Fleiri fréttir

Erfitt að lýsa yfir endalokum kreppunnar

Þó Ísland sé í ákveðnu skjóli eins og stendur er erfitt að lýsa því yfir að kreppunni sé lokið. Þetta segir Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands, í viðtali í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.

Össur gat ekki efnt skuldbindingar vegna haftanna

Stoðtækjaframleiðandinn Össur gat ekki efnt kaupréttarsamning við Makhesh Mansukani framkvæmdastjóra fyrirtækisins í Bandaríkjunum vegna gjaldeyrishaftanna. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir í samtali við Morgunblaðið að til þess að leysa málið hafi verið farin Fjallabaksleið. Jón segir þetta varpa ljósi á fáránleika gjaldeyrishaftanna og að ótækt sé fyrir alþjóðlegt fyrirtæki að starfa undir höftunum. Áður en höftum var komið á gerði Össur kaupréttarsamning við Mansukani en vegna haftanna var ekki hægt að uppfylla samninginn og afhenda honum hlutabréfin á erlendri grundu. Því var ákveðið að greiða honum hagnaðinn af samningnum, sem nemur 200 þúsund dollurum, jafnvirði 25 milljóna króna.

Starfsmenn fleiri banka gegndu lykilhlutverki í Libor-hneykslinu

Nýjar upplýsingar úr dómsskjölum sem lögð hafa verið fram benda til þess að hópar verðbréfamiðlara frá þremur evrópskum bönkum hafi gegnt lykilhlutverki í markaðsmisnotkun með svokallaða LIBOR-vexti, millibankavexti á fjármálamarkaði.

Ætla að vernda evruna

Forseti Frakklands, Francois Hollande, og Angela Merkel, Þýskalandskanslari, sögðu í dag að þau myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda evruna.

4 kílómetra lögn að Reykholti

Framkvæmdir við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði verða boðnar út nú um helgina. Eftir ítarlega leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki, hefur verið ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Þá verður byggð dælu- og stjórnstöð í grennd við vatnstökustaðinn.

Facebook í frjálsu falli

Hlutabréf í samskiptamiðlinum Facebook voru í frjálsu falli við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í New York í dag. Virði hlutabréfanna féll um 16 prósent og standa þau nú í 22.37 dollurum á hvern hlut eða það sem nemur rúmum 2.700 íslenskum krónum.

Atvinnuleysi eykst á Spáni

Atvinnuleysi á Spáni heldur áfram að aukast. Samkvæmt nýjustu tölum eru 5.7 milljón Spánverjar nú atvinnulausir. Þetta þýðir að einn af hverjum fjórum Spánverjum á vinnufærum aldri leitar nú atvinnu.

Íslenskt efnahagslíf er á blússandi siglingu

Þær hagstærðir sem birtar voru í morgun benda til þess að íslenska hagkerfið sé á blússandi siglingu. Verðbólgan lækkar mikið, langtímaatvinnulausum fækkar verulega og gjaldþrotum fyrirtækja fækkar töluvert.

Hafnarfjörður fellur frá forkaupsrétti í HS Veitum

Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur ákveðið að nýta ekki forkaupsrétt í HS Veitum. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í gær eftir að erindi frá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, með ósk um að bæjarráð félli frá forkaupsréttinum, var lagt fram.

Atvinnuleysið mældist í 5,2% í júní

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í júní s.l. að jafnaði 192.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 182.400 starfandi og 10.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,8%, hlutfall starfandi 81,3% og atvinnuleysi var 5,2%.

Framleiðsluverð lækkaði

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% í síðasta mánuði og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Tíu prósentum minna í vexti

Íslensk heimili greiddu rúmlega tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum árið 2011 en árið á undan. Þetta kemur fram í úttekt fjármálaráðuneytisins.

Allt gert til að bjarga evrunni

Mario Draghi, yfirmaður Seðlabanka Evrópusambandsins, segir að bankinn muni gera allt sem í hans valdi stendur til að bjarga evrunni úr þeim vanda sem nú steðjar að.

Baldur og Karítas eiga 861 milljón

Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, og Karítas Kvaran, eiginkona hans, eiga 861 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins á eignum 170 Íslendinga. Viðskiptablaðið reiknaði eignir þeirra út frá skattskrám sem birtar voru í gær.

Sex buðu í Plastprent

Sex aðilar sendu inn tilboð í fyrirtækið Plastprent sem selt var Kvos, móðurfélagi Odda, á dögunum. Fyrirtækið var áður í eigu Framtakssjóðsins.

Ríkisskattstjóri athugaði rútubílstjóra

Starfsmenn ríkisskattstjóra voru í lögreglufylgd við Þingvallavatn í morgun að taka út hvort rútubifreiðastjórar hefðu tilskilin leyfi til aksturs. Úttektin var þáttur í átakinu Leggur þú þitt af mörkum sem ríkisskattstjóri vinnur í samvinnu við SA og ASÍ.

Óvissa um hagnað Facebook eftir slæmt gengi Zynga

Uppgjör bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga fyrir síðasta ársfjórðung var neikvætt. Margir óttast að slæmt gengi fyrirtækisins gefi til kynna að uppgjör samskiptamiðilsins Facebook verði einnig neikvætt en rekstur fyrirtækjanna er nátengdur.

Stjörnur og áhrifamenn fjárfesta í Stamped

Mikið hefur verið rætt um smáforritið Stamped síðustu vikur. Í dag var nýjasta útgáfa þess kynnt en um leið var opinberað hverjir hafa fjárfest í þessum litla en þó ört stækkandi samskiptamiðli.

Skúli Mogensen er ríkasti Íslendingurinn

Skúli Mogensen og eiginkona hans, Margrét Ásgeirsdóttir, eru ríkustu Íslendingarnir samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins. Blaðið lagðist yfir álagningaskrár ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær. Hrein eign þeirra hjóna, það eru eignir umfram skuldir, nemur um 7,5 milljörðum króna samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær.

Samskiptamiðlar slíta barnsskónum og málin flækjast

Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að tekjur samskiptamiðla á þessu ári komi til með að nema tæpum 17 milljörðum dollara, eða það sem nemur 2.114 milljörðum íslenskra króna. Helmingur upphæðarinnar kemur frá auglýsingatekjum.

Sigurður Sigurjónsson tekjuhæsti listamaðurinn

Sigurður Sigurjónsson leikari er tekjuhæsti listamaðurinn á síðasta ári, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Hann var með 1253 þúsund krónur í mánaðalaun samkvæmt blaðinu. Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, var í öðru sæti með tæpar 1100 þúsund krónur. Magnús

Útilokar ekki að fleiri verslanir verði opnaðar

Jóhannes Jónsson kaupmaður útilokar ekki að hann muni opna fleiri en eina matvöruverslun. Fyrsta Iceland verslunin opnar á laugardaginn og verður hún staðsett í Engihjalla í Kópavogi. Þá stendur til að opna Netverslun.

Björn tekjuhæsti forstjóri í ríkisfyrirtæki

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, er hæstur á lista Frjálsrar verslunar yfir launahæstu embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja. Hann er með 1590 þúsund krónur á mánuði samkvæmt blaðinu. Gnnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er með 1517 þúsund krónur. Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Hafnarfirði, er síðan þriðji á listanum með 1468 þúsund krónur og Guðný Aðalsteinsdóttir deildarstjóri skipulagssviðs Reykjavíkur er fjórða með 1461 þúsund krónur. Páll Magnússon útvarpsstjóri er fimmti á listanum með 1449 þúsund krónur.

Villa í lista yfir skattakónga - Guðbjörg á meðal fimm efstu

Villa reyndist vera í lista sem Ríkisskattstjóri sendi fjölmiðlum í morgun yfir þá sem greiddu hæstu opinberu gjöldin í fyrra. Villan fólst í því að það vantaði nokkra menn á listann. Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda, er engu að síður skattakóngur annað árið í röð og Guðbjörg Astrid Skúladóttir er í öðru sæti.

Tæpir 230 milljarðar greiddir í skatta

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Samanlögð álagningin nemur 228 milljörðum króna og hækkar um 13,5% frá fyrra ári. Til samanburðar jókst álagning þessi um 1,4% milli áranna 2010 og 2011.

Huang vill enn reisa hótel í Reykjavík

Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo stefnir enn að því að reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Huang lýsti yfir áhuga á slíkri framkvæmd á síðasta ári þegar hann kynnti hugmyndir sínar um uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum.

Þorsteinn Hjaltested skattakóngur Íslands

Þorsteinn Hjaltested landeigandi á Vatnsenda er skattakóngur á höfuðborgarsvæðinu árið 2011. Hann greiddi samtals rúmar 185 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári. Guðbjörg Astrid Skúladóttir, er næstefst, en hún greiddi 140 milljónir tæpar. Poul Jansen, kemur næstur með tæpar 114 milljónir. Listi yfir þá sem greiða mest má sjá hér að neðan.

Sjá næstu 50 fréttir