Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA 19. mars 2013 17:35 Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA
Þorstein Víglundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins frá og með deginum í dag. Á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins segir að Þorsteinn hafi víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi og hafi undangengin 15 ár starfað á sviði fjármálamarkaða og iðnaðar, síðast sem framkvæmdastjóri Samtaka álframleiðenda á Íslandi þar sem hann leiddi stofnun og mótun samtakanna. „Þorsteinn segir það mjög spennandi að takast á við þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem framundan eru á vettvangi Samtaka atvinnulífsins. Langvarandi doði í efnahagslífinu, hátt vaxtastig og örar breytingar á skattaumhverfi fyrirtækja hafi haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja undangengin ár. Mikilvægt sé að örva fjárfestingu og hagvöxt og ná þurfi skynsamlegri lendingu við gerð kjarasamninga til næstu ára. Þá sé brýnt að leysa atvinnulífið úr viðjum gjaldeyrishafta og létta á þrýstingi sem fjármagn sem er lokað innan múra hafta veldur, bæði á gengisþróun og verðlag. Þessi verkefni kalli á gott samstarf aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda, ef vel á að takast við úrlausn þeirra. Þorsteinn er kvæntur Lilju Karlsdóttur, kennara og eiga þau þrjár dætur," segir á síðunni.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira