Fleiri fréttir

Aukið samstarf gæti skilað miklu

Mikil tækifæri eru falin í auknu samstarfi Bandaríkjanna og Íslands í þróun jarðhitanýtingar um heim allan. Þetta segir Jay Nathwani, yfirmaður jarðhitamála hjá Orkustofnun Bandaríkjanna. Markaðurinn hitti Nathwani fyrir þegar hann var hér á landi fyrir skemmstu.

Helmingaskipti ríkis og einkabanka

Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki eru samtals með tæplega helmingsmarkaðshlutdeild á útlánamarkaði. Ríkisstofnanir, lífeyrissjóðir og erlend fjármálafyrirtæki skipta með sér afganginum. Hlutur erlendra aðila, ef skuldir Actavis og Bakkavarar eru ekki taldar með, er tæplega fimmtungur. Þetta kemur fram í tölum um

Lífeyrisskuldbindingar hins opinbera jukust

Áfallnar lífeyrisskuldbindingar hins opinbera jukust um tæpa 20 milljarða króna í fyrra og voru 436 milljarðar króna um síðustu áramót. Þær hafa samtals aukist um 168 milljarða króna frá því í árslok 2007. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri fjármála hins opinbera, en undir þann hatt falla ríkissjóður og sveitarfélög landsins.

Almennir kröfuhafar fá 225 milljarða

Þrotabú Landsbankans reiknar með að geta greitt 225 milljarða króna til almennra kröfuhafa sinna. Alls nema eignir búsins 1.543 milljörðum króna og forgangskröfur, að mestu hin svokallaða Icesave-skuld, eru 1.318 milljarðar króna. Áætlaðar endurheimtur búsins jukust um 170 milljarða króna í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri samantekt á fjárhagsstöðu þrotabús Landsbankans, sem nú heitir LBI hf., en hún birt var fyrir helgi.

Benni og Bílabúð Benna dæmd í Héraðsdómi

Benedikt Eyjólfsson, sem oftast er kenndur við Bílabúð Benna, hefur verið dæmdur til að greiða ásamt fyrirtæki sínu 750 þúsund króna sekt ríkissjóð annars þarf Benedikt að sæta fangelsi í í 34 daga. Benedikt skilaði ekki ársreikningum til ársreikningaskrár fyrir árin 2006, 2007, 2008, 2009 og 2010.

Ákært í Ímon málinu

Eitt þeirra mála sem sérstakur saksóknari hefur ákært í og tengist Landsbankanum er svokallað Ímon mál, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í dag ákærði sérstakur saksóknari fyrrverandi stjórnendur og starfsmenn Landsbankans fyrir helgi vegna þriggja mála tengdum Landsbankanum en málin voru síðan sameinuð í eina ákæru.

CAOZ skapar 30 ný störf í teiknimyndagerð

Íslenska framleiðslufyrirtækið CAOZ gerði nýverið samning við norska fyrirtækið Animando um framleiðslu á 52 þáttum af teiknimyndaþáttunum um björgunarbátinn Elías.

Sigurður, Hreiðar Már og Ingólfur ákærðir í nýju máli

Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur Helgason og fleiri yfirmenn og starfsmenn Kaupþings hafa allir verið ákærðir í nýju markaðsmisnotkunarmáli sem á að hafa komið upp rétt fyrir hrun. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins í kvöld.

Ekki hægt að standa undir afborgunum lánanna

Afgangur af viðskiptajöfnuði nægir ekki til að standa undir afborgunum af erlendum lánum þjóðarbúsins. Endurfjármögnun hluta lánanna er því forsenda stöðugs gengis, segir í sérriti Seðlabanka Íslands sem ber titilinn Undirliggjandi erlend staða og greiðslujöfnuður.

Sérstakur saksóknari ákærir aftur vegna Kaupþings

Sérstakur saksóknari hefur gefið út tvær nýjar ákærur og snýr önnur þeirra að eigin viðskiptum Kaupþings fyrir bankahrunið 2008. Viðskiptablaðið segir að þarna sé um stór mál að ræða og sakborningar nokkrir í hvoru máli. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, varðist allra frétta þegar Vísir sló á þráðinn til hans í dag. Hann bar fyrir sig að ekki væri hægt að veita upplýsingar um ákæruefni fyrr en þremur sólarhringum eftir að ákæra hafi verið gefin út.

Leysa fyrst úr ágreiningi um bótaskyldu

Fyrirtaka í máli slitastjórnar Glitnis gegn fyrrum stjórnendum og eigendum Glitnis og Baugs fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Dómurinn féllst á kröfu stefndu um skiptingu sakarefnisins og að fyrst yrði flutt mál um bótaskyldu.

Staðan á Kýpur skelfir markaði

Staðan á Kýpur hefur valdið töluverðri skelfingu meðal fjárfesta víða um heiminn. Vísitölur á hlutabréfamörkuðum bæði í Asíu í nótt og Evrópu í morgun hafa lækkað töluvert.

Actavis tekur nýtt merki í notkun

Vegna sameiningar Watson í Bandaríkjunum og Actavis Group á Íslandi hefur Actavis tekið í notkun nýtt merki í nýjum lit. Nýja merkið byggist á gormlaga DNA-keðju, en út úr því má einnig lesa bókstafina W fyrir Watson og A fyrir Actavis.

Neyðarfundur á þingi Kýpur í dag

Neyðarfundur verður haldinn á þingi Kýpur í dag þar sem ræða á samkomulagið um neyðarlánið sem Kýpur hefur gert við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópubandalagið.

Bill Gates skammar sköllótta auðmenn

Bill Gates einn af stofnendum Microsoft og annar auðugasti maður í heimi notaði tækifærið nýlega til að húðskamma aðra auðmenn fyrir að leggja ekki nægilegt fé í lífsnauðsynlegar lyfjarannsóknir.

Rannsókn á Stím að ljúka

Rannsókn sérstaks saksóknara á Stím-málinu er á lokastigi og á henni að ljúka í næstu viku, samkvæmt heimildum. Þegar rannsókn lýkur fær saksóknari málið á sitt borð og tekur ákvörðun um saksókn eða niðurfellingu málsins.

Mestu vandræði í 30 ár

Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn krefjast þess að innistæðueigendum í Kýpur verði gert að greiða allt upp undir 10% skatt af innistæðum sínum. Þetta verði gert að skilyrði fyrir því að Evrópusambandið veiti ríkissjóð Kýpur fjárhagsaðstoð en miklir erfiðleikar steðja að rekstri ríkissjóðs þar í landi. Til stendur að Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti 10 milljarða evra, eða um 1600 milljarða króna, lán.

Gaf LEX tvær klukkustundir til þess að falla frá málarekstri

Lögmannsstofan LEX hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna bloggfærslu Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns sem hann birti í dag á vefsvæði Pressunnar og Vísir greindi frá, en þar kemur fram að hann hafi hótað að gera atlögu að orðspori lögmannstofunnar.

Kýpur fær neyðarlán

Fjármálaráðherrar Evruríkjanna og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa komist að samkomulagi um tíu milljarða evru neyðarlán til Kýpur. Láninu fylgja hinsvegar ýmsar kvaðir sem margir telja að muni leiða til áhlaups á banka eyjunnar.

Franz kaupir Friðbert út úr Heklu

Franz Jezorski, helmingseigandi Heklu hf., hefur keypt hlut Friðberts Friðbertssonar. Upphaflega stóð til að Friðbert myndi kaupa hlut Franz en í pósti sem Franz sendi starfsmönnum fyrirtækisins kemur fram að honum hafi mistekist að fjármagna kaupin. Þar kemur líka fram að Franz er búinn að tryggja fjármögnun á kaupunum.

Ekki hægt að afnema verðtryggingu afturvirkt

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að erfitt gæti verið að afnema verðtryggingu á þegar teknum lánum en flokkurinn hefur það sem eitt af aðalkosningamálum sínum að afnema verðtrygginguna. Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar sagði á Alþingi í morgun að Íslendingar þyrftu að læra af reynslunni og láta af séríslenskum lausnum eins og verðtryggingu. Hún hafi ekki skilað öðru en óförum í efnahagsmálum. Það væri fagnaðarefni að Framsóknarflokkurinn hefði tekið þetta mál upp með afgerandi hætti.

Bolabeljur unnu til verðlauna

Auglýsing Ölgerðarinnar á bjórnum Bola frá því um verslunarmannahelg hlaut verðlaun fyrir umhverfisgrafík á verðlaunaafhendingu Félags íslenskra teiknara sem fram fór á föstudag fyrir viku.

Nýr framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands

Margrét Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands. Í tilkynningu frá félaginu segir að Margrét hafi áralanga reynslu af störfum á sviði ferðamála og sé fyrsta konan til þess að gegna starfinu.

Viðræður við kröfuhafa fyrir kosningar

Stjórnvöld eru reiðubúin til þess að hefja viðræður við kröfuhafa föllnu bankanna um nauðarsamningana. Viðræðurnar munu að öllum líkindum hefjast fyrir kosningar, segir Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra í samtali við Bloomberg fréttastofuna. Þingið ákvað í síðustu viku að gjaldeyrishöftin, sem sett voru á þegar bankakerfið hrundi, yrðu ótímabundin en áður hafði verið ákveðið að afnema þau á þessu ári. Áður hefur komið fram að samningar um uppgjör þrotabúa bankanna væru mikilvæg forsenda þess að hægt væri að afnema þau.

Aflinn mun minni en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa í febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 13,7% minni en í febrúar í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 11,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Aflinn nam alls rúmum 234 þúsund tonnum í febrúar samanborið við 312 þúsund tonn í febrúar í fyrra.

Gera ráð fyrir 800 íbúðum í Skerjafirði

Samningar hafa tekist á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um kaup á landi ríkisins í Skerjafirði. Í samningnum felst að Reykjavíkurborg kaupir land ríkisins, alls um 112 þúsund fermetra svæði. Gera má ráð fyrir að allt að 800 íbúðir geti risið á byggingarlandinu.

Svana Helen endurkjörinn formaður SI

Svana Helen Björnsdóttir endurkjörin formaður Samtaka iðnaðarins á iðnþingi í morgun. Í stjórnina voru endurkjörin þau Andri Þór Guðmundsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Kolbeinn Kolbeinsson. Nýr í stjórn kemur Ragnar Guðmundsson, frá Norðuráli, en úr stjórn gengur Tómas Már Sigurðsson eftir 6 ára stjórnarsetu. Fyrir í stjórn samtakanna eru Bolli Árnason, Lárus Jónsson, Sigsteinn P. Grétarsson og Vilborg Einarsdóttir.

365 miðlar orðið fjarskiptafyrirtæki

365 miðlar sækir nú inn á íslenskan fjarskiptamarkað, samkvæmt niðurstöðum í 4G útboði sem lauk í gær. Á vef Póst- og fjarskiptastofnunar kemur fram að fyrirtækið hafi átt hæsta boð, eða 100 milljónir króna, í tíðnisvið A sem er 791-801/832-842 MHz.

Google Reader allur

"Ástæðurnar eru tvær og einfaldar. Notkun á Google Reader hefur minnkað og fyrirtæki okkar ætlar að nýta alla sína orku í færri verkefni," segir á heimasíðu tæknirisans Google um ástæðu þess að Google Reader forritinu verði lagt á hilluna.

Sjá næstu 50 fréttir