Fleiri fréttir

Sláandi staðreyndir um samfélagslegan vanda Grikklands

Grikkland gengur nú í gegnum mestu efnahagserfiðleika í sögu landsins. Samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins BBC og Wall Street Journal, er það talið ráðast endanlega í dag, á fundi með hvort það tekst að afstýra gjaldþroti landsins.

Mætti til vinnu í morgun og fundaði með starfsfólki

Gunnar Þ. Andersen forstjóri fjármálaeftirlitsins kom til vinnu í morgun en hann hefur daginn í dag til að skila andmælum við ákvörðun stjórnar FME sem tilkynnti á föstudag að til standi að segja honum upp störfum.

Nýr framkvæmdastjóri hjá Fjarðaáli

Ingólfur Þór Ágústsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri kerskálaþjónustu Fjarðaáls. Hann mun stjórna starfsemi skautsmiðjunnar og leiða starf þeirra sem vinna að umhverfistæknimálum álversins.

Jafnt kynjahlutfall í stjórn Nýherja

Jafnræði er með kynjunum í stjórn Nýherja eftir að Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Reykjavíkur, var kjörin nýr varamaður í stjórnina á aðalfundi félagsins.

Jafnt kynjahlutfall í stjórn Nýherja

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Reykjavíkur, var kjörin nýr varamaður í stjórn Nýherja á aðalfundi félagsins og þarmeð er orðið jafnt kynjahlutfall í stjórn félagsins. Helga er þriðja konan sem kemur að stjórnarsetu hjá Nýherja. Hildur Dungal, lögfræðingur, og Marta Kristín Lárusdóttir, lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, sitja í aðalstjórn félagsins ásamt Árna Vilhjálmssyni, Benedikt Jóhannessyni, framkvæmdastjóra Talnakönnunar, og Guðmundi Jóh. Jónssyni, framkvæmdastjóra Varðar. Aðalastjórn Nýherja var sjálfkjörin á aðalfundi félagsins, sem fram fór á föstudag.

Atvinnuleysið var 7,1% að meðaltali í fyrra

Í fyrra voru 180.000 á vinnumarkaði eða 80,4% atvinnuþátttaka. Fjöldi starfandi var 167.300 hlutfall þeirra af vinnuafli var 74,7%. Á árinu voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins.

Mikil umframeftirspurn í skuldabréfaútboði Arion banka

Arion banki hf. lauk á föstudag fyrsta útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum. Í boði voru 2,5 milljarðar kr. að nafnvirði af skuldabréfaflokknum Arion CBI 34. Í heild bárust tilboð upp á samtals 8.680 milljónir kr. og því var umframeftirspurn ríflega 6 milljarðar.

Mesti viðskiptahalli í sögu Japans

Viðskiptahalli Japan reyndist yfir 2.100 milljarðar króna í janúar og hefur aldrei verið meiri í einstökum mánuði í sögu landsins.

Stjórnarformaður FME segir Gunnar ekki vera rekinn

Stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) tilkynnti Gunnari Þ. Andersen, forstjóra stofnunarinnar, á föstudag að til standi að segja honum upp störfum. Gunnar hefur gegnt starfi forstjóra FME frá því í apríl 2009 en hann hefur frest til dagsins í dag til að andmæla ákvörðun stjórnarinnar.

Bensínverð gæti hækkað enn meira ef átök brjótast út í Íran

Sú ákvörðun Írana að setja sölubann á olíu til Bretlands og Frakklands mun líklegast ekki hafa áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu til skamms tíma, segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, í samtali við Vísi. Almennur ótti við að það skelli á strið vofir þó yfir.

Segja uppsögn Gunnars óvægna aðför að honum

Uppsögn forstjóra Fjármálaeftirlitsins Gunnars Þ. Andersen er óvægin aðför að honum, segir stjórn Félags forstöðumanna ríkisstofnana í ályktun sem hún sendi fjölmiðlum rétt í þessu. Stjórnin krefst þess að forstöðumenn ríkisstofnana njóti þeirra lögbundnu réttinda að farið sé að stjórnsýslulögum og starfsmannalögum þegar fjallað er um störf þeirra á vegum stjórnvalda.

Þjóðverjar þrýsta á um þjóðargjaldþrot Grikkja

Þjóðverjar eru farnir að þrýsta á að Grikkland lýsi yfir þjóðargjaldþroti og jafnframt er gert ráð fyrir þeim möguleika að ríkið segji skilið við evrusamstarfið. Frá þessu er greint á fréttavef Daily Telegraph.

"Þjónkun við þá aðila sem helst óttast FME"

Gunnar Þ. Andersen segir að sér sé ekki kunnugt um að nokkur annars starfsmaður eða embættismaður hins opinbera á Íslandi "hafi mátt sæta öðrum eins sí endurteknum og útvíkkuðum rannsóknum á hæfi sínu og störfum að öðru leyti, án alls sýnilegs eða raunverulegs tilefnis."

Tilboðin á bilinu 500-1700 milljónir

Tilboðin sem gerð voru í Perluna voru á bilinu 500 milljónir króna og upp í 1688 milljónir króna. Það var Garðar K. Vilhjálmsson héraðsdómslögmaður sem átti hæsta tilboðið fyrir hönd óstofnaðs félags, eins og fram hefur komið. Það tilboð var gert með fyrirvara um hagvkæmnisathugun. Í tveimur tilfellum var um staðgreiðslutilboð að ræða og hæsta tilboðið var annað þeirra.

Gunnar Andersen: "Nú þurfa menn að þétta raðirnar"

Gunnar Þ. Andersen íhugar að fara í skaðabótamál standi ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins um að víkja honum úr starfi þar sem hann telur hana byggjast á ólögmætum grundvelli. Þá sakar lögmaður Gunnars stjórnina um að leggja hann í einelti í bréfi til stjórnarformanns FME.

Seðlabankastjóri bjóst við hækkuninni

Matsfyrirtækið Fitch hækkaði lánshæfiseinkunnir Íslands vegna langtíma- og skammtíma skuldbindinga í erlendri mynt um einn flokk í gær. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segist hafa búist við og beðið eftir hækkuninni.

Telja að rýrð sé kastað á hæfi Gunnars - greinargerðin birt

Ástráður Haraldsson og Ásbjörn Björnsson telja að fram hafi komið upplýsingar um atvik í starfi Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fyrir aflandsfélög Landsbankans sem séu til þess fallnar að kasta rýrð á hæfi hans til að gegna starfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Þetta kemur fram í áliti sem þeir unnu fyrir stjórn FME og sent hefur verið fjölmiðlum.

Nýtt álit um Gunnar kynnt eftir helgi

Búist er við því að mat sem Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður og Ásbjörn Björnsson endurskoðandi unnu á hæfi Gunnars Þ Andersen, forstjóra FME, til þess að gegna starfi forstjóra stofnunarinnar verði gert opinbert eftir helgi. Gunnari var tilkynnt um uppsögn í gær en fær frest fram á mánudag til að mótmæla henni.

Formaður stjórnar FME: Niðurstaða ljós snemma í næstu viku

„Við erum með mál er tengist athugun á hæfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins til umfjöllunar," sagði Aðalsteinn Leifsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, í samtali við fréttastofu, aðspurður um þá ákvörðun stjórnar FME að segja Gunnari Andersen, forstjóra FME, upp störfum. Gert er ráð fyrir að endanleg ákvörðun varðandi Gunnar liggi fyrir snemma í næstu viku. Aðalsteinn vildi ekkert tjá sig um þá ákvörðun stjórnar FME að segja Gunnari upp störfum, þegar eftir því var leitað. Hann vildi ekki staðfesta uppsögnina, eða ræða efnislega um ákvörðunina.

Nýjar upplýsingar settu spurningamerki við trúverðugleika Gunnars

Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir að nýjar upplýsingar hafi komið fram um störf Gunnars fyrir aflandsfélög sem hafi sett spurningamerki við hæfi hans og trúverðugleika. Áhöld hafi verið uppi um hvort forstjórinn hafi uppfyllt sömu viðmið og stofnunin setur eftirlitsskyldum aðilum.

Staðfestu 80 milljóna sekt vegna verðsamráðs

Langisjór, móðurfélag Síldar og fisks og Matfugls, þarf að greiða 80 milljóna króna sekt vegna ólögleg samráðs við Bónus um vöruverð. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Síld og fiskur og Matfugl, auk Sláturfélags Suðurlands, Reykjagarðs, Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, Norðlenska, Kjarnafæðis og Kjötbankans höfðu brotið af sér með tvíhliða samningum eða samstilltum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar höfðu verðmerkt fyrir Bónus.

Gunnar Andersen rekinn

Gunnari Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins (FME), hefur verið sagt upp störfum. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, tilkynnti Gunnari um ákvörðun stjórnar FME þess efnis, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Gengi bréfa í Högum hækkaði skarplega

Gengi bréfa í Högum, sem skráð er í kauphöll íslands, hækkaði skarplega í dag, eða um 1,77 prósent. Gengi bréfa í félagin er nú 17,25 en félagið var skráð í kauphöllina á genginu 13,5.

Fitch hækkar lánshæfismatseinkunn Íslands

Matsfyrirtækið Fitch hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var einnig hækkuð í F3 úr B og einkunnin fyrir lánshæfisþak Íslands í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt var staðfest með stöðugum horfum. Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands.

Upplýsingar frá Darling voru innherjaupplýsingar

Hæstiréttur tekur undir öll þau fimm meginsjónarmið sem lágu til grundvallar því að Baldur Guðlaugsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik. Ein rökin voru þau að Baldur hafi fengið upplýsingar á fundi með Alistair Darling, þáverandi fjármálaráðherra Breta, á fundi þann 2. September 2008.

Sérstakur saksóknari: Ekki óvænt niðurstaða

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir niðurstöðu Hæstaréttar, í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni, ekki óvænta. Baldur var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi. "Þessi niðurstaða er í takt við upplegg málsins að hálfu rannsóknaraðila og ákæruvaldsins,“ sagði Ólafur Þór.

Klofinn dómur gerir vonbrigðin ekki minni

"Þetta eru eðlilega gríðarleg vonbrigði," sagði Karl Axelsson, verjandi Baldurs Guðlaugssonar, að lokinni dómsuppkvaðningu í Hæstarétti í dag. Þá gagnrýndi hann harðlega drátt á rannsókn málsins og sagði jafnframt að enginn maður ætti að þola það að fá tilkynningu frá yfirvöldum um að rannsókn í máli hans væri lokið og svo þau skilaboð að það hafi verið "allt í plati.“

Efnahagsvandi Suður-Evrópu þyngist enn

Efnahagsvandinn í Suður-Evrópu þyngist enn. Atvinnuleysi í Portúgal er komið yfir 14 prósent, samkvæmt tölum sem Hagstofa landsins birti í morgun. Vandamál Grikklands eru nú farin að smita út frá sér og valda nágrannaþjóðum sínum miklu tjóni.

Ræddu efnahagsbrot fram og til baka - málþing Orators í heild sinni

"Töluverður hópur þeirra lögreglumanna sem tók sér varðstöðu þarna (við Alþingishúsið innsk. blm.),“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, við upphaf erindis síns á hátíðþarmálþingi Orators sem fram fór í Lögbergi í gær. Hann sýndi mynd af lögreglumönnum við Alþingishúsið í janúar 2009 þegar hann hóf erindi sitt.

Fasteignaverð í borginni heldur áfram að hækka

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 333 stig í janúar síðastliðnum og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði.

Spænska efnahagsveikin

Hagkerfi Spánar gengur nú í gegnum mikla erfiðleika, raunar þá mestu í áratugi. Atvinnuleysi í landinu mælist tæplega 24 prósent.

Gylfi: Skuldsetning er ekki einkamál þeirra sem standa í henni

"Kerfið hér er brothætt. Þetta er eins og að fljúga flugvél sem er biluð. Svo krassar hún og menn segja, hvað var flugmaðurinn að gera? Hann var að gera sitt besta, en vélin var ekki í lagi,“ sagði Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands í nýjasta þættinum af Klinkinu en þar var hann að fara yfir meint hagstjórnarmistök Seðlabanka Íslands fyrir hrun og erfiðleikana sem því fylgja að hafa sjálfstæða peningastefnu með örsmáa mynt.

Myndi einn fremsti fræðimaður landsins í hagfræði taka verðtryggt lán?

Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við HÍ og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, er ekki tilbúinn að svara því beint út hvort hann myndi taka verðtryggt eða óverðtryggt húsnæðislán ef hann þyrfti að taka slíkt lán á morgun, en hann var gestur í nýjasta þættinum af Klinkinu.

Guðrún Erla og Kristján Haraldsson í stjórn Samorku

Á aðalfundi Samorku voru tveir nýir fulltrúar kjörnir í stjórn samtakanna: Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur, og Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða.

Brent olían rauf 120 dollara múrinn

Verð á tunnunni af Brent olíunni rauf 120 dollara múrinn í morgun. Hefur Brent olían því hækkað um nær 10% frá því í síðasta mánuði.

Sjá næstu 50 fréttir