Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýsköpunarsjóður selur eignarhluti sína í Sjávarleðri Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og hið nýstofnaða hlutafélag Roðskinn ehf. tilkynntu í dag samkomulag um kaup Roðskinns á öllum eignarhlutum sjóðsins í Sjávarleðri hf. á Sauðárkróki, tæplega 50%. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að Roðskinn sé í eigu sömu aðila og Norðurströnd ehf. á Dalvík, en Norðurströnd átti fyrir rúmlega 30% í félaginu. 13.9.2010 10:54
Deutsche Bank eykur hlut sinn í Deutsche Postbank Deutsche Bank tilkynnti i dag að þeir ætla að ráðast í 12,5 milljarða dala skuldabréfaútboð. Peningana ætla þeir einkum að nota til þess að kaupa hlut í Deutsche Postbank. Hlutina í Deutsche Postbank ætla þeir að kaupa á 24 og 25 evrur á hlut. Deutsche Bank á í dag rétt tæplega 30% í Deutsche Postbank. 13.9.2010 10:11
Jón Ásgeir hafnar ásökunum um stuld Telji slitastjórnin að við höfum stolið peningum frá Glitni, ber henni að kæra málið til lögreglu en ekki ferðast með það til New York, segir Jón Ásgeir Jóhannesson sem segir fullyrðingu þar um, ekki standast skoðun. Hann bendir á að rannsóknarfyrirtækið Kroll hafi ekki fundið neina falda sjóði, þrátt fyrir rúmlega 12 mánaða leit. 12.9.2010 18:30
Telur skynsamlegt að endurvekja Þjóðhagsstofnun Uppgjörsnefnd Alþingis á bankahruninu vill að stofnuð verði sjálfstæð ríkisstofnun sem hafi það hlutverk að greina efnahagslífið líkt og Þjóðhagsstofnun gerði. Fyrrverandi forstjóri stofnunarinnar telur skynsamlegt að endurvekja hana í einhverri mynd. 12.9.2010 12:15
Nógu hafa þeir stolið Slitastjórn Glitnis hefur lagt fram fjöldan allan af sönnunargögnum fyrir dómstóli í New York í tengslum við hundruð milljarða króna skaðabótamál á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Hannesi Smárasyni og fleirum. Slitastjórn Glitnis segir að kostnaður hinna stefndu vegna málareksturs í New York sé smávægilegur í samanburði við þær háu upphæðir sem slitastjórnin segir þá hafa stolið frá bankanum. 11.9.2010 19:14
Fylgja eftir málarekstrinum í New York Glitnir svaraði í gær í New York frávísunarkröfum sem Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir, sem stefnt var í máli bankans í New York, lögðu fram í júlí. Í svari sínu ítrekaði Glitnir þann eindregna ásetning sinn að fylgja eftir málarekstrinum í New York, enda væri hann liður í viðleitni bankans um heim allan til að endurheimta eignir í þágu kröfuhafa bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá slitastjórn Glitnis. 11.9.2010 16:37
Ýta af stað keðjuverkun verðhækkana Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að boðaðar hækkanir Orkuveitu Reykjavíkur muni ýta af stað keðjuverkun verðhækkana sem á endanum muni lenda á almenningi í landinu. 11.9.2010 14:45
Vill rifta samkomulagi VBS og Landsbankans Landsbankinn tók til sín nokkrar af verðmætustu eignum VBS fjárfestingarbanka, að fjárhæð 4,3 milljörðum króna, nokkrum mánuðum áður en VBS fór í þrot. Slitastjórnin vill rifta þessari greiðslu og verður tekin ákvörðun um málshöfðun á næstu vikum. 11.9.2010 12:15
Fullvissa sig um fjármögnunina Ekki hefur enn verið ákveðinn fundardagur fyrir stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Gert er ráð fyrir að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins verði tekin fyrir á fundi stjórnarinnar í þessum mánuði. 11.9.2010 08:00
Glæsivillan hans Laudrups til sölu Fyrrum heimili knattspyrnugoðsagnarinnar Michaels Laudrups í Danmörku er nú til sölu. 10.9.2010 20:02
GAMMA: Góð vika í Kauphöllinni Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 26,8 ma. viðskiptum sem er næst veltumesti dagur ársins. 10.9.2010 16:12
Skuldsetning og gjaldeyrisbrask helsti vandi OR Fjárhagsvandi Orkuveitunnar stafar af of mikilli skuldsetningu og spákaupmennsku með gjaldeyri. Gjaldskrá fyrirtækisins þarf að hækka enn frekar ef fyrirtækið á að komast út úr fjárhagsvandanum, að mati Greiningar Arion banka. 10.9.2010 12:13
OECD: Bakslag komið í efnahagsbatann Samkvæmt efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) gæti verið að draga hraðar og meira úr efnahagslegum bata en áður var gert ráð fyrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri áfangaskýrslu stofnunarinnar sem birt var í morgun. 10.9.2010 11:49
Nauðungarsölur fasteigna orðnar jafnmargar og allt árið í fyrra Í lok ágúst 2010 höfðu 205 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er nánast sami fjöldi og allt árið í fyrra þegar 207 fasteignir voru seldar nauðungarsölu. 10.9.2010 11:24
Launaveisla í dönskum bönkum Þrátt fyrir almennar þrengingar á danska vinnumarkaðinum hafa starfsmenn danskra banka upplifað mikla launaveislu á síðasta ári. Laun þeirra hækkuðu um allt að 9% að meðatali á árinu meðan að aðrir almennir launþegar þurftu að láta sér nægja hækkanir upp á 2% til 3%. 10.9.2010 10:31
Hrein eign lífeyrissjóða jókst um 10,6 milljarða í júlí Hrein eign lífeyrissjóða í lok júlí sl. var 1.835 milljarðar kr og hækkaði hún um 10,6 milljarða kr í mánuðinum. Sé miðað við júlí 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 141,4 milljarða kr. 10.9.2010 09:25
Taprekstur hins opinbera tæpir 150 milljarðar í fyrra Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009, eða sem nemur 9,9% af landsframleiðslu og 24,3% af tekjum þess. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 13,5% af landsframleiðslu 2008 en jákvæð um 5,4% árið 2007. 10.9.2010 09:03
Nýir eigendur Straums reikna með 47% endurheimtum Hinir nýju eigendur Straums reikna með að endurheimtur þeirra úr þrotabúi bankans muni nema um 47% sem þýðir að þeir reikna með að fá rúmlega 90 milljarða króna til baka. 10.9.2010 08:09
Sænskur lífeyrissjóður blandar sér í kaupin á FIH Folksam einn af stærstu lífeyrissjóðum Svíþjóðar hefur blandað sér í baráttuna um kaupin á FIH bankanum í Danmörku. 10.9.2010 07:37
Eintak af dýrustu bók heims boðið upp hjá Sotheby´s Sjaldgæft eintak af dýrustu bók heims mun fara á uppboð hjá Sotheby´s í London í desember. Bókin heitir Fuglar Ameríku og var gefin út á átjándu öld. 10.9.2010 07:21
Greining býst við verulegum frekari gjaldskrárhækkunum OR Greining Arion banka segir að endurskipulagning Orkuveitu Reykjavíkur (OR) muni meðal annars krefjast þess að verulegar frekari gjaldskrárhækkanir komi til, Reykjavíkurborg leggi til aukið eigiðfé og lán verði endurfjármögnuð. 10.9.2010 07:09
Bankarnir ákváðu kaupin „Ég tók enga ákvörðun um það ásamt Björgvin [innskot blm: G. Sigurðssyni, þá viðskiptaráðherra], að kaupa þessi skuldabréf," segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann bendir á að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis komi skýrt fram að bráðabirgðastjórnir nýju bankanna hafi ákveðið að kaupa eignir peningamarkaðssjóða rekstrarfélaga þeirra með hliðsjón af verðmati óháðra endurskoðenda. 10.9.2010 06:30
Á ekki von á öðru samdráttarskeiði Efnahagslífið í heiminum tekur hægar við sér en spáð var. Annað samdráttarskeið er þó ólíklegt, samkvæmt spám Efnahags- og framfarastofnunarinnar. 9.9.2010 23:45
Slitameðferð Straums lokið Lánadrottnar hafa tekið við eigum Straums fjárfestingarbanka af skilanefnd bankans. Á fréttavefnum Financial Times kemur fram að þessi atburðarrás gæti sett fordæmi fyrir slitameðferð stóru bankana þrjá sem féllu í október 2008. 9.9.2010 20:26
Svaraði athugasemdum vegna gagnavera Fjármálaráðherra sendi í dag hagsmunasamtökum þeirra sem reka gagnaver svar í dag vegna óska þeirra um skattaívilnanir vegna reksturs gagnavera hér á landi. Fréttir hafa borist af því undanfarna daga að fyrirtæki sem hugðust reka gagnaver hér á landi væru farin að hugsa sinn gang. Ástæðan væri óhagstætt skattaumhverfi. 9.9.2010 19:15
Laun í bankakerfinu helmingi hærri en annarsstaðar Laun í bankakerfinu eru uppundir helmingi hærri en laun á almennum vinnumarkaði hér á landi. Meðallaun í stóru bönkunum þremur nema um hálfri milljón á mánuði, en laun sérfræðinga og stjórnenda hífa meðaltalið verulega upp. 9.9.2010 18:30
GAMMA: Talsverð velta í Kauphöllinni í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1% í dag í 24,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1,3% í 17,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 7,1 ma. viðskiptum. 9.9.2010 16:14
Skuldatryggingarálagið lækkar hér en hækkar í Evrópu Skuldatryggingarálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Íslandsbnaki bendir á það í Morgunkorni sínu að við lok dags í gær hafi álagið staðið í 315 punktum (3,15%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. 9.9.2010 13:44
Seðlabankinn mótmælir afstöðu slitastjórnar Seðlabanki Íslands hefur andmælt afstöðu slitastjórnar Icebank til krafna upp á yfir 200 milljarða króna en nú tekur við formlegt sáttarferli í málinu. Náist ekki að semja verður málinu vísað til dómstóla. 9.9.2010 12:06
Hagar keyptu eigin bréf af stjórnendum fyrir milljarð Hagar keyptu eigin bréf af helstu stjórnendum félagsins fyrir rúman milljarð. Þá vildu helstu lífeyrissjóðir landsins ekki fjárfesta í Högum með Jóhannes Jónsson innanborðs. 9.9.2010 11:49
Engin metvelta í Kauphöllinni í gær Velta á skuldabréfamarkaði í gær var ekki sú mesta frá áramótum. Í tilkynningu frá Nasdaq OMX Iceland kemur fram að veltan í gær var 25,4 milljarðar en ekki tæpir 29 milljarðar eins og ranghermt var á Vísi í gær. Veltumesti dagurinn hingað til á árinu er því enn 12. mars, þegar veltan var rúmir 26 milljarðar. 9.9.2010 11:39
Danskir auðmenn eiga allt að 100 milljarða í Sviss Danskir auðmenn geyma stóra hluta af auðæfum sínum á bankareikningum í Sviss. 9.9.2010 07:25
Tveir hópar berjast um kaupin á FIH bankanum Tveir hópar fjársterkra aðila berjast nú um kaupin á FIH bankanum í Danmörku. Bankinn er í eigu skilanefndar Kaupþings en veðsettur Seðlabanka Íslands. 9.9.2010 07:18
Deutsche Bank gæti létt á erlendum skuldum Íslands um 10% Leiða má góðar líkur að því að Deutsche Bank sé að létta á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins um 10% eða 300 milljarða kr. 9.9.2010 07:13
Ísland fellur um sex sæti í samkeppnisvísitölu Ísland er nú í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) 2010-2011 en var í 26. sæti fyrir ári síðan. Samkeppnishæfnivísitalan byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. 9.9.2010 06:57
Rannsóknarstofa í hreyfivísindum samdi við Össur Rannsóknastofa í hreyfivísindum við Námsbraut í sjúkraþjálfun og Össur hf. hafa undirritað samning þess efnis að Rannsóknastofa í hreyfivísindum og Össur muni hafa með sér samstarf við rannsóknir og prófanir á stoð- og stuðningstækjum úr framleiðslulínu Össurar, auk grunnrannsókna sem gætu leitt til þróunar á nýrri vöru. Tveimur samstarfsverkefnum er þegar lokið og kom Nýsköpunarsjóður námsmanna að öðru þeirra. 8.9.2010 18:30
Kröfuhafar taka yfir Existu Kröfuhafar Exista ehf. samþykktu með 97,35% atkvæða frumvarp til nauðasamnings fyrir Exista í dag. Samkvæmt nauðasamningnum fá kröfuhafar full yfirráð yfir félaginu. 8.9.2010 17:23
Ástarbréfin sögð málamyndagjörningur Slitastjórn Sparisjóðabanka Íslands segir að yfirmenn Seðlabankans hafi leynt raunverulegri stöðu viðskiptabankanna rétt fyrir hrun þegar Seðlabankinn lánaði bankanum ríflega tvöhundruð milljarða króna í endurhverfum viðskiptum. Þessir samningar hafa síðan verið kallaðir ástarbréf. 8.9.2010 15:36
Engin ríkisaðstoð - ákvörðunin var viðskiptalegs eðlis Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu að engin fyrirmæli um kaup á eignunum úr sjóðunum voru gefin út af stjórnvöldum vegna peningamarkaðssjóða hér á landi. Ráðuneytið lítur svo á að ákvörðunin hafi verið viðskiptalegs eðlis. 8.9.2010 14:15
ESA rannsakar ríkisaðstoð vegna peningamarkaðssjóðanna Eftirlitsstofnun EFTA hóf í dag rannsókn á því hvort ríkisábyrgð á Peningamarkaðssjóðunum hafi verið ólögleg. Þetta kemur fram á vefsíðu ESA í dag. 8.9.2010 13:35
Segir ríkisstjórn fæla erlenda fjárfesta frá með seinagangi Seinagangur um nauðsynlegar breytingar á reglugerðum um VSK og óskýr svör ráðamanna vegna uppbyggingu gagnavera hefur dregið mjög úr trúverðugleika Íslands og hugsanlega fælt erlenda viðskiptavini frá landinu að mati formanns samtaka íslenskra fyrirtækja í gagnaversiðnaði. 8.9.2010 13:17
Lego selst fyrir milljarða Velta Lego jókst um 34% á fyrstu sex mánuðum ársins, eða úr 4,4 milljörðum danskra króna á fyrri helmingi ársins í fyrra í 5,9 milljarða á fyrri helmingi þessa árs. Því lætur nærri að veltan á fyrri helmingi þessa árs hafi numið 118 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn jókst líka úr 927 milljónum danskra króna í 1,5 milljarð á fyrri helmingi þessa árs. 8.9.2010 12:33
Greining: Ekkert að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt Greining Íslandsbanka segir að ekkert sé að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt og breytingar á landsframleiðslunni milli ára og ársfjórðunga. 8.9.2010 10:57
Ólafur Ragnar: Bankarnir ekki á ábyrgð íslenska ríkisins Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson segir að íslensku bankarnir sem hrundu haustið 2008 hafi verið einkabankar og þar með ekki á ábyrgð ríkisins. Hinsvegar hefði íslenska ríkið ætíð staðið við skuldbindingar sínar og greitt að fullu þau lán sem það hefur tekið. 8.9.2010 10:20
Kilroy mætir aftur Norræna ferðaskrifstofan Kilroy Travel hefur í vikunni innreið sína á ný á íslenskan ferðamarkað. Á morgun verður nýr vefur og þjónusta fyrirtækisins kynnt á veitingastaðnum Faktorý. 8.9.2010 10:00
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent