Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Eiður Þór Árnason skrifar 1. apríl 2026 18:00 Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans. Ásgerður Ósk Pétursdóttir, Tómas Brynjólfsson, Herdís Steingrímsdóttir, Ásgeir Jónsson og Þórarinn G. Pétursson. Seðlabankinn Skiptar skoðanir voru innan peningastefnunefndar Seðlabankans um síðustu stýrivaxtahækkun og vildu tveir nefndarmenn af fimm hækka vexti um 0,50 prósentustig í stað 0,25. Seðlabankastjóri og aðrir nefndarmenn sem studdu hófsamari tillöguna telja skýrt að frekara hækkunarskref þurfi að taka í maí nema verðbólguhorfur „batni verulega í millitíðinni.“
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti þann 18. mars í fyrsta sinn frá árinu 2023 og eru meginvextir nú 7,50 prósent. Hagstofa Íslands hefur síðan þá mælt enn frekari verðbólguaukningu. Mældist hún 5,4 prósent í mars samanborið við 5,2 prósent í febrúar. Þrír nefndarmenn peningastefnunefndar töldu minna skref heppilegra að þessu sinni í ljósi þeirra skilaboða sem nefndin hefði áður sent og þar sem enn væri nokkur óvissa um framvindu átakanna við Persaflóa. Þá væru skýrar vísbendingar um hægari efnahagsumsvif sem ættu að vega á móti auknum verðbólguþrýstingi. „Þeir nefndarmenn sem vildu taka stærra skref töldu hins vegar þörf á afgerandi viðbrögðum í ljósi þess hve þrálát verðbólga hefði verið og hversu hratt verðbólguhorfur hefðu versnað. Hækkun verðbólguvæntinga hefði minnkað taumhald peningastefnunnar nokkuð undanfarið,“ segir í síðustu fundargerð peningastefnunefndar sem birt var í dag en nefndin fundaði dagana 16. og 17. mars. Nauðsynlegt væri að taka stærra skref Minnihluti nefndarinnar, sem samanstóð af Herdísi Steingrímsdóttur og Ásgerði Ósk Pétursdóttur, taldi að hækkun um 0,25 prósentur á þessum tímapunkti fæli í sér að tiltölulega lítið af peningalegum slaka ynnist til baka. Einnig væri óvissa um það hvort sá slaki sem væri að myndast í þjóðarbúinu væri nægilegur til að ná verðbólgu í markmið Seðlabankans innan ásættanlegs tíma. Nauðsynlegt væri við núverandi aðstæður að taka stærra skref og senda skýrari skilaboð til að tryggja trúverðugleika peningastefnunnar. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, lagði til að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. Var þessi tillaga samþykkt með stuðningi Þórarins G. Péturssonar og Tómasar Brynjólfssonar. „Fram kom að nefndin væri jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum,“ segir í fundargerðinni. Mótun peningastefnunnar næstu misseri myndi sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Verðhækkanir útbreiddari en áður Í umræðu nefndarmanna á fundinum kom fram að verðbólga hefði aukist hratt á stuttum tíma og aukin hætta væri á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga myndi virkjast síðar á árinu. Þá hefðu verðbólguvæntingar hækkað á ný og hætt væri við að þær hækkuðu enn frekar. Því væri nauðsynlegt að hækka vexti til að draga úr hættu á annarrar umferðar áhrifum og senda skýr skilaboð um að nefndin væri staðráðin í að tryggja að verðbólga hjaðnaði aftur í markmið innan ásættanlegs tíma. Nefndin var sammála um að verðbólga hefði bæði mælst meiri en búist hefði verið við og verðhækkanir væru útbreiddari en áður. Þjónustuverðbólga hefði aukist skarpt undanfarið og hefði ekki verið jafn mikil frá hausti 2023. Þá virtust kostnaðarhækkanir á undanförnum misserum í vaxandi mæli hafa skilað sér út í verðlag. Áhyggjur af því að núverandi verðbólga gæti fest sig í sessi Nefndin lýsti yfir áhyggjum af því að áhrif verðhækkana undanfarið myndu breiðast enn frekar út og festa núverandi verðbólgu í sessi. Mikil hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa hefði nú þegar leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði. Taldi nefndin jafnframt hættu á að áhrifin næðu til fleiri þátta en orkuverðs ef átökin drægjust á langinn. Þau gætu til að mynda birst í hækkun á verði áburðar, matvæla, flutningskostnaðar og iðnaðaríhluta sem gæti aukið alþjóðlega verðbólgu talsvert. Talið var að það gæti leitt til frekari annarrar umferðar áhrifa og aukið verðbólgu enn frekar, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar væru eins háar og raun ber vitni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Seðlabankinn Verðlag Tengdar fréttir Vaxtahækkun í maí blasi við Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra. 26. mars 2026 10:42 Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. 18. mars 2026 12:59 Hækka stýrivexti Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira. 18. mars 2026 08:30 Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Vaxtahækkun í maí blasi við Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra. 26. mars 2026 10:42
Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. 18. mars 2026 12:59
Hækka stýrivexti Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira. 18. mars 2026 08:30
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent