Fleiri fréttir Gamlar myndir af Bítlunum seldust fyrir 40 milljónir Safn af gömum svarthvítum myndum af Bítlunum var selt á uppboði hjá Christie´s í New York fyrir tæpar 40 milljónir kr. 27.7.2011 10:03 Álverðið heldur áfram að hækka Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli þessa dagana. Álverðið er komið í 2.638 dollara á tonnið á málmmarkaðinum í London og hefur hækkað um tæplega 140 dollara frá því í síðustu viku. 27.7.2011 09:41 Góðar líkur á að uppsett verð fáist fyrir Aurum Holdings Líkurnar á að skilanefnd landsbankans fái uppsett verð fyrir Aurum Holdings verða að teljast góðar enda jókst salan í verslunum félagsins um 16,5% á síðasta reikningsári þess sem lauk í janúar. 27.7.2011 09:18 Markaðir rólegir þrátt fyrir deilurnar um skuldaþakið Klukkan tifar í átt að tæknilegu gjaldþroti Bandaríkjanna en fjármálamarkaðir sína frekar takmörkuð viðbrögð og virðast ekki hafa miklar áhyggjur af ástandinu. 27.7.2011 07:56 Landsbankinn afskrifar skuld Fjárhagsstaða Ísaksskóla kann að vænkast eftir að Landsbankinn féllst á að gefa eftir um 76 milljónir króna af um 260 milljóna skuld skólans. Skilyrði er þó að Ísaksskóli nái að selja húsnæði sitt fyrir 184 milljónir króna sem fari í að greiða upp bankaskuldina. Ísaksskóli óskar nú eftir því að Reykjavíkurborg kaupi skólahúsnæðið fyrri þessa upphæð og leigi síðan skólanum. 27.7.2011 07:30 Tæknilegt gjaldþrot ekki fyrr en um miðjan ágúst Sérfræðingar á Wall Street segja ósennilegt að Bandaríkin verði strax tæknilega gjaldþrota þann 2. ágúst n.k. þótt ekki náist samkomulag um að lyfta skuldaþaki landsins. 27.7.2011 07:23 Velta með atvinnuhúsnæði 2,7 milljarðar í júní Í júní síðastliðnum var 45 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 28 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var tæpir 2,5 milljarðar króna en 263 milljónir króna utan þess. Samtals var veltan því rúmlega 2,7 milljarðar kr. 27.7.2011 07:16 Afkoma ríkissjóðs 41 milljarði verri en áætlað var Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var 41 milljarði króna verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í ríkisreikningi fyrir árið sem birtur hefur verið á vefsíðu stjórnarráðsins. 27.7.2011 07:12 Misskipting auðs aldrei verið meiri í Bandarikjunum Munurinn á eignum hvítra manna og fólks af öðrum kynþáttum hefur aldrei verið meiri í Bandaríkjunum síðan mælingar á þessu mun hófust fyrir aldarfjórðungi. 27.7.2011 06:59 Verðbólguþróunin áhyggjuefni Vaxandi verðbólga er áhyggjuefni og rétt að fylgjast vel með þróuninni, en of snemmt er að segja til um áhrif verðbólgunnar á kjarasamninga, segir Matthías Kjeld, hagfræðingur hjá ASÍ. 27.7.2011 06:45 Með hærri laun en forsætisráðherra Aðilar vinnumarkaðarins og sveitarstjórnarmenn eru margir með hærri laun en forsætisráðherra en sjónvarpsmenn eru með minna samkvæmt skattaálagningu síðasta árs. 26.7.2011 20:00 Launahæstu bankamenn landsins lækka um hálfa milljón milli ára Laun tvö hundruð launahæstu bankamanna landsins lækkuðu um fimm hundruð þúsund krónur milli ára. Fyrirtæki virðast treg að lækka laun millistjórnenda en einungis tvö hundruð þúsund krónur skilja nú að millistjórnendur og forstjóra fyrirtækja. 26.7.2011 19:30 Heimir Már Pétursson til Iceland Express Heimir Már Pétursson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Iceland Express frá og með næstu mánaðamótum. Heimir Már er með BA í stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Undanfarin sex ár hefur hann verið fréttamaður á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi. Hann var áður upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands í fimm ár. 26.7.2011 12:22 Maritech verðlaunað af Microsoft Maritech hefur hlotið verðlaunin „Samstarfsaðili ársins 2011“ hjá Microsoft Íslandi. Verðlaunin eru veitt þeim sem taldir eru hafa skarað fram úr í þróun og kynningu á Microsoft-tengdum lausnum síðasta ár. 26.7.2011 10:47 Hagnaður Century Aluminium 2,6 til 2,9 milljarðar Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls á Grundartanga, reiknar með að hagnaður þess á öðrum ársfjórðungi ársins nemi 23 til 25 milljónum dollara eða 2,6 til 2,9 milljarða króna. 26.7.2011 09:53 Viðsnúningur í rekstri BP Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri breska olíufélagsins BP. Hagnaður félagsins á öðrum ársfjórðungi ársins nam 5,6 milljörðum dollara eða rúmlega 600 milljörðum kr. 26.7.2011 09:30 Álverðið aftur komið yfir 2.600 dollara á tonnið Heimsmarkaðsverð á áli er aftur komið yfir 2.600 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Stendur verðið í 2.603 dollurum á málmmarkaðinum í London. 26.7.2011 08:57 Þjóðverjar ræða fjárfestingar í Grikklandi Philipp Rösler efnahagsmálaráðherra Þýskalands hefur boðað fulltrúa um 20 stórra þýskra fyrirtækja og samtaka á sinn fund á morgun, miðvikudag, til að ræða möguleikana á auknum fjárfestingum Þjóðverja í Grikklandi. 26.7.2011 07:23 Boðar erfiða tíma ef ekki næst samkomulag um skuldaþak Bandarískir þingmenn þurfa að finna lausn á deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna annars mun efnahagur landsins skaðast verulega. 26.7.2011 07:15 Gengi Össurar 13% hærra hér heima en í Kaupmannahöfn Talsverður munur hefur verið á gengi Össurar hf. í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hér heima. Í lok síðustu viku, gengið var um það bil 13% hærra hér heima en það var í Kaupmannahöfn. 26.7.2011 07:12 Verkfall gæti stöðvað flutninga frá stærstu álverum landsins Boðað verkfall hafnsögumanna eða lóðsa við tvær af lykilhöfnum landsins gæti stöðvað alla flutninga til og frá tveimur af stærstu álverum landsins. 26.7.2011 07:04 Eignir innlánsstofnana hækka um 33,5 milljarða Heildareignir innlánsstofnana námu 2.794 milljörðum kr. í lok júní og hækkuðu um 33,5 milljarða kr. frá maí. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. 26.7.2011 07:01 Íslendingar bíða eftir lúxusbílum frá Japan Eftirspurn eftir nýjum bifreiðum frá Japan er meiri en framboð hér á landi. Töluvert er um að Íslendingar, sem pöntuðu nýjan Land Cruiser eða Lexus-í vor, þurfi að bíða eftir afhendingu fram á haust. 26.7.2011 07:00 Halli 41 milljarði yfir áætlun 26.7.2011 00:01 Verð á gulli hækkar enn og nær nýjum methæðum Skuldavandræði Bandaríkjanna urðu meðal annars til þess að verð á gulli náði nýjum methæðum þegar markaðir í Austurlöndum opnuðu í dag. Verðið á únsunni stökk upp um 20 dollara á skammri stundu og nemur nú andvirði rúmlega 187 þúsund króna. 25.7.2011 20:45 Aðeins fimm af tuttugu hæstu skattgreiðendum á lista í fyrra Einungis fimm af þeim sem eru á lista yfir tuttugu hæstu skattgreiðendur árið 2010 voru á sama lista árið áður. Mörg ný og óþekkt nöfn er að finna á listanum í ár. Skattakóngurinn er landeigandi í Kópavogi. 25.7.2011 20:00 Eignir heimilanna tæplega 3.500 milljarðar Framtaldar eignir heimilanna námu 3.466 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær dregist saman um 9% frá fyrra ári. Þá er ekki tekið tillit til endurmats eigna í tengslum við endurálagningu auðlegðarskatts. 25.7.2011 10:04 Tæplega 5.000 greiða 4,8 milljarða í auðlegðarskatt Auðlegðarskatt greiða 4.800 aðilar, samtals 4,8 milljarða. Hjón greiða skattinn sitt í hvoru lagi og því eru fjölskyldur sem hann greiða færri en þetta. 25.7.2011 10:01 Skatturinn endurgreiðir tæpa 24 milljarða í ár Hinn 29. júlí nk. koma til útborgunar úr ríkissjóði til framteljenda 23,7 milljarðar króna eftir skuldajöfnun vegna vangoldinna krafna. Aldrei hefur meira fé verið greitt úr ríkissjóði við álagningu og munar 6,5 milljörðum frá fyrra ári. 25.7.2011 09:56 Fjármagnstekjuskattur minnkar um 35,5% milli ára Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 10,1 milljarði króna í ár og lækkar um 35,5% milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisskattstjóra. 25.7.2011 09:51 Tekjuskattur og útsvar samtals yfir 200 milljarðar Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nemur 200,9 milljörðum króna og hækkar um 1,4% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisskattstjóra. 25.7.2011 09:46 Þorsteinn Hjaltested er skattakóngurinn Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda, er skattakóngur ársins 2010, en álagningaskrár Ríkisskattstjóra eru lagðar fram í dag. Þorsteinn greiðir samtals tæpar 162 milljónir króna í opinber gjöld. Andri Már Ingólfsson ferðamálafrömuður er í öðru sæti. Hann greiðir tæpa 131 milljón króna í opinber gjöld. Í þriðja sæti kemur svo Skúli Mogensen, sem er einn af eigendum MP banka, en hann greiðir um 111 milljónir króna í opinber gjöld. Í fjórða sæti kemur svo Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona og stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins, en hún greiðir um 98 milljónir í opinber gjöld. 25.7.2011 09:34 Gjaldþrotum fjölgaði um helming Alls voru 137 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júní síðastliðnum, en þau voru 99 í sama mánuði í fyrra. Þetta er 38% fjölgun milli ára. Flest gjaldþrot voru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð annarsvegar og flokknum heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum hins vegar. 25.7.2011 09:12 Vísitala framleiðslu hækkar um 0,5% Vísitala framleiðsluverðs í júní 2011 var 218,0 stig og hækkaði um 0,5% frá maí 2011. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 25.7.2011 09:05 Verðbólgan er komin í 5% Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,3% verðbólgu á ári (4,2% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis). 25.7.2011 09:01 Gott uppgjör hjá McDonalds Bandaríska hamborgarakeðjan McDonalds skilaði mjög góðu uppgjöri á öðrum ársfjórðungi ársins. Salan jókst um 15% miðað við sama tímabil í fyrra og hagnaðurinn jókst um nær 10%. 25.7.2011 07:41 Ferrari bíll Eric Clapton seldur á uppboði Gulur Ferrari bíll sem eitt sinn var í eigu tónlistarmannsins Eric Clapton og síðar útvarpsmannsins Chris Evans, var seldur á uppboði um helgina fyrir 66,500 pund eða um 125 milljónir króna. 25.7.2011 07:40 Moody´s telur nær 100% að lánshæfi Grikklands verði gjaldþrot Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Grikklands um þrjá flokka og niður í Ca sem er aðeins einu haki frá gjaldþrotseinkunn. Jafnframt segir Moody´s að næstum 100% líkur séu á að matsfyrirtækið felli einkunnina niður í D eða gjaldþrot. 25.7.2011 07:38 Áfram ágæt velta á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 96. Er það svipað og meðalfjöldinn hefur verið á viku síðustu þrjá mánuði sem er 94 samningar. 25.7.2011 07:29 Engin lausn á deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna Enn er engin lausn í sjónmáli í deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna. Fundað var um málið alla helgina en leiðtogar bandaríska þingsins og Barack Obama bandaríkjaforseti virðast enn langt frá því að ná niðurstöðu í þessari deilu. 25.7.2011 07:18 Fitch Ratings setur lánshæfi Grikklands tímabundið í gjaldþrot Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur fellt lánshæfiseinkunn Grikklands tímabundið niður í D eða gjaldþrot. Reiknað er með að einkunnin komist aftur upp í ruslflokk eftir nokkra daga. 25.7.2011 07:15 Olíugjald á steinolíu verður skoðað Olíugjald gæti verið lagt á steinolíu á næstu misserum. Mjög hefur færst í vöxt að steinolía sé notuð sem eldsneyti á dísilbíla en á næstunni verður gjaldkerfið að baki samgönguframkvæmdum tekið til endurskoðunar. 23.7.2011 09:00 Venjast lífi á atvinnuleysisbótum Aðlögunarhæfni ungs fólks gerir því auðveldara að venjast lífi á atvinnuleysisbótum. Fjölbreytt úrræði Vinnumálastofnunar hafa hjálpað mörgum ungum einstaklingum að takast á við atvinnuleysi. 22.7.2011 18:46 Tólfþúsund flugu með Iceland Express Rösklega tólf þúsund farþegar flugu með Iceland Express frá London Gatwick í júní síðastliðnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér og vísar þar í skýrslu breskra flugmálayfirvalda, máli sínu til stuðnings. Iceland Express segir að þetta sé 50 prósenta aukning frá fyrra mánuði og fjörutíu og fjögurra prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Aldrei hafi jafnmargir farþegar flogið með Iceland Express í einum mánuði frá London. Samkvæmt þessum tölum er markaðshlutdeild iceland Express í farþegaflutningum frá London rúmlega 41 prósent og hefur aldrei verið meiri. 22.7.2011 12:55 Landsbankinn veitir nýsköpunarstyrki Samfélagssjóður Landsbankans mun í ár veita nýsköpunarstyrki í fyrsta sinn. Veittir verða 27 styrkir fyrir samtals að fjárhæð 15.000.000 króna. 22.7.2011 11:11 Sjá næstu 50 fréttir
Gamlar myndir af Bítlunum seldust fyrir 40 milljónir Safn af gömum svarthvítum myndum af Bítlunum var selt á uppboði hjá Christie´s í New York fyrir tæpar 40 milljónir kr. 27.7.2011 10:03
Álverðið heldur áfram að hækka Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á áli þessa dagana. Álverðið er komið í 2.638 dollara á tonnið á málmmarkaðinum í London og hefur hækkað um tæplega 140 dollara frá því í síðustu viku. 27.7.2011 09:41
Góðar líkur á að uppsett verð fáist fyrir Aurum Holdings Líkurnar á að skilanefnd landsbankans fái uppsett verð fyrir Aurum Holdings verða að teljast góðar enda jókst salan í verslunum félagsins um 16,5% á síðasta reikningsári þess sem lauk í janúar. 27.7.2011 09:18
Markaðir rólegir þrátt fyrir deilurnar um skuldaþakið Klukkan tifar í átt að tæknilegu gjaldþroti Bandaríkjanna en fjármálamarkaðir sína frekar takmörkuð viðbrögð og virðast ekki hafa miklar áhyggjur af ástandinu. 27.7.2011 07:56
Landsbankinn afskrifar skuld Fjárhagsstaða Ísaksskóla kann að vænkast eftir að Landsbankinn féllst á að gefa eftir um 76 milljónir króna af um 260 milljóna skuld skólans. Skilyrði er þó að Ísaksskóli nái að selja húsnæði sitt fyrir 184 milljónir króna sem fari í að greiða upp bankaskuldina. Ísaksskóli óskar nú eftir því að Reykjavíkurborg kaupi skólahúsnæðið fyrri þessa upphæð og leigi síðan skólanum. 27.7.2011 07:30
Tæknilegt gjaldþrot ekki fyrr en um miðjan ágúst Sérfræðingar á Wall Street segja ósennilegt að Bandaríkin verði strax tæknilega gjaldþrota þann 2. ágúst n.k. þótt ekki náist samkomulag um að lyfta skuldaþaki landsins. 27.7.2011 07:23
Velta með atvinnuhúsnæði 2,7 milljarðar í júní Í júní síðastliðnum var 45 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 28 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var tæpir 2,5 milljarðar króna en 263 milljónir króna utan þess. Samtals var veltan því rúmlega 2,7 milljarðar kr. 27.7.2011 07:16
Afkoma ríkissjóðs 41 milljarði verri en áætlað var Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var 41 milljarði króna verri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í ríkisreikningi fyrir árið sem birtur hefur verið á vefsíðu stjórnarráðsins. 27.7.2011 07:12
Misskipting auðs aldrei verið meiri í Bandarikjunum Munurinn á eignum hvítra manna og fólks af öðrum kynþáttum hefur aldrei verið meiri í Bandaríkjunum síðan mælingar á þessu mun hófust fyrir aldarfjórðungi. 27.7.2011 06:59
Verðbólguþróunin áhyggjuefni Vaxandi verðbólga er áhyggjuefni og rétt að fylgjast vel með þróuninni, en of snemmt er að segja til um áhrif verðbólgunnar á kjarasamninga, segir Matthías Kjeld, hagfræðingur hjá ASÍ. 27.7.2011 06:45
Með hærri laun en forsætisráðherra Aðilar vinnumarkaðarins og sveitarstjórnarmenn eru margir með hærri laun en forsætisráðherra en sjónvarpsmenn eru með minna samkvæmt skattaálagningu síðasta árs. 26.7.2011 20:00
Launahæstu bankamenn landsins lækka um hálfa milljón milli ára Laun tvö hundruð launahæstu bankamanna landsins lækkuðu um fimm hundruð þúsund krónur milli ára. Fyrirtæki virðast treg að lækka laun millistjórnenda en einungis tvö hundruð þúsund krónur skilja nú að millistjórnendur og forstjóra fyrirtækja. 26.7.2011 19:30
Heimir Már Pétursson til Iceland Express Heimir Már Pétursson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Iceland Express frá og með næstu mánaðamótum. Heimir Már er með BA í stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Undanfarin sex ár hefur hann verið fréttamaður á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi. Hann var áður upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands í fimm ár. 26.7.2011 12:22
Maritech verðlaunað af Microsoft Maritech hefur hlotið verðlaunin „Samstarfsaðili ársins 2011“ hjá Microsoft Íslandi. Verðlaunin eru veitt þeim sem taldir eru hafa skarað fram úr í þróun og kynningu á Microsoft-tengdum lausnum síðasta ár. 26.7.2011 10:47
Hagnaður Century Aluminium 2,6 til 2,9 milljarðar Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls á Grundartanga, reiknar með að hagnaður þess á öðrum ársfjórðungi ársins nemi 23 til 25 milljónum dollara eða 2,6 til 2,9 milljarða króna. 26.7.2011 09:53
Viðsnúningur í rekstri BP Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri breska olíufélagsins BP. Hagnaður félagsins á öðrum ársfjórðungi ársins nam 5,6 milljörðum dollara eða rúmlega 600 milljörðum kr. 26.7.2011 09:30
Álverðið aftur komið yfir 2.600 dollara á tonnið Heimsmarkaðsverð á áli er aftur komið yfir 2.600 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Stendur verðið í 2.603 dollurum á málmmarkaðinum í London. 26.7.2011 08:57
Þjóðverjar ræða fjárfestingar í Grikklandi Philipp Rösler efnahagsmálaráðherra Þýskalands hefur boðað fulltrúa um 20 stórra þýskra fyrirtækja og samtaka á sinn fund á morgun, miðvikudag, til að ræða möguleikana á auknum fjárfestingum Þjóðverja í Grikklandi. 26.7.2011 07:23
Boðar erfiða tíma ef ekki næst samkomulag um skuldaþak Bandarískir þingmenn þurfa að finna lausn á deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna annars mun efnahagur landsins skaðast verulega. 26.7.2011 07:15
Gengi Össurar 13% hærra hér heima en í Kaupmannahöfn Talsverður munur hefur verið á gengi Össurar hf. í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hér heima. Í lok síðustu viku, gengið var um það bil 13% hærra hér heima en það var í Kaupmannahöfn. 26.7.2011 07:12
Verkfall gæti stöðvað flutninga frá stærstu álverum landsins Boðað verkfall hafnsögumanna eða lóðsa við tvær af lykilhöfnum landsins gæti stöðvað alla flutninga til og frá tveimur af stærstu álverum landsins. 26.7.2011 07:04
Eignir innlánsstofnana hækka um 33,5 milljarða Heildareignir innlánsstofnana námu 2.794 milljörðum kr. í lok júní og hækkuðu um 33,5 milljarða kr. frá maí. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. 26.7.2011 07:01
Íslendingar bíða eftir lúxusbílum frá Japan Eftirspurn eftir nýjum bifreiðum frá Japan er meiri en framboð hér á landi. Töluvert er um að Íslendingar, sem pöntuðu nýjan Land Cruiser eða Lexus-í vor, þurfi að bíða eftir afhendingu fram á haust. 26.7.2011 07:00
Verð á gulli hækkar enn og nær nýjum methæðum Skuldavandræði Bandaríkjanna urðu meðal annars til þess að verð á gulli náði nýjum methæðum þegar markaðir í Austurlöndum opnuðu í dag. Verðið á únsunni stökk upp um 20 dollara á skammri stundu og nemur nú andvirði rúmlega 187 þúsund króna. 25.7.2011 20:45
Aðeins fimm af tuttugu hæstu skattgreiðendum á lista í fyrra Einungis fimm af þeim sem eru á lista yfir tuttugu hæstu skattgreiðendur árið 2010 voru á sama lista árið áður. Mörg ný og óþekkt nöfn er að finna á listanum í ár. Skattakóngurinn er landeigandi í Kópavogi. 25.7.2011 20:00
Eignir heimilanna tæplega 3.500 milljarðar Framtaldar eignir heimilanna námu 3.466 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær dregist saman um 9% frá fyrra ári. Þá er ekki tekið tillit til endurmats eigna í tengslum við endurálagningu auðlegðarskatts. 25.7.2011 10:04
Tæplega 5.000 greiða 4,8 milljarða í auðlegðarskatt Auðlegðarskatt greiða 4.800 aðilar, samtals 4,8 milljarða. Hjón greiða skattinn sitt í hvoru lagi og því eru fjölskyldur sem hann greiða færri en þetta. 25.7.2011 10:01
Skatturinn endurgreiðir tæpa 24 milljarða í ár Hinn 29. júlí nk. koma til útborgunar úr ríkissjóði til framteljenda 23,7 milljarðar króna eftir skuldajöfnun vegna vangoldinna krafna. Aldrei hefur meira fé verið greitt úr ríkissjóði við álagningu og munar 6,5 milljörðum frá fyrra ári. 25.7.2011 09:56
Fjármagnstekjuskattur minnkar um 35,5% milli ára Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 10,1 milljarði króna í ár og lækkar um 35,5% milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisskattstjóra. 25.7.2011 09:51
Tekjuskattur og útsvar samtals yfir 200 milljarðar Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nemur 200,9 milljörðum króna og hækkar um 1,4% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisskattstjóra. 25.7.2011 09:46
Þorsteinn Hjaltested er skattakóngurinn Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda, er skattakóngur ársins 2010, en álagningaskrár Ríkisskattstjóra eru lagðar fram í dag. Þorsteinn greiðir samtals tæpar 162 milljónir króna í opinber gjöld. Andri Már Ingólfsson ferðamálafrömuður er í öðru sæti. Hann greiðir tæpa 131 milljón króna í opinber gjöld. Í þriðja sæti kemur svo Skúli Mogensen, sem er einn af eigendum MP banka, en hann greiðir um 111 milljónir króna í opinber gjöld. Í fjórða sæti kemur svo Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona og stærsti eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins, en hún greiðir um 98 milljónir í opinber gjöld. 25.7.2011 09:34
Gjaldþrotum fjölgaði um helming Alls voru 137 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júní síðastliðnum, en þau voru 99 í sama mánuði í fyrra. Þetta er 38% fjölgun milli ára. Flest gjaldþrot voru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð annarsvegar og flokknum heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum hins vegar. 25.7.2011 09:12
Vísitala framleiðslu hækkar um 0,5% Vísitala framleiðsluverðs í júní 2011 var 218,0 stig og hækkaði um 0,5% frá maí 2011. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 25.7.2011 09:05
Verðbólgan er komin í 5% Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,3% verðbólgu á ári (4,2% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis). 25.7.2011 09:01
Gott uppgjör hjá McDonalds Bandaríska hamborgarakeðjan McDonalds skilaði mjög góðu uppgjöri á öðrum ársfjórðungi ársins. Salan jókst um 15% miðað við sama tímabil í fyrra og hagnaðurinn jókst um nær 10%. 25.7.2011 07:41
Ferrari bíll Eric Clapton seldur á uppboði Gulur Ferrari bíll sem eitt sinn var í eigu tónlistarmannsins Eric Clapton og síðar útvarpsmannsins Chris Evans, var seldur á uppboði um helgina fyrir 66,500 pund eða um 125 milljónir króna. 25.7.2011 07:40
Moody´s telur nær 100% að lánshæfi Grikklands verði gjaldþrot Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Grikklands um þrjá flokka og niður í Ca sem er aðeins einu haki frá gjaldþrotseinkunn. Jafnframt segir Moody´s að næstum 100% líkur séu á að matsfyrirtækið felli einkunnina niður í D eða gjaldþrot. 25.7.2011 07:38
Áfram ágæt velta á fasteignamarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 96. Er það svipað og meðalfjöldinn hefur verið á viku síðustu þrjá mánuði sem er 94 samningar. 25.7.2011 07:29
Engin lausn á deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna Enn er engin lausn í sjónmáli í deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna. Fundað var um málið alla helgina en leiðtogar bandaríska þingsins og Barack Obama bandaríkjaforseti virðast enn langt frá því að ná niðurstöðu í þessari deilu. 25.7.2011 07:18
Fitch Ratings setur lánshæfi Grikklands tímabundið í gjaldþrot Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur fellt lánshæfiseinkunn Grikklands tímabundið niður í D eða gjaldþrot. Reiknað er með að einkunnin komist aftur upp í ruslflokk eftir nokkra daga. 25.7.2011 07:15
Olíugjald á steinolíu verður skoðað Olíugjald gæti verið lagt á steinolíu á næstu misserum. Mjög hefur færst í vöxt að steinolía sé notuð sem eldsneyti á dísilbíla en á næstunni verður gjaldkerfið að baki samgönguframkvæmdum tekið til endurskoðunar. 23.7.2011 09:00
Venjast lífi á atvinnuleysisbótum Aðlögunarhæfni ungs fólks gerir því auðveldara að venjast lífi á atvinnuleysisbótum. Fjölbreytt úrræði Vinnumálastofnunar hafa hjálpað mörgum ungum einstaklingum að takast á við atvinnuleysi. 22.7.2011 18:46
Tólfþúsund flugu með Iceland Express Rösklega tólf þúsund farþegar flugu með Iceland Express frá London Gatwick í júní síðastliðnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér og vísar þar í skýrslu breskra flugmálayfirvalda, máli sínu til stuðnings. Iceland Express segir að þetta sé 50 prósenta aukning frá fyrra mánuði og fjörutíu og fjögurra prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Aldrei hafi jafnmargir farþegar flogið með Iceland Express í einum mánuði frá London. Samkvæmt þessum tölum er markaðshlutdeild iceland Express í farþegaflutningum frá London rúmlega 41 prósent og hefur aldrei verið meiri. 22.7.2011 12:55
Landsbankinn veitir nýsköpunarstyrki Samfélagssjóður Landsbankans mun í ár veita nýsköpunarstyrki í fyrsta sinn. Veittir verða 27 styrkir fyrir samtals að fjárhæð 15.000.000 króna. 22.7.2011 11:11