Viðskipti innlent

Iceland Express til Skotlands og Írlands

Iceland Express ætlar að fljúga til Edinborgar í Skotlandi og Belfast og Dublin á Írlandi næsta sumar. Flogið verður tvisvar til þrisvar viku til Belfast, Edinborgar og Dublin.

Í tilkynningu segir að Iceland Express verði eina félagið, sem býður uppá beint flug til Íslands frá þessum þremur borgum. Áætlað er að flugin tengist leiðakerfinu til New York og Boston og koma til með að styrkja það enn frekar.

Eins og fram hefur komið hyggst Iceland Express færa út kvíarnar næsta sumar og fljúga daglega til New York frá og með júníbyrjun. Félagið mun líka fjölga áfangastöðum í Bandaríkjunum og fljúga fjórum sinnum í viku til Boston. Einnig verður flogið til Chicago.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×