Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðbjartur: Við þolum þetta "Við þolum ekki mikið meira," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Í fréttum í morgun kom fram að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hér á landi var sá næst mesti í öllum OECD ríkjunum. 11.7.2012 10:17
Þýskir vextir aldrei verið lægri í sögunni Vextir á þýskum ríkisskuldabréfum til 10 ára hafa aldrei verið lægri í sögunni en í morgun voru þeir komnir niður í rétt rúmlega 1,3%. 11.7.2012 10:06
Jón Sigurðsson kominn til GAMMA Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, hóf nýlega störf hjá ráðgjafafyrirtækinu GAMMA, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Á vefsíðu GAMMA kemur fram að Jón hóf störf hjá Stoðum, sem áður hét FL Group, árið 2005. Hann byrjaði starfsferil sinn þar sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs en síðar varð hann aðstoðarforstjóri og svo forstjóri. Síðustu tvö árin hefur Jón svo rekið eigið ráðgjafafyrirtæki. Á undanförnum árum hefur Jón setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Tryggingamiðstöðinni, Icelandair Group, Glitni og Refresco. 11.7.2012 09:41
Kína opnar dyrnar fyrir vogunarsjóðum Stjórnvöld í Kína hafa gefið alþjóðlegum vogunarsjóðum leyfi til að taka við fjármunum frá Kínverjum og ávaxta á utan Kína. 11.7.2012 09:25
OECD: Ísland og Írland skáru mest niður í heilbrigðismálum Írland og Ísland voru þau lönd innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála drógust mest saman árið 2010 eftir töluverðan árlegan vöxt frá aldamótum og fram til 2009. 11.7.2012 06:20
Spánverjar hækka virðisaukaskatt Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy tilkynntu í morgun um þriggja prósenta hækkun á virðisaukaskatti í landinu. Aðgerðin er hluti af aðhaldsaðgerðum Spánverja sem ætla sér að skera niður fjárlög landsins um 65 milljarða evra. Þá á söluskattur að hækka auk þess sem sveitarstjórnum verður gert að skera niður um þrjá og hálfan milljarð evra. Aðgerðirnar eru hluti af samkomulagi sem Spánverjar gerðu við ríkin á evrusvæðinu um 30 milljarða evra lán til spænskra banka. 11.7.2012 09:19
Flestir innflytjendur streyma til Noregs Noregur er það land innan OECD þar sem flestir innflytjendur komu til á árunum 2009 og 2010 mælt sem hlutfall af íbúum landsins. 11.7.2012 07:44
Lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna áfram á neikvæðum horfum Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna sem Aaa en einkunnin er áfram á neikvæðum horfum. 11.7.2012 06:43
Arabískur milljarðamæringur kaupir Nottingham Forest Enska fótboltaliðið Nottingham Forest er komið í eigu arabíska milljarðamæringsins Fawaz Al Hasawi sem búsettur er í Kúwæt. Hasawi tilheyrir einni af auðugustu fjölskyldum landsins. 11.7.2012 06:42
Óverðtryggð lán valda óvinsældum Íbúðalánasjóðs Ástæðan fyrir því að Íbúðalánasjóður hefur lánað um 45% færri lán í ár miðað við sama tíma í fyrra liggur aðallega í því að bankinn hefur ekki boðið upp á óverðtryggð lán. 10.7.2012 16:45
Afsalar sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu Bob Diamond, fyrrverandi forstjóri breska bankans Barclays, mun þiggja 400 milljónir króna í laun fyrir árið. Hann mun hins vegar afsala sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu sem hann hafði áunnið sér fyrir störf sín í bankanum. Diamond sagði upp störfum hjá bankanum á dögunum vegna vaxtahneykslis sem skekið hefur Bretland. 10.7.2012 13:49
Íbúðalánasjóður lánar minna Íbúðalánasjóður hefur lánað mun minna til fasteignakaupa það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir 20% meiri veltu á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. 10.7.2012 12:53
Olíuverkfallið í Noregi stöðvað með neyðarlögum Norska stjórnin greip til neyðarlaga seint í gærkvöldi til að stöðva verkfallið sem verið hefur meðal norskra olíustarfsmanna undanfarnar tvær vikur og koma í veg fyrir boðað verkbann olíuframleiðenda landsins sem átti að hefjast um miðnættið. 10.7.2012 06:30
Guðmundur í Nesi með 450 milljóna farm eftir eina veiðiferð Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa. 10.7.2012 06:27
Leigusamningum fækkar milli ára Þinglýstum leigusamningum um íbúðarhúsnæði á landinu öllu fækkaði um rúm 4% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. 10.7.2012 10:49
Danske Bank dottinn af Fortune 500 listanum Danske Bank er dottinn af hinum virðingarmikla Fortune 500 lista sem nær yfir 500 stærstu fyrirtæki heimsins. 10.7.2012 09:40
Lítilsháttar tap á rekstri Alcoa á öðrum ársfjórðungi Bandaríski álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, skilaði lítilsháttar tapi, eða tveimur milljónum dollara, á öðrum ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var 322 milljóna dollara hagnaður af rekstri Alcoa á sama tímabili í fyrra. 10.7.2012 07:34
Vodafone senn skráð á markað Vodafone á Íslandi hefur samið við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina. Þá mun Íslandsbanki annast sölu á bréfum Framtakssjóðs Íslands í Vodafone en sjóðurinn er aðaleigandi fyrirtækisins í dag. 10.7.2012 07:15
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað nokkuð á mörkuðum í morgun eftir að ljóst varð að norsk stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir að olíuframleiðsla landsins stöðvaðist seint í gærkvöldi. 10.7.2012 06:45
Spænskir bankar fá 30 milljarða evra fyrir mánaðarmótin Fjármálaráðherrar evrusvæðisins samþykktu í gærkvöldi að veita 30 milljörðum evra í neyðaraðstoð til spænskra banka fyrir næstu mánaðarmót. 10.7.2012 06:41
Enn dregur úr lánum hjá Íbúðalánasjóði milli ára Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 1,9 milljörðum króna í júní en þar af voru tæpir 1,3 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í júní 2011 um 1,7 milljörðum króna. Meðalútlán almennra lána voru um 10,3 milljónir króna í júní. 10.7.2012 06:37
Reglurnar þurfa að vera alþjóðlegar Pétur Blöndal hefur lagt fram svipaðar tillögur á Íslandi og samþykktar voru um helgina á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Tillögurnar miða að því að koma í veg fyrir hringferla peninga með raðeignarhaldi og innistæðulausa eignabólu fyrirtækja. Pétur segir markmið tillagnanna ekki ná fram að ganga nema þær séu samræmdar meðal allra landa. 9.7.2012 12:15
Nova má ekki auglýsa ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímana Símafyrirtækinu Nova hefur verið bannað að auglýsa að fyrirtækið bjóði ódýrustu, vinsælustu og snjöllustu farsímana. Neytendastofa telur að Nova hafi ekki sannað fyrrgreindar fullyrðingar. Síminn kærði fullyrðingarnar til Neytendastofu eftir að Nova dreifði auglýsingablaði með fyrrgreindum fullyrðingum. 9.7.2012 15:37
Norðmenn stöðva olíuframleiðslu í vikunni Olíu- og gasframleiðsla mun stöðvast í Noregi í vikunni. Ástæðan er sú að hart er deilt um eftirlaunamál og virðist lausn á deilunni ekki vera í sjónmáli. 9.7.2012 11:25
Liborvaxtasvindlið hafði áhrif á Íslandi Vaxtasvindlið sem komst í hámæli í Bretlandi í síðustu viku hafði bein áhrif á Íslandi á margan hátt. Einna helst skipti það máli fyrir íslenska neytendur með gengistryggð lán. 9.7.2012 11:03
Vodafone undirbýr skráningu í Kauphöllina Vodafone á Íslandi hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í Kauphöllina á Íslandi. 9.7.2012 10:47
Fasteignamarkaðurinn heldur að róast Heldur hefur róast um á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í upphafi mánaðarins eins og yfirleitt gerist þegar helsti sumarleyfatíma landsmanna fer í gang. 9.7.2012 11:06
Frönsk leikfangakeðja vill kaupa Hamley's Frönsk leikfangakeðja er í samningaviðræðum um að kaupa hinar sögufrægu bresku leikfangaverslanir Hamley's af slitastjórn Landsbankans fyrir 60 milljónir punda, jafnvirði 12 milljarða króna. Hamley's var áður í eigu Baugs Group áður en fyrirtækið fór í þrot. 9.7.2012 10:05
Vextir á spænskum skuldabréfum aftur yfir 7% markið Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til 10 ára fóru aftur yfir 7% markið í morgun. Vextir á samsvarandi ítölskum bréfum hækkuðu einnig og standa í 6,1% þessa stundina. 9.7.2012 10:01
Fleiri bankahneyksli vegna vaxtasvindls í farvatninu Fleiri bankar en Barclays munu liggja undir grun um vaxtasvindl. Í blaðinu The Guardian segir að hátt í 20 bankar blandist inn í rannsókn málsins sem unnin er af bæði breska og bandaríska fjármálaeftirlitinu. 9.7.2012 09:01
Farþegum Icelandair fjölgaði um 15% milli ára í júní Icelandair flutti 246 þúsund farþega í millilandaflugi í júní og voru þeir 15% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning var 15% á milli ára. 9.7.2012 08:04
Niðursveifla á mörkuðum Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Nikkei vísitalan í Tókýó lækkaði um 1,4% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 1,7%. 9.7.2012 06:58
Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 211 milljarða í júní Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði verulega í júní eða um rúmlega 211 milljarða króna miðað við stöðuna í maí. 9.7.2012 06:41
Roubini telur að Finnar yfirgefi evruna á undan Grikkjum Hagfræðingurinn Nouriel Roubini telur að Finnland muni yfirgefa evrusamstarfið á undan Grikklandi. 9.7.2012 06:29
Kreppan búin en of mikið atvinnuleysi og of lítil fjárfesting Nokkrir mælikvarðar eru notaðir til að meta hvort kreppur eða yfirsveiflur séu yfirstaðnar. Samkvæmt þeim flestum er kreppan búin á Íslandi og eru fræðimenn og hagfræðingar í atvinnulífinu sammála um þetta. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands gerir hins vegar fyrirvara við slíkar fullyrðingar og vísar meðal annars í að atvinnuleysi sé enn of hátt hér á landi. 8.7.2012 14:22
Apple endurbætir nýjasta iPad Talið er að tæknirisinn Apple undirbúi nú endurbætta útgáfu af þriðju kynslóð iPad spjaldtölvunnar sem nýlega kom á markað. Notendur hafa margir kvartað yfir því að tækið hitni afar mikið og nú leitast Apple við að lækka hitamyndunina. 7.7.2012 22:00
Amazon þróar snjallsíma Talið er að vefverslunarrisinn Amazon sé nú að þróa sinn eigin snjallsíma. Fyrirtækið, sem lengst af seldi rafbækur, og það með góðum árangri, hefur á síðustu árum aukið umsvif sín verulega á raftækjamarkaðinum með vörum eins og Kindle lesbrettinu og Kindle Fire spjaldtölvunni. 7.7.2012 10:48
Einkennilegasti dúett allra tíma? - Warren Buffett og Jon Bon Jovi Einkennilegasti dúett í tónlistar- og viðskiptasögunni hefur mögulega verið myndaður. Það gerðist á árlegri ráðstefnu Forbes tímaritsins þar sem kastljósinu er beint að líknarstarfsemi og mannúðarmálum. Þá tóku fjárfestirinn Warren Buffett, sem almennt er álitinn meðal virtustu fjárfesta heimsins, og rokksöngvarinn Jon Bon Jovi, sem mörgum finnst skemmtilegur tónlistarmaður, lagið á blaðamannafundi. 7.7.2012 10:05
Ísland kannski fyrirmynd fyrir Breta Rannsóknarnefnd Alþingis og viðbrögð Íslendinga við hruninu árið 2008 geta orðið ákveðin fyrirmynd fyrir breska þingmenn sem hafa síðustu daga krafist þess að bankakerfi landsins verði rannsakað af óháðum aðila. Á þetta er bent í frétt The Financial Times. 6.7.2012 21:51
Bréf Icelandair hækkuðu Gengi bréfa Icelandair hækkaði um tæpt prósent í dag. Í lok dags er skráningargengi bréfanna 6,83 en velta dagsins var rúmar 56 milljónir með bréfin. 6.7.2012 21:23
Selja íslenskt hugvit fyrir milljarð Norðurál á Grundartanga hefur undirritað samning við íslenska verkfræðifyrirtækið Alu1 um heildarlausn á sérhæfðum framleiðslubúnaði fyrir skautsmiðju álversins. Upphæð samningsins er hátt í milljarð króna fyrir utan vsk., samkvæmt tilkynningu frá Norðuráli. 6.7.2012 15:46
Skuldabréfaútboði CCP lokið - 75 prósent umframeftirspurn Lokuðu útboði til fjárfesta á breytanlegum skuldabréfum útgefnum af CCP hf. lauk 4. júlí s.l. Í boði voru USD 15 milljónir og bárust áskriftir fyrir USD 26,3 milljónum eða rúmlega 75% umfram þá fjárhæð sem í boði var, að því er segir í tilkynningu frá CCP. Meðal kaupenda voru fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir. „Með hliðsjón af umframáskrift og mikilli þátttöku innlendra stofnanafjárfesta hefur stjórn CCP hf. ákveðið að nýta að fullu heimild frá hluthafafundi til að hækka útboðsfjárhæðina í USD 20 milljónir,“ að því er segir í tilkynningu frá CCP. 6.7.2012 14:46
Mikil umsvif á íbúðamarkaði Samtals var 490 kaupsamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í júní og nam veltan 14,9 milljörðum króna samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands og greiningadeild Íslandsbanka greinir frá. 6.7.2012 11:26
Arion banki hefði átt að skipta Högum upp í fleiri fyrirtæki Samkeppniseftirlitið telur að bankar hefðu átt að nýta betur tækifærið sem hrunið veitti til þess að skipta upp stórum, mikilvægum fyrirtækjum og fjölga með þeim hætti keppinautum á mörkuðum. Slíkt hefði stuðlað að aukinni samkeppni og þannig leitt til meiri hagsældar til lengri tíma litið og aukins ávinnings fyrir bankana heldur en skammtímaviðhorf um hærra söluandvirði stærri einingar. 6.7.2012 11:13
Umfang leikmannaviðskipta minna nú en í fyrra Knattspyrnufélög á heimsvísu hafa dregið mikið úr viðskiptum með leikmenn á undanförnum mánuðum miðað við árið á undan, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Tæplega 10 prósent færri leikmannasamningar vegna kaupa félaga á nýjum leikmönnum voru kláraðir á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við í fyrr. Upphæðirnar sem um ræðir féllu hins vegar um ríflega þriðjun, eða 34 prósent. Heildarupphæðin að baki 4.973 leikmannasamninga nam um 571 milljón dala, eða sem nemur ríflega 70 milljörðum króna, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC. Upplýsingarnar voru teknar saman í gegnum sérstakt kerfi á vegum FIFA, sem heldur utan um alla leikmannasamninga á heimsvísu, TMS (Transfer Matching System). 6.7.2012 10:12