Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verslun dregst saman á Laugavegi Verslun á Laugavegi dregst saman milli ára auk þess sem öldruðum og fötluðum viðskiptavinum hefur fækkað mjög. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Samtökum kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg og er þróunin rakin til þess að Laugavegurinn hefur verið gerður að göngugötu. 17.8.2012 15:23
Leigusamningur Stórsveitarinnar er táknrænn gjörningur Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpunnar, segir að leigusamningurinn við Stórsveit Reykjavíkur sé fyrst og fremst táknrænn gjörningur þar sem þessi geiri tónlistar er boðinn velkominn í húsið. Þar á hann helst við tónlistarstefnuna jazz. 17.8.2012 14:00
Krónan styrkist Gengi krónunnar hefur styrkst um hátt í ellefu prósent á síðustu fimm mánuðum og hefur ekki verið sterkara síðan í byrjun síðasta árs. Mikil árstíðarsveifla er í gengi krónunnar og því líklegt að hún muni veikjast aftur með haustinu. 17.8.2012 13:00
Gylfi: Þarf að leita annarra lausna við afnám hafta Seðlabankinn vinnur eftir áætlun um afnám gjaldeyrishafta og er notast við svonefnda útboðsleið til þess að vinna á snjóhengju aflandskróna, í því skyni að minnka þrýsting á krónuna, svo mögulegt sé að afnema gjaldeyrishöftin. Seðlabankinn telur að nokkur árangur hafi náðst, en meðal þess sem horft er að til er að virkja aflandskrónurnar með fjárfestingu í íslensku atvinnulífi. 17.8.2012 12:30
Gengi bréfa Facebook fellur enn Gengi bréfa í Facebook féll í gær um tæplega 6,3 prósent og fór gengið við það niður fyrir 20 dali á hlut, en þegar bréf samfélagsmiðilsrisans voru tekin til viðskipta, í maí síðastliðnum, var gengið 38 og það hefur því lækkað nær látlaust. 17.8.2012 08:58
Yfirlýsing frá Hermanni: Ummælin vísuðu til tímans frá bankahruni Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri N1, segir að með ummælum sínum í Viðskiptablaðinu í dag, um að auðvelt hefði verið fyrir fyrirtækið að valda einhverjum samkeppnisaðilanum skaða með verðstríði, hafi hann verið að vísa til tímabilsins frá bankahruni og að þeim tíma þegar fjárhagslegri endurskipulagningu þúsunda fyrirtækja lauk. Í dag hafi öll félögin burði til að stunda harða samkeppni. 16.8.2012 19:29
Höftin geta skapað bólur - eignaverð hækkar mikið hér Gylfi Magnússson, dósent í viðskiptafræði, segir að mikilvægt sé að fylgjast grannt með gangi mála í íslensku efnahagslífi innan gjaldeyrishafta, því eignaverð geti hækkað mikið við þær aðstæður. Hann segir brýnt að horfa til þróunar eignaverðs þegar höftunum er aflétt. 16.8.2012 18:45
Stjórn N1 segir að virk samkeppni sé á markaði Stjórn N1 segir að samkeppni félagsins við önnur olíufélög sé mjög virk og hafi meðal annars birst að undanförnu í háum tímabundnum afsláttum, aukinni þjónustu og afsláttum til neytenda í gegnum tryggðarkerfi. 16.8.2012 17:57
Samkeppniseftirlitið mun skoða ummæli Hermanns Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að ummæli Hermanns Guðmundssonar, fráfarandi forstjóra N1, um að N1 hafi ekki lækkað eldsneytisverð af virðingu við slæma stöðu samkeppnisaðila sinna séu allrar athygli verð. "Samkeppniseftirlitið mun gaumgæfa hvort í þeim felist vísbendingar um samkeppnislagabrot,“ segir hann. 16.8.2012 15:10
Iceland var oftast með lægsta verðið Matvöruverslunin Iceland sem er nú með í fyrsta skipti í verðkönnun ASÍ var oftast með lægsta verðið, þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru í átta lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víðsvegar um landið síðastliðinn þriðjudag. 16.8.2012 14:47
Ummæli Hermanns benda til samkeppnislagabrota Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðareigenda (FÍB), segir að ef ummæli Hermanns Guðmundssonar, fráfarandi forstjóra N1, séu sannleikanum samkvæm feli þau í sér brot á samkeppnislögum. 16.8.2012 14:25
Lúðvík og Sigurvin verða kallaðir á fund Tveir lögmenn Bonafide lögmanna verða kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar vegna greinar sem þeir skrifuðu á Vísi á þriðjudaginn var um innheimtu ólögmætra gengislána. Þetta staðfestir formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Helgi Hjörvar í samtali við fréttastofu. 16.8.2012 13:53
Sjálfstæðismenn í borginni vilja að ríkið endurskoði áform sín Sjálfstæðismenn í borgarráði vilja að borgarráð hvetji ríkisstjórn Íslands til þess að endurskoða áform hækkanir á gistináttaskatti. Benda sjálfstæðismenn á að þessar breytingar muni hafa mjög alvarleg áhrif á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og bitna sérstaklega hart á reykvísku atvinnulífi. Sjálfstæðismenn lögðu fram tillögu um þetta á borgarráðsfundi í dag, en meirihluti borgarráðs vildi ekki samþykkja tillöguna og var henni þvi frestað. 16.8.2012 13:23
Olíufélög mega ekki taka tillit til samkeppnisaðilanna Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, vísar því alfarið á bug að Skeljungur sé of skuldsett félag til að standa í samkeppni á markaði. 16.8.2012 10:49
Tilboð í dýpkun í Landeyjarhöfn miklu hærri en kostnaðaráætlun Nú er verið að bjóða út vinnu við vetrardýpkun í Landeyjahöfn. Þrjú tilboð hafa borist og er lægsta tilboðið 211 milljónum króna yfir kostnaðaráætlun. Enn hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um hvað verður gert samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun. 16.8.2012 10:25
Dönsk hönnun skiptir landið sköpum Þó danskur efnahagur hafi gengið í gegnum efnahagslegan öldudal á undanförnum árum, og sé í reynd enn í vanda, eru ýmsar stoðir hagkerfisins traustar. 16.8.2012 09:16
Markaðsvirði CCP 23.3 milljarðar Markaðsvirði íslenska tölvuleikjafyrirtækisins CCP er metið á 23.3 milljarða króna. Greint er frá þessu í Viðskiptablaðinu í dag. CCP er ekki skráð á hlutabréfamarkað. 16.8.2012 08:31
Aflinn jókst um 13% Heildarafli íslenskra skipa var 13,4% meiri í júlí en í júlí í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 17,9% miðað við sama tímabil i fyrra, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn nam alls 113 þúsund tonnum í síðasta mánuði samanborið við 103 þúsund tonn í júlí í fyrra. 16.8.2012 09:58
Auglýsingar í fréttaveitunni Nokkrir notendur samskiptasíðunnar Facebook eru nú byrjaðir að sjá auglýsingar í fréttaveitu (e.News feed) síðunnar. Forsvarsmenn síðunnar tilkynntu í lok síðasta árs að fyrirtæki geti keypt auglýsingar sem birtast á þessum stað síðunnar. 15.8.2012 20:42
Nýir eigendur taka við rekstri Pennans Hópur fjárfesta sem skrifaði undir samning um sölu á Pennanum á Íslandi hefur tekið við rekstri fyrirtækisins. Tilkynnt var þann 18. júní síðastliðinn að samkomulag hefði náðst um söluna. Seljandi var Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka, en helstu forsvarsmenn kaupendahópsins eru Ingimar Jónsson, Ólafur Stefán Sveinsson og Stefán D. Franklín. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nú liggur fyrir. 15.8.2012 17:24
Íslenskt fyrirtæki fær einkaleyfi í Bandaríkjunum Íslenska fyrirtækið Carbon Recycling International hefur fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum á aðferð sinni til framleiðslu á endurnýjanlegu metanóli. Einkaleyfið er mikilvæg staðfesting á brautryðjendastarfi fyrirtækisins, segir í fréttatilkynningu. 15.8.2012 16:20
Íslendingar lásu Hungurleikana Sögurnar um Hungurleikana voru vinsælustu kiljur í sumar, samkvæmt lista Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þannig voru bækurnar Hungurleikarnir og framhald þeirrar bókar Eldar kvikna þær bækur sem seldust mest frá 3. júní til 11. ágúst. Í þriðja sæti kiljulistans var spennusagan Dauðadjúp eftir sænska höfundinn Åsa Larsson. 15.8.2012 15:42
Félag Skúla tapaði 135 milljónum Títan fjárfestingafélag, sem er í 100 prósenta eigu Skúla Mogensen, tapaði 135 milljónum króna á síðasta ári. Eigið fé félagsins um síðustu áramót var neikvætt um 102 milljónir króna. Það tapaði 44,5 milljónum króna árið áður. Eignir félagsins eru metnar á rúmlega 1,3 milljarða króna. 15.8.2012 15:07
Ríkiskaup brutu lög þegar samið var við Icelandair Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express. 15.8.2012 14:39
Eitt elsta kaffihús landsins til sölu - Finni vill tilbreytingu "Þetta er bara spurning um tilbreytingu, ég vil breyta til og halda mér ferskum," segir Guðfinnur Sölvi Karlsson, eða Finni eins og hann er að jafnaði kallaður, en hann hefur sett á sölu fjóra veitingastaði í sinni eigu og skyndibitabíl. Meðal veitingastað sem eru til sölu er eitt elsta kaffihús Reykjavíkur, Prikið. Af öðrum stöðum sem Finni hefur sett á sölu eru veitingastaðirnir Frú Berglaug, Glaumbar, Gamla Gaukinn, áður Gaukur á stöng, auk þess sem hamborgarabíllinn Rokk Inn er einnig falur. 15.8.2012 13:52
Duch: Slæmt að álitið á fjármálaþekkingu hafa fallið Spænski fræðimaðurinn Emiliano Duch, sem þykir einn fremsti sérfræðingur heims á sviði samkeppnishæfni, segir að eitt af því sem sé áhyggjuefni fyrir þjóðir sem nú gangi í gegnum erfiðleika í efnahagslífinu sé vantraust á vel menntuðu og hæfu fólki. "Sumt fólk skammast sín fyrir að hafa unnið í fjármálageiranum á Wall Street, jafnvel þótt það hafi ekki verið spillt eða gert nokkuð rangt. Jafnvel framúrskarandi stærðfræðingar, sem unnu sem sérfræðingar á sviði fjármála, sitja nú uppi með verðlausa þekkingu að mati margra. Þetta er rangt og áhyggjuefni, því þekkingin er verðmæt og það skiptir máli að umhverfið sem hagkerfin eru í sé móttækilegt fyrir mikilli og sérstakri þekkingu," segir Duch í viðtali við Markaðinn, sem kom út í dag. 15.8.2012 13:15
BHM gerir kröfu um að öll réttindi haldi sér Bandalag háskólamanna, BHM, sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun, þar sem kröfur bandalagsins eru tíundaðar, þegar kemur að lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna. Í tilkynningu segir meðal annars að þess sé krafist að staðið verði að fullu við núverandi lífeyrisskuldbindingar gagnvart sjóðfélögum B-deildar LSR og LSS hvort sem þeir hafa hafið töku lífeyris eða ekki. 15.8.2012 11:59
Atvinnuleysi minnkar meira hjá konum Atvinnuleysi meðal kvenna minnkar umtalsvert meira milli ára en atvinnuleysi meðal karla miðað við tölur Hagstofu Íslands fyrir júlímánuð. Atvinnuleysi meðal karla var 5,8% í júlí 2012 miðað við 5,5% í sama mánuði í fyrra og eykst því um 0,3%. Atvinnuleysi meðal kvenna var hins vegar 2,8% í júlí 2012 miðað við 5,4% í sama mánuði í fyrra og minnkar því um 2,6%. 15.8.2012 11:44
Greiningadeild Arion spáir óbreyttum stýrivöxtum Greiningardeild Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum á næsta vaxtaákvörðunarfundi á miðvikudag í næstu viku. Batnandi verðbólguhorfur, ríflega 10% styrking krónunnar og vaxandi órói á erlendum mörkuðum eru þættir sem munu vega þyngst að þessu sinni. Greiningadeild Arion banka útilokar þó ekki frekari vaxtahækkanir í vetur en telur að nefndarmenn kjósi að þessu sinni að bíða og sjá hvernig ýmsir þættir þróast með haustinu. 15.8.2012 11:25
Hafnarfjarðarbær vill funda með Landsneti vegna raflína Skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðarbæjar hefur frestað ákvörðun um aðalskipulagsbreytingar varðandi Hamraneslínur og Suðurnesjalínu þar sem forsendur varðandi tímasetningu framkvæmda við Suðvesturlínu hafa breyst. Þetta kemur fram í fundargerð ráðsins síðan í gær. Þar kemur ennfremur fram að ráðið óski eftir fundi með Landsneti um framhald málsins áður en endanleg ákvörðun verður tekin. 15.8.2012 11:07
Skuldakreppan skekur evrulöndin Hagkerfi evrusvæðisins dróst saman um 0,2% á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við þann fyrsta. Örlítið meiri kraftur var í þýska og franska hagkerfinu en búist hafði verið við en landsframleiðsla í Grikklandi, Ítalíu, Spáni og Finnlandi dróst nokkuð saman. 15.8.2012 11:00
Skilvísir geti notið þess í kjörum Creditinfo á Íslandi hefur ýtt úr vör nýrri þjónustu þar sem áhætta einstaklinga á því að enda á vanskilaskrá er metin. Vonast fyrirtækið til þess að skilvísir einstaklingar geti nýtt sér áhættumat frá fyrirtækinu til að fá betri kjör í viðskiptum. 15.8.2012 11:00
Hagvöxturinn er ekki aðalatriðið "Ég hef áhuga á Íslandi, vegna þess að ég tel að umheimurinn geti lært margt af því sem hér er gert,“ segir Spánverjinn Emiliano Duch, sem er einn virtasti fræðimaður heims á sviði samkeppnishæfni. Hann var staddur hér á landi í byrjun mánaðarins vegna samstarfs við ráðgjafafyrirtækið Gekon, sem unnið hefur að kortlagningu á jarðhitaklasanum hér á landi, og því hvernig megi efla hann og styrkja. 15.8.2012 11:00
Útlendingar aldrei eytt meira á Íslandi Erlendir ferðamenn hafa aldrei eytt fleiri krónum á Íslandi og í júlí síðastliðnum. Erlend kortavelta hérlendis var þá um 13,1 milljarður króna og jókst um 15,3 prósent frá sama mánuði í fyrra. Á sama tíma eyddu Íslendingar 5,2 milljörðum króna á kortum sínum í útlöndum, sem er 10,1 prósenti meira en árið 2011. Þetta kemur fram hjá Greiningu Íslandsbanka sem byggir á tölum Seðlabanka Íslands um kortaveltu. 15.8.2012 11:00
Eik eykur hlutafé um tvo milljarða króna Eik fasteignafélag seldi nýtt hlutafé fyrir tæplega tvo milljarða króna í lokuðu útboði í júní síðastliðnum. Kaupendur voru fagfjárfestar, að mestu lífeyrissjóðir, og einstaklingar. Lýsing hf., sem var stærsti einstaki eigandi Eikar um síðustu áramót, tók ekki þátt í því. Féð sem fékkst fyrir hina nýju hluti var notað til að greiða niður skuldir félagsins. Eik vinnur auk þess að því að klára endurfjármögnun á skuldum sínum ásamt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjó 15.8.2012 11:00
Færri leigusamningum þinglýst en í fyrra 775 leigusamningum var þinglýst á landinu öllu í júlí á þessu ári. Það er tæpum tveimur prósentum eða 15 samningum minna en í júlí í fyrra. 15.8.2012 10:42
Atvinnuleysið 4,4% Atvinnuleysi minnkaði um 1% í júlí miðað við sama mánuð í fyrra og var 4,4%, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Atvinnuleysi var 5,8% á meðal karla en var 5,5% í sama mánuði í fyrra og meðal kvenna var það 2,8% miðað við 5,4% í júlí 2011. 15.8.2012 09:16
Landsbankinn greiðir fyrir laxveiði framkvæmdastjóra Landsbankinn hyggst greiða fyrir laxveiðiveiðiferð Árna Þórs Þorbjörnssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans, en í byrjun vikunnar fór hann til veiða með erlendum bankamönnum og einstaklingum er tengjast fyrirtækinu Promens. Frá þessu er greint í DV í dag, og er þar haft eftir Kristjáni Kristjánssyni, upplýsingafulltrúa bankans, að ferðin hafi verið á vegum Promens, en að hún verði greidd af bankanum. 15.8.2012 09:11
Danske Bank: Miklir erfiðleikar út þetta ár í Evrópu Greiningardeild Danske Bank segir að enginn hagvöxtur verði á evrusvæðinu á þessu ári og að útlitið sé ekki gott. Frá þessu er greint á vefsíðu Politiken í dag. Í greiningu Danske segir að hagvöxtur verði við núllið á þessu ári, að meðaltali fyrir allt svæðið, en verði líklega í kringum 0,7 prósent í byrjun næsta árs. 15.8.2012 08:56
Framkvæmdastjóri BBC verður forstjóri útgáfufélags New York Times Framkvæmdastjóri breska ríkisútvarpsins, Mark Thompson, verður næsti forstjóri útgáfufélags New York Times og mun taka við því starfi í nóvember. Frá þessu greindi BBC í morgun. 15.8.2012 08:07
Standard Chartered greiðir fúlgur fjár í sekt Stjórnendur breska bankans Standard Chartered hafa samþykkt að greiða bandarískum yfirvöldum því sem nemur fjörtíu og einum milljarði króna í sekt vegna stórfelldra svika sem tengdust viðskiptum við stjórnvöld í Íran. 15.8.2012 07:07
Útboð borana í Bjarnarflagi framlengt Landsvirkjun hefur framlengt útboð vegna Bjarnarflagsvirkjunar fram í september. Frestur til að skila inn tilboðum í boranir á háhitaholum átti að renna út í dag, 14. ágúst, samkvæmt útboðsauglýsingu fyrr í sumar. Nýr tilboðsfrestur hefur nú verið auglýstur til hádegis 6. september. "Ákveðið var að framlengja tilboðsfresti í borun við Bjarnarflag að ósk bjóðenda," sagði Magnús Þór Gylfason, starfandi yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, þegar fréttastofa leitaði skýringa á seinkuninni. 14.8.2012 18:45
Áfengi 5 prósent dýrara en fyrra - salan dróst saman um 18 prósent Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,4% á föstu verðlagi í júlí miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram smávísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar. 14.8.2012 17:46
Lítil hreyfing á Íslandi - grænar tölur hækkunar erlendis Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands hefur lítil hreyfst í dag en heildarvelta í viðskiptum dagsins hefur numið 236 milljónum til þessa. Gengi bréfa Haga hefur hækkað um 0,27 prósent og er nú 18,4, en heildarvelta í viðskiptum með bréfa Haga nemur 222 milljónum, eða langsamlega stærsta hluta heildarveltu dagsins. 14.8.2012 16:53
Byrjaði með aðeins 30 pund í vasanum en er milljarðamæringur í dag Malcolm Walker, stofnandi og eigandi Iceland Foods, segir að einfaldleiki sé lykillinn að velgengni Iceland Foods. Walker byrjaði aðeins með 30 pund í vasanum og eina búð í Oswestry. 14.8.2012 15:33