Ræddu efnahagsbrot fram og til baka - málþing Orators í heild sinni Magnús Halldórsson skrifar 17. febrúar 2012 10:34 „
Töluverður hópur þeirra lögreglumanna sem tók sér varðstöðu þarna (við Alþingishúsið innsk. blm.), starfar hjá sérstökum saksóknara í dag," sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, við upphaf erindis síns á hátíðþarmálþingi Orators sem fram fór í Lögbergi í gær. Hann sýndi mynd af lögreglumönnum við Alþingishúsið í janúar 2009 þegar hann hóf erindi sitt. Ólafur Þór fór ítarlega fyrir gang rannsókna embættisins er tengjast hruni fjármálakerfisins í október 2008. Hann sagði yfir hundrað mál er tengjast hruninu vera til rannsóknar og að þeim færi hratt fjölgandi. Um mjög umfangsmikið verk væri að ræða, sem tæki langan tíma að klára. Jóhannes Karl Sveinsson hrl. flutti einnig erindi og fór yfir ýmsa þætti er tengdust efnahagsbrotum og þeim álitamálum sem vakna þegar þau eru skoðuð. Jóhannes Karl sagði það vera sína tilfinningu að það væri mikill þrýstingur frá þjóðinni um að mönnum verði refsað. Hann sagði jafnframt að það væri um margt einkennileg staða, að nær allir þeir sem til rannsóknar væru teldu sig væntanlega ekkert hafa gert rangt, þ.e. að viðskiptagjörningarnar hefðu ekki verið óeðlilegir eða ólöglegir þegar þeir voru framkvæmdir. Kristín Edwald hrl., formaður Lögfræðingafélags Íslands, flutti einnig erindi og fór yfir ýmis atriði eru tengdust vinnu lögfræðinga fyrir sakborninga. Meðal annars verklag við yfirheyrslur og fleira. Hún skaut spurningu á Ólaf í gamni, hvers vegna hefði staðið "hlerun" á glærunni hjá honum en ekki "hlustun" eins og hann hefði sagt í Kastljósviðtali. Ólafur Þór glotti, og sagði að "hlustun" væri annað en hlerun. Þá hlógu gestir málþingsins og flutningsmenn erinda. Kristín lýsti einnig miklum áhyggjum sínum af því að virðing fyrir lögum réttarríkisins væri ekki nægileg um þessar mundir, m.a. vegna áhrifanna sem hrun fjármálakerfisins hefði haft á íslenskt samfélag. Hún sagðist hafa miklar áhyggjur af þessu, og hvatti til þess að lögmenn, hvar sem þeir störfuðu, stæðu vörð um réttarríkið. Sjá má erindi Ólafs Þórs, Jóhannesar Karls og Kristínar um efnahagsbrot, á hátíðarmálþingi Orators, í heild sinni hér.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira