Sár vöntun á húsnæði fyrir stúdenta og ungt fólk Magnús Halldórsson skrifar 8. nóvember 2012 12:00
Lágmarksframfærsla frá LÍN dugar engan veginn fyrir útgjöldum, ekki síst vegna þess hve húsnæðiskostnaður hefur hækkað mikið. Hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir vanda vegna húsnæðisskorts sífellt verða umfangsmeiri, en biðlisti eftir stúdentaíbúðum hefur aldrei verið lengri. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að þokast upp á við að undanförnu, og velta í viðskiptum að aukast. Þannig var velta í októbermánuði 16,4 milljarðar króna, sem er ríflega 37 prósent aukning milli ára, samkvæmt tölum sem Þjóðskrá Íslands birti á vef sínum í gær. Þrátt fyrir aukin umsvif, bendir margt til þess að mikil vöntun sé á húsnæði fyrir ungt fólk, enda lítið sem ekkert verið byggt í næstum fimm ár, eða frá því í byrjun árs 2008. Fjármálakerfið og krónan hrundu í október 2008. Davíð Ingi Magnússon, hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir að vandamál á fasteignamarkaði, þegar kemur að ungu fólki, blasa við. Mikil hækkun á leiguverði, takmarkaðir möguleikar á húsnæði og lengsti biðlisti í sögunni eftir stúdentaíbúðum, segi sína sögu um hvernig landið liggur. "Það eru 900 manns á biðlista eftir stúdentaíbúðum í dag, og þeim fer ekkert fækkandi. Leiguverðið á markaði er mjög hátt, en minnstu einstaklingsíbúðir eru leigðar á um 100 þúsund krónur á mánuði. Þegar námslánin frá LÍN eru 140.600 krónur, þá gengur dæmið einfaldlega ekki upp," segir Davíð Ingi. Um 300 nýjar íbúðir fyrir stúdenta verða teknar í notkun á næsta ári, en það dugar skammt. "Biðlistinn er alltaf að lengjast, þannig að 300 nýjar íbúðir hafa lítið að segja." Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 fyrr í vikunni að fjárfestar væru farnir að veðja á mikla hækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum, en fjárfestingasjóðir hafa að undanförnu keypt húsnæði fyrir um 40 milljarða króna, og eru lífeyrissjóðir á meðal þeirra sem lagt hafa fé í þessa sjóðir. Sjóður á vegum GAMMA, rekstrarfélags verðbréfasjóða, hefur á undanförnum mánuðum keypt ríflega 100 íbúðir í miðbæ Reykjavíkur fyrir um fjóra milljarða, þar sem horft er til þess að fasteignaverðið muni hækka mikið á þessu svæði, það er í póstnúmerum 101, 107 og 105, á næstu árum. Byggja spárnar um mikla hækkun ekki síst á því að framboð af húsnæði á þessu svæði sé takmarkað, og byggingakostnaður hár, á meðan eftirspurnin eykst ár frá ári.
Mest lesið Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Viðskipti innlent Boða skattheimtu á fjármálafyrirtæki án útfærslu Viðskipti Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Nói Siríus aftur í innlendri eigu Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Sjá meira