Fleiri fréttir Marel lækkar um tæplega 3 prósent - Icelandair hækkar Marel lækkaði um 2,81 prósent í dag og er gengið nú komið í 138,5. Hinn 10. maí síðastliðinn var gengi bréfa félagsins 161. Gengi bréfa í fasteignafélaginu Regin hækkaði um 0,73 prósent í dag og er gengið nú 8,31. Gengi bréfa í Högum hækkaði um 0,55 prósent og er gengið nú 18,2. Gengi bréfa í Icelandair er nú 1,05 og er gengið nú 6,75. 1.8.2012 16:52 Friðrik Skúlason selur reksturinn Friðrik Skúlason hefur gert samning við fyrirtækið Commtouch® um sölu á Friðrik Skúlason ehf. Skrifað var undir samninginn í dag. Starfsemi Friðriks Skúlasonar verður áfram á Íslandi og með óbreyttu sniði. 1.8.2012 16:05 Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka samkvæmt tölum sem breska hagstofan birti í morgun. Lækkunin í júlímánuði er sú hraðasta síðan 2009 en hún var 0,7 prósent í mánuðinum. Undanfarið ár hefur fasteignaverð á landsvísu í Bretlandi lækkað um 2,6 prósent. 1.8.2012 14:53 Iceland Express stundvísast síðustu tvær vikur Stundvísi íslensku flugfélaganna Icelandair, Iceland Express og WOW air var góð fyrri hluta sumars en síðastliðinn hálfan mánuði lækkaði hlutfall þeirra ferða sem voru á áætlun samanborið við vikurnar á undan. 1.8.2012 14:37 Commodore 64 er þrjátíu ára Þrjátíu ár voru liðin í síðasta mánuði frá því að Commodore 64 var sett á markað. Tölvan naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma og varð meðal annars til þess að þróa betur einkatölvumarkaðinn, eftir því sem kemur fram á vef BBC. Þá urðu tölvuleikir vinsælli með tilkomu tölvanna og fyrstu menn fóru að búa til tölvugerða tónlist heima hjá sér. Á alfræðivefnum Wikipedia segir að Commodore tölvurnar hafi selst í meira en þrjátíu milljónum eintaka. 1.8.2012 13:37 Marel lækkar skarplega Gengi hlutabréfa í Marel hefur lækkað skarplega í morgun, eða um 2,41 prósent. Gengi bréfa félagsins er nú 139. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað um 0,15 prósent í morgun er gengi bréfa félagsins nú 6,69. Þá hefur gengið bréfa í fasteignafélaginu Regin hækkað um 0,36 prósent og stendur gengi bréfa félagsins nú í 8,28. 1.8.2012 12:48 Millistjórnandi Citigroup sýknaður Brian Stoker, fyrrverandi millistjórnandi hjá bandaríska fjárfestingabankanum Citigroup, var í gær sýknaður af ásökunum um að hafa selt fjárfestum skuldabréfavafninga (CDO) á sama tíma og hann vissi, eða mátti vita, að eignirnar væru ofmetnar. Málareksturinn gegn Stoker hófst í október í fyrra þegar ákærunni á hendur honum var þinglýst. 1.8.2012 09:21 Man. Utd. hyggst safna 40 milljörðum á markaði Enska knattspyrnufélagið Manchester United hyggst safna 330 milljónum dala, jafnvirði um 40 milljörðum króna, með nýju hlutafé með skráningu á markað í New York í Bandaríkjunum. Hver hlutur verður seldur á bilinu 16 til 20 dali, að því er segir í skráningarlýsingu vegna útboðsins sem vitnað er til á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 1.8.2012 08:45 Yfirdráttarlán Íslendinga jafnhá í krónum og árið 2008 1.8.2012 08:32
Sjá næstu 50 fréttir
Marel lækkar um tæplega 3 prósent - Icelandair hækkar Marel lækkaði um 2,81 prósent í dag og er gengið nú komið í 138,5. Hinn 10. maí síðastliðinn var gengi bréfa félagsins 161. Gengi bréfa í fasteignafélaginu Regin hækkaði um 0,73 prósent í dag og er gengið nú 8,31. Gengi bréfa í Högum hækkaði um 0,55 prósent og er gengið nú 18,2. Gengi bréfa í Icelandair er nú 1,05 og er gengið nú 6,75. 1.8.2012 16:52
Friðrik Skúlason selur reksturinn Friðrik Skúlason hefur gert samning við fyrirtækið Commtouch® um sölu á Friðrik Skúlason ehf. Skrifað var undir samninginn í dag. Starfsemi Friðriks Skúlasonar verður áfram á Íslandi og með óbreyttu sniði. 1.8.2012 16:05
Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka Fasteignaverð í Bretlandi heldur áfram að lækka samkvæmt tölum sem breska hagstofan birti í morgun. Lækkunin í júlímánuði er sú hraðasta síðan 2009 en hún var 0,7 prósent í mánuðinum. Undanfarið ár hefur fasteignaverð á landsvísu í Bretlandi lækkað um 2,6 prósent. 1.8.2012 14:53
Iceland Express stundvísast síðustu tvær vikur Stundvísi íslensku flugfélaganna Icelandair, Iceland Express og WOW air var góð fyrri hluta sumars en síðastliðinn hálfan mánuði lækkaði hlutfall þeirra ferða sem voru á áætlun samanborið við vikurnar á undan. 1.8.2012 14:37
Commodore 64 er þrjátíu ára Þrjátíu ár voru liðin í síðasta mánuði frá því að Commodore 64 var sett á markað. Tölvan naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma og varð meðal annars til þess að þróa betur einkatölvumarkaðinn, eftir því sem kemur fram á vef BBC. Þá urðu tölvuleikir vinsælli með tilkomu tölvanna og fyrstu menn fóru að búa til tölvugerða tónlist heima hjá sér. Á alfræðivefnum Wikipedia segir að Commodore tölvurnar hafi selst í meira en þrjátíu milljónum eintaka. 1.8.2012 13:37
Marel lækkar skarplega Gengi hlutabréfa í Marel hefur lækkað skarplega í morgun, eða um 2,41 prósent. Gengi bréfa félagsins er nú 139. Gengi bréfa í Icelandair hefur hækkað um 0,15 prósent í morgun er gengi bréfa félagsins nú 6,69. Þá hefur gengið bréfa í fasteignafélaginu Regin hækkað um 0,36 prósent og stendur gengi bréfa félagsins nú í 8,28. 1.8.2012 12:48
Millistjórnandi Citigroup sýknaður Brian Stoker, fyrrverandi millistjórnandi hjá bandaríska fjárfestingabankanum Citigroup, var í gær sýknaður af ásökunum um að hafa selt fjárfestum skuldabréfavafninga (CDO) á sama tíma og hann vissi, eða mátti vita, að eignirnar væru ofmetnar. Málareksturinn gegn Stoker hófst í október í fyrra þegar ákærunni á hendur honum var þinglýst. 1.8.2012 09:21
Man. Utd. hyggst safna 40 milljörðum á markaði Enska knattspyrnufélagið Manchester United hyggst safna 330 milljónum dala, jafnvirði um 40 milljörðum króna, með nýju hlutafé með skráningu á markað í New York í Bandaríkjunum. Hver hlutur verður seldur á bilinu 16 til 20 dali, að því er segir í skráningarlýsingu vegna útboðsins sem vitnað er til á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 1.8.2012 08:45
Danska krónan komin undir 20 krónur Danska krónan kostar nú undir 20 krónum en það hefur ekki gerst síðan á fyrrihluta ársins 2009. 1.8.2012 08:20
Hátt í 60.000 störf í boði í norska olíuiðnaðinum Hátt í 60.000 störf eru nú í boði innan norska olíuiðnaðarins. Sökum þessa hafa norsku olíufélögin ákveðið að opna sérstaka ráðningarskrifstofu í Kaupmannahöfn. 1.8.2012 06:37
Mikil aukning á nauðungarsölum fasteigna í Reykjavík Mikil aukning hefur orðið á nauðungarsölum fasteigna hjá Sýslumanninum í Reykjavík á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin er um 50%. 1.8.2012 08:53
Færeyingar ætla sér stóra hluti þegar norðurleiðin opnast Færeyingar ætla sér stóra hluti þegar siglingarleiðin yfir Norðurpólinn opnast ef marka má orð Kaj Leo Johannesen lögmanns Færeyja. 1.8.2012 06:42
Mál Roberts Tchenguiz fellt niður Dómstólar hafa ákveðið að mál bresku efnahagsbrotalögreglunnar SFO gegn íranska kaupsýslumanninum Robert Tchenguiz skuli fellt niður. 1.8.2012 05:00
Snjallsímar taka yfir - niðurhal eykst Algjör kúvending hefur orðið á farsímanotkun hér á landi að undanförnu þar sem gagnaniðurhal hefur margfaldast. Þrátt fyrir það erum við nokkru á eftir Norðurlöndunum, segir framkvæmdastjóri Nova. Gríðarlega hröð sala á vinsælum snjallsímum á heimsvísu hefur haft afgerandi áhrif á farsímanotkun. 31.7.2012 18:30
Atvinnulausum í Evrópu fjölgaði um tvær milljónir á einu ári Meðalatvinnuleysi í Evrópu er nú í hæstu hæðum samkvæmt tilkynningu sem hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, birti í morgun. Atvinnuleysi mælist nú 11,2 prósent, svipað og í maí mánuði, en atvinnulausum í Evrópu hefur fjölgað um tvær milljónir manna á einu ári, en í júní í fyrra mældist meðalatvinnuleysi í Evrópu 10,4 prósent. 31.7.2012 17:20
Tekjuskattur hækkar ekki - staða barnafólks verður bætt Tekjuskattur mun ekki hækka á næsta ári, segir Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra í samtali við Vísi. Hún kynnti drög að fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár fyrir ríkisstjórninni í morgun. Aðspurð um það hvort einhverjar skattahækkanir verði í frumvarpinu segist hún ekki geta tjáð sig um frumvarpið í smáatriðum fyrr en 11. september næstkomandi. Þá verður Alþingi tekið til starfa að nýju eftir sumarleyfi. "Hins vegar höfum við gert samkomulag í tengslum við kjarasamninga um að tekjuskattur hækki ekki og við stöndum við alla gerða samninga,“ segir hún máli sínu til stuðnings. 31.7.2012 16:35
Uppbyggingin á Grímsstöðum kosti 16,2 milljarða Félagið Zhongkun Grímsstaðir ehf., sem er í eigu kínverska fjárfestisins Huang Nubo, hefur lýst yfir áhuga á uppbyggingu ferðamennsku á Grímsstöðum á Fjöllum, en samkvæmt umsókn félagsins til nefndar á vegum stjórnvalda er gert ráð fyrir að kostnaður við uppbyggingu á Grímsstöðum verði um 16,2 milljarðar íslenskra króna á næstu fimm árum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef iðnaðarráðuneytisins. 31.7.2012 14:53
Stoðir selja 60% hlut í TM Stoðir hf. hafa samið um sölu á 60% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) til hóps lífeyrissjóða og annarra innlendra fjárfesta. Kaupendur eru meðal annars Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stafir lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Sjóður 10 á vegum Íslandssjóða, auk fjárfesta á vegum VÍB - Eignastýringar Íslandsbanka, Virðingar og Auðar Capital. 31.7.2012 14:09
Fjárlagafrumvarpið kynnt í ríkisstjórn Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra kynnti drög að fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár á ríkisstjórnarfundi í morgun. Vinnan við fjárlagafrumvarpið er langt komin, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur bæði úr forsætisráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Fjárlagafrumvarpið verður lagt fram í upphafi þings, eða annan þriðjudag í september. Það er nokkru fyrr en vanalega, því yfirleitt er frumvarpið kynnt 1. október. 31.7.2012 13:53
Ríkisstjórnin skipar starfshóp til að fara yfir mál Huangs Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa hóp ráðherra og stafsmanna ráðuneyta til að fara yfir mál Huang Nubos og fyrirhugaða leigu hans á Grímsstöðum á fjöllum. Að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra mun hópurinn mynda afstöðu ríkisstjórnarinnar til málsins enda hafi engar óafturkræfar ákvarðanir verið teknar um fyrirhugaðar framkvæmdir Nubos á landinu. Hópurinn þarf ekki að skila niðurstöðu innan ákveðins tíma en mun taka til starfa eins fljótt og auðið er. 31.7.2012 12:01
Málið gegn Robert látið niður falla Yfirréttur (e. High court) í Englandi hefur ákveðið að láta mál Roberts Tchenguiz niður falla, en í síðasta mánuði var mál bróður hans Roberts látið niður falla. Breska blaðið Financial Times greinir frá þessu. 31.7.2012 11:52
Ingibjörg Ásta ráðin sölu- og markaðsstjóri Keldunnar Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem sölu- og markaðsstjóri hjá Keldunni. Um nýtt starf er að ræða og mun Ingibjörg m.a. sjá um mótun framtíðarstefnu félagsins í sölu- og markaðsmálum, markaðssetningu á vörum og þjónustu þess sem og umsjón núverandi viðskiptatengsla og öflun nýrra, að því er segir í tilkynningu frá Keldunni. Ingibjörg starfaði síðast sem markaðsstjóri Pennans og Eymundsson og gegndi áður stöðu forstöðumanns markaðssviðs hjá Sparisjóðnum á árunum 2004-2009. 31.7.2012 11:36
Landsbankinn selur hlut sinn í Alur álvinnslu Landsbankinn hf. hefur selt 9,88% eignarhlut bankans í félaginu Alur álvinnsla hf., sem á og rekur endurvinnslu fyrir álgjall í Helguvík á Reykjanesi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans. 31.7.2012 10:36
UBS tapaði 42,2 milljörðum á Facebook Svissneski risabankinn UBS tapaði 349 milljónum dala, jafnvirði um 42,2 milljörðum króna, á viðskiptum og lánveitingum til kaupa á hlutabréfum í Facebook. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC segir að hagnaður bankans á öðrum ársfjórðungi þessa árs hafi numið 425 milljónum dala, eða litlu meira en sem nam tapinu vegna Facebook bréfanna. 31.7.2012 10:01
AGK, lið Ólafs Stefánssonar, er gjaldþrota AGK, handboltaliðið sem Ólafur Stefánsson og fleiri Íslendingar leika með í Kaupmannahöfn, er gjaldþrota. 31.7.2012 09:26
Holland er „miðlunarríki“ Hollenska hagkerfið byggist ekki síst á þeirri sérþekkingu sem byggst hefur upp í kringum vörumiðlun, m.a. í gegnum stórar hafnir í landinu. 31.7.2012 08:56
Sjórán kosta neytendur yfir 200 milljarða í hækkuðu vöruverði Reikna má með að starfsemi sjóræningja undan ströndum Sómalíu muni kosta neytendur í heiminum í ár yfir 200 milljarða króna í hækkuðu vöruverði. 31.7.2012 06:20
Vilja frjálsar handfæraveiðar á ný Í ljósi þess að sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka þorskkvóta næsta árs, skorar stjórn Samtaka íslenskra fiskimanna á stjórnvöld að nýta þetta tækifæri til þess að efna kosningaloforð sitt um frjálsar handfæraveiðar. 31.7.2012 12:15
Aldarafmæli Friedmanns minnst Þess er minnst í dag að einn af þekktustu hagfræðingum tuttugustu aldarinnar, Milton Friedman, hefði orðið hundrað ára gamall ef hann hefði lifað. Friedman var jafnan talinn til hóps Chicago hagfræðinga, en þeir áttu það sameiginlegt að leggja áherslu á frjálst markaðshagkerfi. Á Wikipedia kemur fram að Friedman er talinn vera næstáhrifamesti hagfræðingur síðustu aldar á eftir John Maynard Keynes. Friedman var einn af efnahagsráðgjöfum Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og hafði mikil áhrif á efnahagsstefnu Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. 31.7.2012 09:54
Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á áli er komið niður í 1.886 dollara á tonnið en það hefur stöðugt farið lækkandi frá því í febrúar s.l. þegar það stóð í um 2.350 dollurum á tonnið. Hefur verðið því lækkað um 20% á þessum tímabili. 31.7.2012 08:36
Rúmlega þriðjungur Evrópuríkja telst vera í kreppu Af 31 ríki í Evrópu sem skila inn upplýsingum um landsframleiðslu sína til Hagstofu Evrópu teljast 13 þeirra vera í kreppu samkvæmt alþjóðlegum viðmiðunum. 31.7.2012 06:25
Seðlabankinn tvöfaldar gjaldeyriskaup sín Seðlabankinn hefur ákveðið að nýta sér styrkingu á gengi krónunnar frá því í vor til að tvöfalda gjaldeyriskaup sín á millibankamarkaðinum. 31.7.2012 06:23
88 kaupsamningum þinglýst Alls var 88 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 20. til 26. júlí. Á vef Þjóðskrár segir að 64 samningar hafi verið um eignir í fjölbýli, átján um sérbýli og sex um aðrar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarvelta var 2.542 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,9 milljónir króna. 31.7.2012 04:00
Apple kynnir nýja vörulínu í september Líklegt þykir að tæknirisinn Apple muni kynna nýja vörulínu í september. Þá er talið nýr iPhone snjallsími verði opinberaður, sem og minni útgáfa af iPad spjaldtölvunni. 30.7.2012 21:00
Munu fljúga allt árið til Húsavíkur Flugfélagið Ernir hefur tekið þá ákvörðun að halda flugi til Húsavíkur áfram allt árið um kring og munu bókanir í flugin í vetur hefjast í dag 30. Júlí. Áætlunarflug hófst á Húsavík 15. Apríl síðastliðinn eftir um 14 ára bið heimamanna eftir reglubundnu áætlunarflugi og var um tilraunaverkefni að ræða út september sama ár. Forsvarsmenn Ernis segja að viðtökurnar við fluginu hafi verið það góðar að forsendur séu til að halda því áfram. 30.7.2012 11:49
Gengi krónunnar styrkist áfram, evran undir 150 krónum Ekkert lát er á styrkingu krónunnar þessa dagana og hefur gengið styrkst um hátt í 10% frá því það var hvað lægst á árinu í apríl s.l. 30.7.2012 06:41
HSBC aðstoðaði efnaða Breta við tugmilljarða skattsvik Rannsókn á vegum ríkisskattstjóra Bretlands hefur leitt í ljós skattsvik efnaðara Breta upp á um 200 milljónir punda eða um 40 milljarða króna en þessir Bretar áttu bankareikninga hjá einkabankaþjónustu HSBC bankans í Sviss. 30.7.2012 06:30
Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum niður í 6,5% Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til 10 ára eru komnir niður í rúmlega 6,5%. Hafa vextirnir því lækkað um meir en eitt prósentustig frá því í síðustu viku. 30.7.2012 10:59
Vextir á ítölskum ríkisskuldabréfum undir 6% Vextir á ítölskum ríkisskuldabréfum til 10 ára fóru niður fyrir 6% í útboði í morgun eða í 5,96%. Þetta er nokkru lægra en í sambærilegu útboði í síðasta mánuði þegar vextirnir voru 6,19%. 30.7.2012 10:14
Fréttatíminn er til sölu Vikublaðið Fréttatíminn er til sölu. DV greinir frá þessu í dag og þar segir að söluverðið sé á bilinu 65 til 70 milljónir kr. 30.7.2012 10:03
Spáir því að verðbólgan haldist í lægri kantinum Greining Arion banka spáir því að verðbólgan haldist í lægri kantinum næstu þrjá mánuðina eða á bilinu 4,4% til 4,6%. 30.7.2012 09:21
Berlín gæti skuldað smábæ þúsundir milljarða evra Nær fimmhundruð ára gamalt skuldabréf er komið í leitirnar en samkvæmt því skuldar Berlínarborg þýska þorpinu Mittenwalde 122 milljónir evra eða um 18 milljarða króna. 30.7.2012 06:44
Minnisblaðið var kynning á tilhögun félags Nubo Minnisblað, sem lagt var fyrir ríkisstjórn og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að hafi falið í sér ívilnun fyrir Huang Nubo, var í raun kynning á ákvörðun sem þegar hafði verið tekin í efnahagsráðuneytinu um tilhögun íslensks félags í eigu Kínverjans. Þetta kemur fram í minnisblaðinu sem fréttastofan hefur undir höndum. 29.7.2012 19:36
Slitastjórn Kaupþings stefnir vátryggingafélögum Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt hópi vátryggingafyrirtækja í Bretlandi til að fá framlengda samninga vegna ábyrgðartryggingar stjórnenda bankans. Milljarða króna hagsmunir gætu verið í húfi vegna þessara samninga. 29.7.2012 19:25
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf