Viðskipti innlent

Stjórn Icelandair vill auka virði hlutafjár um 2,5 milljarða

Stjórn Icelandair Group hf. ákvað í dag að fara í opið hlutafjárútboð til þess að hækka hlutafé félagsins um 500 - 1.059 milljónir hluti. Gangi þetta eftir gæti verðmæti hlutafjár í félaginu aukist um allt að 2,5 milljarða kr.

Í tilkynningu segir að verð hvers hlutar verður 2,5. Stjórn mun ákveða úthlutun hluta þegar áskriftartímabili er lokið. Lágmarksáskrift er 10.000 hlutir.

Allir núverandi starfsmenn samstæðunnar munu hafa forgangsrétt að 160.000.000 hlutum. Allir núverandi hluthafar hafa forgangsrétt að 799.000.000 hlutum.

Markmiðið er að ljúka útboðinu fyrir árslok 2010. Nánari upplýsingar um útboði verða veittar í síðasta lagi tveimur vikum fyrir lok áskriftartímabilsins. Félagið mun í kjölfarið óska eftir að hlutirnir verði skráðir í Kauphöllina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×