Nýsköpunarsjóður selur eignarhluti sína í Sjávarleðri 13. september 2010 10:54 Frá undirritun samningsins.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og hið nýstofnaða hlutafélag Roðskinn ehf. tilkynntu í dag samkomulag um kaup Roðskinns á öllum eignarhlutum sjóðsins í Sjávarleðri hf. á Sauðárkróki, tæplega 50%. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að Roðskinn sé í eigu sömu aðila og Norðurströnd ehf. á Dalvík, en Norðurströnd átti fyrir rúmlega 30% í félaginu. Sjávarleður var stofnað á árinu 1994 um þróun á leðri unnu úr fiskroði. Sjóðurinn gerðist hluthafi á árinu 2000 og hefur verið einn af stærstu hluthöfum og bakhjörlum félagsins síðan þá. „Sjávarleður hefur þróað og sérhæft sig í framleiðslu hágæða leðurs úr mismunandi fisktegundum," segir meðal annars í tilkynningunni. Hjá Sjávarleðri og tengdum félögum starfa um 17 starfsmenn. Guðmundur St. Jónsson, framkvæmdastjóri Norðurstrandar og Roðskinns segir að Norðurströnd hafi átt gott samstarf með Nýsköpunarsjóði undanfarin ár við uppbyggingu Sjávarleðurs og dótturfélaga þess. „Það er ásetningur okkar að halda áfram að byggja ofan á það góða starf sem þar hefur verið unnið. Við þökkum sjóðnum fyrir árangursríkt og gott samstarf." Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins segir að sjóðurinn hafi verið virkur þáttakandi í starfi Sjávarleðurs og að félagið hafi nú náð góðum þroska og standi vel. „Nýsköpunarsjóður fagnar því að nú vilji aðrir taka við keflinu og vart er hægt að hugsa sér betri arftaka en Roðskinn. Sjóðurinn vill þakka hluthöfum Sjávarleðurs, stjórn og starfsmönnum félagsins ánægjulegt og farsælt samstarf og óskar þeim alls hins besta."
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira