Viðskipti erlent

Allt það helsta frá kynningu Sam­sung

Bjarki Sigurðsson skrifar
Samsung Galaxy S23 Ultra síminn og Samsung Galaxy Book 3 Ultra.
Samsung Galaxy S23 Ultra síminn og Samsung Galaxy Book 3 Ultra. Samsung

Samsung frumsýndi nýjar vörur í gær sem munu koma í verslanir á næstu vikum. Sýndir voru þrír nýir símar og nýjar fartölvur. 

Frumsýningarviðburður Samsung, Samsung Unpacked, fór fram í gær en þar var ný lína síma fyrirtækisins sýnd, Samsung Galaxy S23. 

Samsung Galaxy S23 og Samsung Galaxy S23+

Galaxy S23 símarnir fá klassíska uppfærslu líkt og oftast þegar nýir símar eru gefnir út, það er að hann er með endingarmeiri rafhlöðu, betri skjá og svo framvegis. Þá eru símarnir með báðir með Snapdragon 8 Gen 2 flögur sem skila betri vinnslu, betri gervigreind og fleira. 

Samsung Galaxy S23 Ultra

Ultra útgáfa símans verður mun dýrari og með betri myndavélum sem hafa sést á farsímum. Myndavélin er 200 megapixla, tæplega tvöföldun frá myndavélinni á Galaxy S22 Ultra símanum. Til samanburðar er nýjast sími Apple, Iphone 14 Pro með 48 megapixla myndavél. Síminn er með pláss fyrir Samsung pennann og er einnig með sömu Snapdragon flögu og minni símarnir.

Samsung Galaxy Book 3 Ultra fartölva

Nýjasta tölva Samsung verður af dýrari gerðinni og mun kosta um 2.400 dollara, 340 þúsund íslenskar krónur. Skjárinn er sextán tommur og hægt er að bæta við ýmsum aukahlutum til að gera hana enn betri og dýrari. Þá voru sýndar tvær aðrar tölvur, Galaxy Book 3 Pro og Galaxy Book 3 Pro 360 en báðar eru ódýrari og minni en Ultra tölvan. 


Tengdar fréttir

Hagnaður Samsung ekki lægri í átta ár

Búist er við því að hagnaður suður kóreska tæknirisans Samsung hafi dregist verulega saman á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Samkvæmt nýtti stöðuuppfærslu frá Samsung er útlit fyrir að hagnaður fyrirtækisins hafi ekki verið lægri í átta ár en hann dróst saman um tvo þriðju á milli ára.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×