistökunum Nokkrir hnökrar voru á opnun nýs útibús pizzukeðjunnar Pizzunnar í Mosfellsbæ í liðnum mánuði. Eftir að villa kom upp í tölvukerfi keðjunnar sá framkvæmdastóri hjá fyrirtækinu sig knúinn til að biðja Mosfellinga afsökunar. Hann segir eftirspurn eftir pizzum greinilega mikla í bænum og er bjartsýnn á framhaldið. 1.2.2023 21:41
Stjörnu-Sævar til KPMG Fyrirtækið KPMG hefur ráðið til sín fjóra sérfræðinga, þau Bryndísi Gunnlaugsdóttur, Guido Picus, Sævar Helga Bragason og Þorstein Guðbrandsson. Sérhæfa þau sig á fjölbreyttum sviðum og koma frá ólíkum geirum atvinnulífsins. 1.2.2023 14:12
Funduðu með ráðherra um afnám tolla á blómum, frönskum og fuglakjöti Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verslunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda funduðu með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í morgun, þar sem rætt var um tollamál. 1.2.2023 12:18