Fleiri fréttir

Frábær þjónusta og gott vöruúrval hjá uppboðshús.is

Nú gefst Íslendingum kostur á að selja notaðar og nýjar vörur gegnum uppboðsvefinn uppboðshús.is. Kaupendur geta skoðað vörurnar í vöruhúsi fyrirtækisins áður en tilboð er lagt inn. Fyrirtækið sér um allt söluferlið fyrir seljendur varanna.

Stóra tilboðshelgin fram undan

Þakkargjörðarhátíðin nálgast en þá helgi, 23.-26. nóvember, eru stóru tilboðsdagarnir í Bandaríkjunum Black Friday og Cyber Monday. Stóru verslanirnar Walmart, Amazon, Target og fleiri eru byrjaðar að telja niður og birta nú á hverjum degi upplýsingar.

Sex leiðir til að tryggja betri sölu

Æ fleiri neytendur og kaupmenn uppgötva kosti netverslunar. Á heimsvísu er áætlað að netverslun muni meira en tvöfaldast milli áranna 2012 og 2013. Vefsíðufyrirtækið Allra átta sérhannar vefsíður netverslana sem styrkja ímynd þeirra og hvetja til versluna

Viðbrögðin verða ljós á næstunni

Bankastjóri Landsbankans segir að það muni skýrast á næstu dögum hvernig bankinn muni bregðast við dómi héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku um að óheimilt sé að endurreikna vexti gengistryggðs bílaláns afturvirkt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka að bankanum væri óheimilt að reikna afturvirka vexti á gengistryggðu láni í samræmi við hins svokölluðu Árna Páls lög.

Greining spáir 25 punkta hækkun

Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 14. nóvember næstkomandi. Meginforsenda hækkunarinnar mun vera dekkri verðbólguhorfur í ljósi þróunar gengis krónunnar undanfarið. Á móti vegur að heldur hægir nú á vexti innlendrar eftirspurnar og að verðbólguþróunin undanfarið hefur verið öllu hagfelldari en gert var ráð fyrir í síðustu spá Seðlabankans, sem er frá því í ágúst síðastliðnum.

Hæstiréttur hafnaði kröfu Gunnars

Hæstiréttur Íslands hafnaði á föstudag kröfu Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, um að aflað yrði gagna um viðskipti Bogmannsins, félags Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns. Málið tengist ákæru á hendur Gunnari fyrir brot á þagnarskyldu í starfi, en málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um þessar mundir. Hann er grunaður um að hafa haft milligöngu um það að gögnum um fyrirtæki Guðlaugs yrði lekið úr Landsbankanum í DV. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfu Gunnars.

Framtakssjóðurinn seldi fyrir 2,7 milljarða

Framtakssjóður Íslands hefur selt sjö prósenta hlut í Icelandair fyrir 2,7 milljarða króna, en hann á eftir söluna ríflega tólf prósent hlut í félaginu. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað mikið eftir að rekstur þess var endurskipulagður og það skráð á markað á nýjan leik.

Spáir hækkun stýrivaxta í vikunni

Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 14. nóvember næstkomandi.

Jón Þorsteinn flutti hundruð milljóna úr landi

Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, hefur flutt mörg ­hundruð milljónir króna í erlendum gjaldeyri frá Íslandi á þessu ári og því síðasta. Frá þessu greint í DV í dag.

SAS rekur 800 manns og lækkar laun um 15%

SAS flugfélagið hefur ákveðið að reka 800 starfsmenn til að byrja með og lækka laun almennt um 15%. Til lengri tíma á að fækka starfsmönnum SAS úr 15.000 og niður í 9.000.

Verð á gulli hækkar

Verð á gulli hefur farið hækkandi undanfarin misseri á mörkuðum í Bandaríkjunum. Svo virðist sem fjárfestar séu farnir að veðja á að verðbólga muni aukast í Bandaríkjunum og verð á gulli hækka, að því er segir á vef Wall Street Journal (WSJ).

Titringur vegna nauðasamninga - fundað með forsetanum

Skorað hefur verið á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að beita sér gegn því að nauðasamningar við kröfuhafa í þrotabú Kaupþings og Glitnis verði samþykktir. Hópur starfsmanna í fjármálageiranum óttast að útgreiðsla á hundruðum milljarða í erlendri mynt, geti grafið undan gjaldeyrisstöðu þjóðarbússins og valdið miklu efnahagstjóni.

Iceland Foods eignast hlut í Iceland á Íslandi

Iceland Foods Limited, félag í eigu Malcolms Walker, hefur keypt 37% hlut í Ísland-Verslun ehf, sem rekur Iceland verslunina á Íslandi. Hin 63% verða áfram í eigu Jóhannesar Jónssonar. Paul Foley mun taka sæti í stjórn Ísland-Verslun fyrir hönd Iceland Foods International.

Rúmlega 20 milljarða skuldir ríkisstofnana

Heildarskuldir ríkisstofnana námu rúmum 20 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þá vaxið um 45% á fjórum árum. Eftirliti ráðuneyta með skuldamálum stofnana er mjög ábótavant, segir í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni hvetur stofnunin fjármála- og efnahagsráðuneytið til að stuðla að því að úr þessu verði bætt.

HSÍ hafði betur gegn Kaupþingi

Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í morgun að tólf milljóna króna krafa sem Handknattleikssamband Íslands gerði í þrotabú Kaupþings yrði viðurkennd sem almenn krafa. Þá var jafnframt viðurkennt að Hanknattleikssambandið mætti skuldajafna þeirri kröfu við kröfu sem Kaupþing átti á Handknattleikssambandið vegna yfirdráttarskuldar.

Horfur á viðsnúningi til hins verra hjá ríkissjóði

Afkoma ríkissjóðs á miðju árinu var nokkru betri en reiknað var með í fjárlögum. Hins vegar eru horfur á að afkoman á árinu öllu verði um 2 milljörðum króna lakari en fjárlög gerðu ráð fyrir.

Vilmundur ómyrkur í máli: Aflið sogað úr atvinnulífinu

"Skattamál eru eitt helsta áhyggjuefni félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins,“ sagði Vilmundur Jósefsson, formaður stjórnar Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að sífelldar breytingar á sköttum komi illa við fyrirtækin og kalli stöðugt fram viðbrögð. "Ólíkt því sem stjórnvöld virðast trúa þá breyta skattar hegðan þeirra sem þá greiða. Skattstofnar breytast því og þeir geta rýrnað ef óskynsamlega er að þeim staðið eða ef skattahækkanir verða óhóflegar,“ segir hann.

Efnahagstjónið vegna Sandy nemur 6.400 milljörðum

Efnahagstjónið af völdum ofsaveðursins Sandy nemur um 50 milljörðum dollara eða um 6.400 milljörðum króna. Þar af er tjónið í New York borg einni saman metinn á 33 milljarða dollara.

Metvelta á íbúðamarkaðinum í borginni

Metvelta var á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í október, en samtals var 552 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og er þetta mesti fjöldi samninga sem sést hefur síðan í desember 2007.

Liv fékk markaðsverðlaunin

Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, og Marel voru verðlaunuð sem markaðsmaður og markaðsfyrirtæki ársins á Markaðsverðlaunum ÍMARK í gær.

Fullnaðarsigur fyrir rétti í Dubai

Stjórnarformaður íslenska snekkjusmíðafyrirtækisins Scandic International var í gær sýknaður af ákærum í máli á hendur honum sem höfðað var í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Vandamálin eru þegar farin að hrannast upp

Vandamálin á fasteignamarkaði eru farin að hrannast upp, segir forseti Alþýðusambands Íslands, en hann segir mörg dæmi þess að ungt fólk hafi hvorki efni á því að leigja húsnæði né kaupa.

Þorsteinn Már: Afar krefjandi tímar framundan í sjávarútvegi

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að afar krefjandi verði fyrir íslensks sjávarútvegsfyrirtæki að selja vöru á alþjóðamörkuðum á næstunni vegna fólk erlendis hafi mun minna milla handanna en áður. Nýleg aukning á þorskkvóta í Barentshafi, sem Rússa og Norðmenn njóta, geti einnig haft mikil áhrif hér á landi.

Magnús Þór yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar

Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. Magnús Þór er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir fjölbreyttri og langri reynslu á sviði samskipta. Magnús Þór hefur starfað hjá Landsvirkjun á samskiptasviði sem staðgengill yfirmanns frá byrjun þessa árs.

Fyrirtæki þurfa áreiðanleika á krepputímum

Christian Grönroos, einn virtasti sérfræðingur heims á sviði markaðsmála, segir að krepputímar kalli á að fyrirtæki hugi sérstaklega að beinu sambandi við viðskiptavini gegnum vörur sínar og þjónustu. "Það reynir á markaðsfólk sem sinnir þessu starfi, við erfiðar aðstæður,“ segir Grönroos, en hann er gestur nýjasta þáttar Klinksins, spjallarþáttar um efnahagsmál og viðskipti á Vísi.

Burger King breiðist út um Norðurlöndin

Skyndibitakeðjan Burger King mun fjölga sölustöðum í Danmörku og Svíþjóð verulega á næstunni. Ástæðan er sú að norska skyndibitakeðjan Umoe Restaurant Group hefur gert samkomulag um að veitingastaðir sínir verði reknir undir merkjum Burger King. Umoe verður jafnframt aðalþjónustuaðili þeirra Burger King staða sem þegar voru settir upp. ´

Sár vöntun á húsnæði fyrir stúdenta og ungt fólk

Lágmarksframfærsla frá LÍN dugar engan veginn fyrir útgjöldum, ekki síst vegna þess hve húsnæðiskostnaður hefur hækkað mikið. Hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir vanda vegna húsnæðisskorts sífellt verða umfangsmeiri, en biðlisti eftir stúdentaíbúðum hefur aldrei verið lengri.

Hugleiðslunám- skeið um helgina

Sri Chinmoy-miðstöðin var stofnuð á Íslandi árið 1974 en hún byggir á hugmyndafræði Indverjans Sri Chinmoy. Hann var gífurlega afkastamikill á sviði tónlistar, ljóðagerðar, myndlistar, bókmennta og íþrótta.

Bakkavör er stærsta fyrirtæki landsins

Bakkavör Group ehf er stærsta fyrirtæki landsins sé miðað við veltu. Velta fyrirtækisins á síðasta ári nam 312 milljörðum króna og jókst um 6% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Frjálsrar verslunar þar sem fjallað er um 300 stærstu fyrirtækin á landinu.

Verk eftir Monet selt á 5,6 milljarða

Eitt af vatnaliljumálverkum meistarans Claude Monet var selt á uppboði hjá Christie´s í New York fyrir tæplega 44 milljónir dollara eða um 5,6 milljarða króna. Þetta er hæsta verð sem fengist hefur fyrir málverk eftir Monet í sögunni.

Farþegum Icelandair fjölgaði um 18% milli ára í október

Icelandair flutti 172 þúsund farþega í millilandaflugi í október og voru þeir 18% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning var 21% á milli ára. Sætanýting nam 80,6% samanborið við 81,4% í október í fyrra.

10 þúsund tonn af rækju á land

Alls hafa veiðst 10 þúsund tonn af rækju frá áramótum. Þrátt fyrir að tveir mánuðir séu eftir af árinu þá er aflinn samt orðinn um 1700 tonnum meiri í ár enn árið 2011. Á vefnum Aflafréttir kemur fram að 40 bátar og skip hafi komið með þennan afla að landi, en árið 2011 þá voru bátarnir 32 talsins.

Auðjöfur kaupir hlut í Orku Energy

Richard Chandler Corporation (RCC) keypti í sumar 33 prósenta hlut í móðurfélagi íslenska orkufyrirtækisins Orka Energy Holding ehf. Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskráar greiddi RCC tólf milljónir dala, um 1,5 milljarð króna fyrir hlutinn. RCC, sem er staðsett í Singapore, var stofnað af Richard F. Chandler, nýsjálenskum fjárfesti. Samkvæmt lista Forbes var Chandler, sem er 53 ára og ókvæntur, fjórði ríkasti maður Singapore í lok síðasta árs og 230. ríkasti maður í heimi. Tímaritið sagði auð hans nema um 4,6 milljörðum dala, um 586 milljörðum króna.

ASÍ leggst gegn fríverslunarsamningi við Kólumbíu

Alþýðusamband Íslands leggst gegn því að EFTA fullgildi fríverslunarsamning við Kólumbíu og landbúnaðarsamning Íslands og Kólumbíu sem nú liggja fyrir Alþingi Þetta kemur fram í umsögn ASÍ til Alþingis. ASÍ segir að mannréttindabrot gegn verkalýðsforingjum og meðlimum stéttarfélaga séu daglegt brauð í Kólumbíu þar sem réttindi launafólks séu fótum troðin. Bara á þessu ári hafi 35 verkalýðsforingjar verið myrtir í Kólumbíu.

Veitingastaðarisinn Foodco hagnast

Foodco, sem rekur veitingastaði undir merkjum American Style, Saffran, Eldsmiðjunnar, Aktu-Taktu, Pítunnar og Greifans á Akureyri, hagnaðist um 53,3 milljónir króna í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir