Sjórán kosta neytendur yfir 200 milljarða í hækkuðu vöruverði 31. júlí 2012 06:20
Reikna má með að starfsemi sjóræningja undan ströndum Sómalíu muni kosta neytendur í heiminum í ár yfir 200 milljarða króna í hækkuðu vöruverði. Þetta eru niðurstöður útreikninga greiningarfyrirtækisins Seaintels sem birtir eru í vikulegu fréttablaði þess. Um er að ræða hækkun á vöruverði vegna aukins kostnaðar á fraktflutningum meðfram ströndum Sómalíu en þar er að finna einhverja fjölförnustu sjóleið í heiminum enda liggur hún til og frá Súez skurðinum. Fraktin er orðin dýrari en áður vegna þess að þau skipafélög sem sinna henni þurfa að greiða stöðugt hærri tryggingargjöld vegna sjóræningjanna. Þar að auki þurfa félögin að greiða aukatryggingar til að standa straum af lausnargjaldi fyrir þær áhafnir sínar sem lenda í klóm sjóræningjanna þegar þeir ræna flutningaskipum. Þá er ótalin sá kostnaður sem skapast þegar skipafélögin ákveða að sigla framhjá þessari siglingaleið þar sem hún er orðin of hættuleg að þeirra mati. Þá þarf yfirleitt að sigla skipunum fyrir Góðrarvonarhöfða á syðsta odda Afríku en slíkt bætir vikum við siglinguna með tilheyrandi kostnaði.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira