Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eik Bank í Danmörku seldur innan mánaðar Eik Bank í Danmörku, dótturfélag Eik Banki í Færeyjum, verður seldur innan mánaðar. Kaupendur skortir ekki því 20 slíkir hafa sýnt því áhuga að kaupa Eik Bank. 19.11.2010 14:16
HB Grandi segir loðnuveiðar geta hafist í næsta mánuði Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, segir að loðnuveiðar HB Granda gætu hafist strax í næsta mánuði. Sem kunnugt er af fréttum verður loðnukvótinn 200 þúsund tonn í vetur. 19.11.2010 13:47
Fékk 18 milljarða í laun fyrir að tapa 257 milljörðum Fjárfestingabankinn Merrill Lynch sagði bless og takk fyrir við Stanley O´Neal forstjóra sinn eftir mesta ársfjórðungtap bankans í tæplega aldarlangri sögu hans árið 2007. O´Neal fékk 160 milljónir dollara eða 18 milljarða kr, að launum fyrir að tapa 2,3 milljörðum dollara eða um 257 milljörðum kr. 19.11.2010 13:12
Efast um að heimilt sé að reikna vexti á ósendar kröfur Talsmaður neytenda efast um að bílalánafyrirtækjum sé heimilt að reikna vexti ofan á kröfur sem aldrei voru sendar til fólks. Þetta er eitt af tuttugu álitamálum sem hann telur vera við endurútreikning bílalána og segir að frumvarp viðskiptaráðherra eyði ekki óvissu fólks með bílalán. 19.11.2010 11:59
Kostnaður við nýbyggingu íbúða að ná jafnvægi Ef marka má vísitölu byggingarkostnaðar virðist kostnaður við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis vera að ná jafnvægi eftir mikla hækkun í kjölfar falls krónu fyrir liðlega tveimur árum síðan. 19.11.2010 11:54
Ísland og Japan þróa samstarf í orkumálum og hátækni Á fundum Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra með ráðherrum utanríkis-, efnahags- og iðnaðarráðherra Japans og forstjórum Mitsubishi Heavy Industries og japanskra fjárfestingasjóða, var ákveðið að þróa samstarf milli íslenskra og japanskra aðila í orkumálum og grænni hátækni. 19.11.2010 11:49
Ísland í betri stöðu en Írland og Grikkland á margan hátt „Á margan hátt er Ísland í betra ásigkomulagi en Írland eða Grikkland en þau lönd gæti bæði orðið föst í kreppu næsta áratuginn. Ísland gæti jafnvel verið í betra ásigkomulagi en Bretland, við vitum ekki enn hvað RBS (Royal Bank of Scotland) eða Lloyds-HBOS muni kosta okkur, né hvenær við getum losað okkur við þá.“ 19.11.2010 10:30
Hagstofan: Rúm 10% heimila í vanskilum með húsnæðislán Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands 2010 sýnir að 10,1% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu einhvern tíma síðastliðnu 12 mánuði og 13,3% voru í vanskilum með önnur lán. Nálega helmingur heimila átti erfitt með að ná endum saman á árinu. 19.11.2010 09:02
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítillega Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2010 er 100,8 stig (desember 2009=100) sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði. 19.11.2010 09:00
Japanskt matsfyrirtæki setur Ísland í ruslflokk Japanska matsfyrirtækið R&I hefur sett lánshæfiseinkunn Íslands niður í ruslflokk með neikvæðum horfum. Einkunin var lækkuð úr BBB- og í BB+. 19.11.2010 08:58
Eign Landic Property á Amager til sölu fyrir 20 milljarða Eign í eigu þrotabús íslenska fasteignafélagsins Landic Property á Amager í Kaupmannahöfn er nú til sölu. Verðmæti hennar er metið á tæpan milljarð danskra kr. eða um 20 milljarða kr. 19.11.2010 08:35
Samtök álfyrirtækja á Íslandi tekin til starfa Samtök álfyrirtækja á Íslandi tóku formlega til starfa í gær en markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um áliðnaðinn. 19.11.2010 08:08
Landsvirkjun telur sæstreng mögulegan Nýjustu athuganir Landsvirkjunar og fleiri aðila sýna fram á að sæstrengur til meginlands Evrópu muni líklega skila sér í gróða. Heildarkostnaður við virkjanir, flutningskerfi frá Íslandi, landsstöðvar og streng er áætlaður um 2,5 milljarðar evra, eða um 380 milljarðar íslenskra króna. 19.11.2010 07:15
Tryggja rekstur í Borgarnesi Hömlur, dótturfélag Landsbankans, hefur selt iðnfyrirtækið Límtré Vírnet til félagsins Uxahryggja fyrir 720 milljónir króna. Þar af nema skuldir sex hundruð milljónum króna. Límtré Vírnet var áður hluti af BM Vallá sem varð gjaldþrota í maí. 19.11.2010 05:30
Verkefni í Noregi skila Ístaki 11 milljörðum króna „Þetta er algert lykilatriði fyrir okkur,“ segir Ásgeir Loftsson, yfirverkfræðingur hjá Ístaki, um sjö verkefni fyrirtækisins í Noregi sem samtals eru upp á um 11 milljarða króna. 19.11.2010 05:30
Eins árs loðnan lofar góðu Hafrannsóknastofnunin leggur til að heildaraflamark loðnu á yfirstandandi vertíð verði samtals tvö hundruð þúsund tonn. Stofnunin mun kanna hvort tilefni sé til að endurskoða tillögurnar eftir mælingu á loðnustofninum eftir áramót. 19.11.2010 05:00
Ríkið gæti komið út á sléttu Gengi hlutabréfa bandaríska bílaframleiðandans General Motors, GM, hækkaði um tæp átta prósent frá útboði í fyrstu viðskiptum með bréfin á hlutabréfamarkað í New York í í gær. 18.11.2010 23:45
Bætur skertar og álögur auknar Bætur ýmis konar verða skertar og álögur á bifreiðar, áfengi og tóbak og fleira verða auknar í fjárlögum næsta árs. Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna mun lækka um hálft prósent vegna þessa 18.11.2010 19:17
Hæstiréttur staðfestir risasekt Haga Hæstiréttur hefur úrskurðað að 315 milljón króna stjórnvaldssekt á hendur Haga hafi verið hæfileg viðurlög. Þetta er hæsta sekt sem lögð hefur verið á hér landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. 18.11.2010 17:10
Keyptu Límtré Vírnet á 720 milljónir Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hefur selt iðnfyrirtækið Límtré Vírnet ehf. til Uxahryggja ehf. Söluverð hlutafjár Límtrés Vírnets er 120 milljónir króna en þar að auki nema vaxtaberandi skuldir um 600 milljónum króna.Samtals nemur kaupverðið því 720 milljónum kr. 18.11.2010 15:00
Iceland Express til Skotlands og Írlands Iceland Express ætlar að fljúga til Edinborgar í Skotlandi og Belfast og Dublin á Írlandi næsta sumar. Flogið verður tvisvar til þrisvar viku til Belfast, Edinborgar og Dublin. 18.11.2010 14:49
Tónlist.is tilbúinn fyrir Android-símaflóðið Baráttan um snjallsímamarkaðinn er í algleymi þessi misserin. Þvert á allar spár hefur Google náð mjög styrkri stöðu á markaðnum á skömmum tíma með Android-stýrikerfinu. Tónlistarvefurinn Tónlist.is hefur ekki farið varhluta af því og eru menn þar á bæ nú búnir að uppfæra þjónustuna þannig að hún henti fyrir þá síma sem eru með Android. 18.11.2010 14:47
Omnis semur við Hewlett-Packard Omnis ehf náði á dögunum samningi við Hewlett-Packard (HP) sem veitir fyrirtækinu stöðu sem svokallað HP Preferred Partner í sölu og þjónustu á tölvubúnaði frá fyrirtækinu. 18.11.2010 14:20
Vonir um írska björgun sefar óttann á mörkuðum Auknar vonir um að Írar muni þiggja neyðaraðstoð frá ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) hafa sefað ótta fjárfesta á mörkuðum í Evrópu. Hlutabréfavísitölur í Bretlandi og Þýskalandi eru á uppleið og skuldatryggingaálagið á Írland er á niðurleið, raunar komið undir 500 punkta samkvæmt mælingu CMA gagnaveitunnar. 18.11.2010 13:45
Landsbankinn selur Límtré til Uxahryggja Landsbankinn hefur afráðið að taka tilboði Uxahryggja ehf. í iðnfyrirtækið Límtré Vírnet. 18.11.2010 13:09
Kampavín upp á 7,5 milljónir flaskan fannst í skipsflaki Kafarar sem sérhæfa sig í leit að skipsflökum duttu nýlega í lukkupottinn í Eystrasalti nálægt Álandseyjum. Þar fundu þeir hátt í 200 ára gamalt skipsflak sem fulllestað var með eðalkampavíni. Talið er að flaskan af því seljist á 50.000 evrur eða 7,5 milljónir kr. 18.11.2010 13:02
OECD: Dekkri efnahagshorfur fyrir Ísland Í nýrri skýrslu frá OECD um efnahagshorfur á Íslandi kemur fram að stofnunin telur horfurnar nú dekkri en fram kom í samskonar skýrslu s.l. vor. Nú telur OECD að hagvöxtur á næsta ári verði 1,5% en í vor taldi stofnunin að hann yrði 2,2%. 18.11.2010 12:09
Um 120 milljarðar fluttir úr innlánum og í skuldabréfasjóði Frá ársbyrjun hafa um 120 milljarðar kr. farið úr innlánum í bönkunum og yfir í skuldabréfasjóði. Takmarkað framboð er á skuldabréfum en eftirspurnin er mikil. 18.11.2010 10:58
Endurútreikningur bílalána gengur vel hjá Íslandsbanka Yfir 4.000 viðskiptavina Íslandsbanka staðfest endurútreikninga fyrir bílalán í erlendri mynt. Viðskiptavinir hafa til 21. nóvember til staðfesta útreikningana á vef bankans. 18.11.2010 10:16
Fyrirtækjaáhlaup hafið á írska banka Fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við írska banka hafa tekið út innistæður sínar svo milljörðum evra skiptir á undanförnum vikum og mánuðum. Einstaklingar eru hinsvegar rólegri enda eru innistæður þeirra með ríkisábyrgð. Þetta kemur fram í Financial Times. 18.11.2010 09:58
GM lýkur stærsta hlutafjárútboði sögunnar Bandaríski bílarisinn General Motors (GM) hefur lokið stærsta hlutafjárútboði sögunnar og er mættur aftur til leiks í kauphöllinni á Wall Street. Alls seldust hlutir fyrir 23,1 milljarða dollara eða um 2.600 milljarða kr. 18.11.2010 09:11
Peningastefnunefnd telur áfram svigrúm til vaxtalækkanna Peningastefnunefnd telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds, það er frekari vaxtalækkanna, haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. 18.11.2010 08:12
Greining Arion banka spáir hjöðnun verðbólgu niður í 3% Greiningardeild Arion banka spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í nóvember. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 3% samanborið við 3,3% í október. Þessi spá er í takt við aðrar sem birst hafa í vikunni. 18.11.2010 07:53
Orkuvaktin: Raforkukaup fyrir milljarð skoðuð Á því fimm mánaða tímabili sem Orkuvaktin hefur að boðið fyrirtækjum að skoða hagræðingarmöguleika í innkaupum á raforku að kostnaðarlausu hafa kaup fyrir ríflega milljarð á ári verið skoðuð þ.e. heildarkostnaður án vsk. 18.11.2010 07:47
Delta flýgur fimm sinnum í viku til New York Bandaríska flugfélagði Delta Airlines ætlar að hefja áætlunarflug á milli Keflavíkur og New York í byrjun júní og fljúga fimm ferðir í viku. Í tilkynningu frá Delta segir að farÞegum frá Íslandi gefist kostur á hagstæðu tengiflugi til 35 áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada, Rómönsku Ameríku og í Karabíska hafinu, með Delta og samstarfsflugfélögum þess vestra. 18.11.2010 07:26
Kaup á skuldabréfi aldrei færð til bókar Samnings um kaup gjaldeyrissjóðs Glitnis, GLB FX, á skuldabréfi af Saga Capital í ágúst 2008 er í engu getið í bókum eða fundargerðum sjóðsins frá þeim tíma. Reglum samkvæmt átti að færa alla gerninga sjóðsins í bækur hans í enda hvers dags, enda höfðu þeir alla jafna áhrif á afkomu sjóðsins, sem er uppreiknuð daglega. Í þessu tilviki var það ekki gert. 18.11.2010 06:00
Setja milljarða inní grískt hagkerfi Kínverjar hafa gert stóra fjárfestingarsamninga við Grikki og líta á landið sem glugga inn í Evrópusambandið. 18.11.2010 06:00
Stjórn Icelandair vill auka virði hlutafjár um 2,5 milljarða Stjórn Icelandair Group hf. ákvað í dag að fara í opið hlutafjárútboð til þess að hækka hlutafé félagsins um 500 - 1.059 milljónir hluti. Gangi þetta eftir gæti verðmæti hlutafjár í félaginu aukist um allt að 2,5 milljarða kr. 17.11.2010 19:29
Um 9,5 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 9,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði lítillega í 1,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 5 ma. viðskiptum. 17.11.2010 16:46
Einhugur um vaxtalækkun Allir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru sammála um að lækka skyldi stýrivexti um 0,75 prósentustig þegar að ákvörðun um það var tekin síðast. Nefndarmenn ræddu lækkun vaxta um 0,75-1% og lagði seðlabankastjóri fram tillögum um 0,75 prósentustiga lækkun. 17.11.2010 16:23
Frávísunarkröfu í Exeter-málinu var hafnað Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag frávísunarkröfu vegna svokallaðs Exeter-máls. 17.11.2010 15:20
Telur Spkef geta myndað kjölfestu í sparisjóðakerfinu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur að Spkef sparisjóður geti orðið nægilega stór eining til að mynda kjölfestu í sparisjóðakerfinu. Slík kjölfesta sé nauðsyn til að viðhalda kerfinu. 17.11.2010 14:49
Allt klárt fyrir gulldepluna hjá HB Granda á Akranesi Þess er nú beðið að gulldepluveiðar glæðist en tvö skip HB Granda hafa undanfarna daga leitað að þessum smáa fiski frá Skerjadjúpi í vestri og austur fyrir Vestmannaeyjar. Á Akranesi eru starfsmenn fiskmjölsverksmiðju félagsins tilbúnir til þess að taka á móti afla og vinna hann en ekkert hefur verið unnið í verksmiðjunni frá því í júlí í sumar. 17.11.2010 13:33
Telur að aukin álagning skýri hækkanir á eldsneytisverðinu Greining Arion banka segir að draga megi þá ályktun að hækkanir olíufélaganna á eldsneyti hérlendis séu vegna aukinnar álagningar þeirra en ekki verðhækkanna á hráolíu. 17.11.2010 13:04
IFS: Ársverðbólgan lækkar úr 3,3% í 3,0% Verðbólguspá IFS greiningar fyrir nóvember hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 0,4%. Ef spáin gengur eftir, mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,0%. Verðbólga undanfarinna þriggja mánaða á ársgrundvelli hækkar úr 4,0% í 4,6%. Hagstofan mælir vísitölu neysluverðs í þessari viku, mánudag til föstudags, en niðurstöðurnar verða birtar fimmtudaginn 25. nóvember nk. 17.11.2010 12:09