Veitingastaðarisinn Foodco hagnast 7. nóvember 2012 14:30 Foodco rekur Eldsmiðjuna ásamt ótal öðrum veitingastöðum.
Foodco, sem rekur veitingastaði undir merkjum American Style, Saffran, Eldsmiðjunnar, Aktu-Taktu, Pítunnar og Greifans á Akureyri, hagnaðist um 53,3 milljónir króna í fyrra.Það er mun minni hagnaður en árið áður þegar hann nam 371 milljón króna. Þá munaði þó mestu um 213 milljóna króna gengishagnað. Alls voru eignir Foodco bókfærðar á 1,8 milljarða króna um síðustu áramót og eigið fé félagsins var 690 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi þess.Athygli vekur að samdráttur hefur verið í sölu hjá Foodco á undanförnum árum. Árin 2008 og 2009 seldu veitingastaðir félagsins fyrir 2,9 milljarða króna hvort árið. Sú sala var tæplega 2,7 milljarðar króna árið 2010 og rúmlega 2,4 milljónir króna í fyrra.Foodco keypti Shiraz ehf., sem á og rekur Saffran-veitingastaðina, í október 2011. Kaupverðið var ekki gefið upp á sínum tíma en félagið var bókfært á 323,5 milljónir króna í bókum Foodco rúmum tveimur mánuðum eftir að kaupin áttu sér stað.Foodco á einnig Þorp ehf., sem er félag utan um fasteignir þeirra matsölustaða sem félagið á og rekur. Þorp tapaði 20,7 milljónum króna í fyrra og eigið fé þess er neikvætt um 201 milljón króna. Félagið hagnaðist hins vegar um 700 milljónir króna árið 2010 eftir að hafa náð samkomulagi við viðskiptabanka sinn. Samkvæmt ársreikningi voru eftirgefnar skuldir/gengismunur alls 885 milljónir króna það árið.Eigendur Foodco eru Þórarinn Ragnarsson (40 prósent), félag í eigu Jóhanns Arnar Þórarinssonar (40 prósent), Óttar Þórarinsson (10 prósent) og félag í eigu Bjarna Stefáns Gunnarssonar (10 prósent). - þsj
Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Kalla inn fæðubótarefni Neytendur Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira