Viðskipti innlent

Slitameðferð Straums lokið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lánadrottnar hafa tekið við eigum Straums fjárfestingarbanka af skilanefnd bankans. Á fréttavefnum Financial Times kemur fram að þessi atburðarrás gæti sett fordæmi fyrir slitameðferð stóru bankana þrjá sem féllu í október 2008.

„Viðbrögðin frá erlendum lánadrottnum hafa verið þau að þetta sé góður samningur og mikilvægt skref í endurskipulagningu bankanna frá bankahruni," sagði Dean Merritt, ráðgjafi Straums, í samtali við Financial Times.

Hér eftir munu helstu kröfuhafar bankans, sem áttu 1,3 milljarða evra, kröfur í bankann fara með eigur hans. Þarna er átt við fjárfestingasjóðina Davidson Kempner og Varde Partners og austurríska bankann RZB. Straumur mun hér eftir verða að fullu í eigu þeirra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×