Viðskipti innlent

Telur að aukin álagning skýri hækkanir á eldsneytisverðinu

Mynd/Vísir.

Greining Arion banka segir að draga megi þá ályktun að hækkanir olíufélaganna á eldsneyti hérlendis séu vegna aukinnar álagningar þeirra en ekki verðhækkanna á hráolíu.

Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að ef skoðuð er þróun á heimsmarkaðsverði á hráolíu umbreyttu í íslenskar krónur og þróun á verði eldsneytis án opinberra gjalda komi þetta fram.

Þannig hefur heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkað um 6% mælt í krónum frá áramótum en á sama tíma hefur eldsneytisverð olíufélaganna hækkað um 3%. Frekari verðhækkanir á eldsneyti voru tilkynntar í gærkvöldi.

Greiningin segir að samkvæmt þessu má draga þá ályktun að þær verðhækkanir sem hafa átt sér stað hér heima að undanförnu megi rekja til aukinnar álagningar á eldsneytisverði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×