Telur Spkef geta myndað kjölfestu í sparisjóðakerfinu 17. nóvember 2010 14:49
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur að Spkef sparisjóður geti orðið nægilega stór eining til að mynda kjölfestu í sparisjóðakerfinu. Slík kjölfesta sé nauðsyn til að viðhalda kerfinu.Þetta kemur fram i svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi um um Sparisjóðinn í Keflavík, Spkef sparisjóð, Byr sparisjóð og Byr hf. Birgir spurði meðal annars hvaða rök og hugmyndir eru að baki því að Byr sparisjóður var gerður að hlutafélagi en Sparisjóðurinn í Keflavík áfram látinn vera sparisjóður? Í svarinu segir að það sem mælti með hlutafélagaforminu í tilviki Byrs, fyrir utan almenn rök sem færa má fyrir því félagaformi, er að um nokkuð stóra fjármálastofnun er að ræða sem kostnaðarsamt hefði orðið fyrir ríkið að endurreisa sem sparisjóð.„Landfræðilega standa ekki sömu rök til þess að endurreisa Byr sem sparisjóð og í tilviki Sparisjóðsins í Keflavík. Hlutafélagaformið var talin betri leið með tilliti til endurfjármögnunar eða sölu í framhaldinu, en telja verður að hlutafélagabanki sé áhugaverðari fjárfestingarkostur, m.a. vegna takmarkana á arðgreiðslum í tilviki sparisjóða," segir í svarinu.„Ríkur vilji er hjá stjórnvöldum til þess að viðhalda sparisjóðakerfinu í landinu. Svo það megi verða er talið að til þurfi að vera nægjanlega stór eining stofnfjársparisjóðs til að mynda kjölfestu í kerfinu og að Sparisjóðurinn í Keflavík geti verið slíkur aðili. Þá er Sparisjóðurinn í Keflavík með starfsstöðvar víða á Vestfjörðum og þess vegna var farin sú leið að láta hann viðhalda sínu félagaformi."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira