Viðskipti innlent

Endurútreikningur bílalána gengur vel hjá Íslandsbanka

Yfir 4.000 viðskiptavina Íslandsbanka staðfest endurútreikninga fyrir bílalán í erlendri mynt. Viðskiptavinir hafa til 21. nóvember til staðfesta útreikningana á vef bankans.

Í tilkynningu segir að rúmlega fjögur þúsund viðskiptavinir hafa nú staðfest endurútreikninga á bílalánum í erlendri mynt hjá Íslandsbanka Fjármögnun. Er það rúmlega helmingur þeirra lána sem verða endurreiknaðir nú í fyrsta áfanga, en þar er um að ræða lán sem hafa verið með sama greiðanda frá upphafi.

Þessa dagana eru starfsmenn Íslandsbanka Fjármögnunar að ganga frá skjalagerð og uppgjöri lánanna og hefur vinnan við endurútreikning almennt gengið vel og fengið góðar viðtökur viðskiptavina. Viðskiptavinir þurfa að staðfesta endurútreikningana á vefsíðu Íslandsbanka Fjármögnunar, www.islandsbanki.is/fjarmognun, og ákveða hvernig ráðstafa eigi inneign hjá Íslandsbanka ef um slíkt er að ræða.

Þrátt fyrir góðar viðtökur viðskiptavina eiga allmargir þeirra eftir að staðfesta endurútreikninginn á sínum lánum, en frestur til þess er til 21. nóvember næstkomandi. Starfsmenn Íslandsbanka eru þessa dagana að hringja í þessa viðskiptavini og leiðbeina þeim í gegnum ferlið. Ef ekki næst í viðkomandi viðskiptavin fyrir 21. nóvember telst endurútreikningur staðfestur og inneign vegna ofgreiðslu verður ráðstafað inná höfuðstól lánsins ef um slíkt er að ræða.

Í næsta áfanga verða endurreiknuð þau lán sem hafa verið uppgreidd hjá Íslandsbanka Fjármögnun og verður uppgjör þeirra birt á sama hátt og áður á aðgangsstýrðu vefsvæði Íslandsbanka Fjármögnunar.

„Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og því höfum við ákveðið að hringja í þá viðskiptavini sem ekki hafa gengið frá endurútreikningnum nú í fyrsta áfanga. Það er markmiðið að viðskiptavinir fái sem allra bestu upplýsingar um endurútreikning bílalána og það er afar ánægjulegt hversu góðar viðtökur við höfum fengið frá viðskiptavinum við framsetningu útreikninganna á vefnum og ferlinu í heild", segir Ingvar Stefánsson, yfirmaður Íslandsbanka Fjármögnunar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×