Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir ríkisstjórn fæla erlenda fjárfesta frá með seinagangi Seinagangur um nauðsynlegar breytingar á reglugerðum um VSK og óskýr svör ráðamanna vegna uppbyggingu gagnavera hefur dregið mjög úr trúverðugleika Íslands og hugsanlega fælt erlenda viðskiptavini frá landinu að mati formanns samtaka íslenskra fyrirtækja í gagnaversiðnaði. 8.9.2010 13:17
Lego selst fyrir milljarða Velta Lego jókst um 34% á fyrstu sex mánuðum ársins, eða úr 4,4 milljörðum danskra króna á fyrri helmingi ársins í fyrra í 5,9 milljarða á fyrri helmingi þessa árs. Því lætur nærri að veltan á fyrri helmingi þessa árs hafi numið 118 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn jókst líka úr 927 milljónum danskra króna í 1,5 milljarð á fyrri helmingi þessa árs. 8.9.2010 12:33
Greining: Ekkert að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt Greining Íslandsbanka segir að ekkert sé að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt og breytingar á landsframleiðslunni milli ára og ársfjórðunga. 8.9.2010 10:57
Ólafur Ragnar: Bankarnir ekki á ábyrgð íslenska ríkisins Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson segir að íslensku bankarnir sem hrundu haustið 2008 hafi verið einkabankar og þar með ekki á ábyrgð ríkisins. Hinsvegar hefði íslenska ríkið ætíð staðið við skuldbindingar sínar og greitt að fullu þau lán sem það hefur tekið. 8.9.2010 10:20
Kilroy mætir aftur Norræna ferðaskrifstofan Kilroy Travel hefur í vikunni innreið sína á ný á íslenskan ferðamarkað. Á morgun verður nýr vefur og þjónusta fyrirtækisins kynnt á veitingastaðnum Faktorý. 8.9.2010 10:00
Aldrei meiri afgangur af vöruskiptum í sögu Danmerkur Það er víðar en á Íslandi sem mikill afgangur er af vöruskiptum. Í Danmörku hefur aldrei í sögu landsins orðið meiri afgangur af vöruskiptum landsins. 8.9.2010 09:47
Laun hækkuðu um 1,2% milli ársfjórðunga Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,2% hærri á öðrum ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. 8.9.2010 09:11
Voldugur og flottur Maður kann hálfilla við að kalla Audi Q7 jeppling, enda er hann stór og voldugur. Heitið sportjeppi fer honum betur. Tekin var til kostanna 2007 árgerðin af þessum bíl, Audi Q7 TDi með þriggja lítra dísilvél, hlaðinn aukabúnaði og hægindum. Spurningunni um hvort bíllinn standi undir því að vera kallaður „forstjórabíll“ er auðsvarað, hann gerir það vel. 8.9.2010 08:30
Skattaskýrsla fæðist „Við erum að leggja lokahönd á áfangaskýrsluna. Hún verður afhent ráðherra í vikunni,“ segir Maríanna Jónasdóttir, fulltrúi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og formaður starfshóps á vegum fjármálaráðuneytis, sem leggja á fram heildstæðar tillögur að breytingum á skattkerfinu. 8.9.2010 08:30
Sjálfsmorð kosta japanska hagkerfið 3.800 milljarða Japönsk stjórnvöld segja að sjálfsmorð og þunglyndi hafi kostað japanska hagkerfið um 32 milljarða dollara, eða um 3.800 milljarða króna, á síðasta ári. 8.9.2010 08:02
Vill landið úr höndum hagsmunahópa Stjórnvöld eiga að nýta kreppuna og byggja upp nýjan iðnað. Draga á úr stuðningi við landbúnað, sjávarútveg og áliðnað. Þrátt fyrir áherslu á ferðaþjónustu má ganga enn lengra, að sögn Seiichiro Yonekura, forstöðumanns í nýsköpunarfræðum við Hitotsubashi-háskólann í Japan. 8.9.2010 08:00
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 24 milljarða Nokkuð gekk á gjaldeyrisforða Seðlabankans í ágústmánuði en þá rýrnaði hann um tæplega 24 milljarða króna. 8.9.2010 07:48
Vill framleiðsluna í hendur fólksins „Von mín er að draga fram hugmyndir um það hvernig valddreifing í samfélaginu er háð stjórnun á framleiðslugetu og vekja fólk til umhugsunar um það hvernig við getum komið henni í hendur almennings,“ segir Smári McCarthy, einn stofnenda og ritari Félags um stafrænt frelsi á Íslandi. 8.9.2010 07:30
Soros gefur mannréttindasamtökum 12 milljarða Ofurfjárfestirinn George Soros segir að hann muni gefa bandarísku mannréttindasamtökunum Human Rights Watch hundrað milljónir dollara eða tæplega 12 milljarða milljarða króna. 8.9.2010 07:25
Skilanefndir bankanna - hvaða fyrirbæri eru þetta? Skilanefndir og slitastjórnir gömlu bankanna hafa verið í kastljósinu allt frá því að þær tóku við stjórn bankanna í gjörningaveðri á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í október fyrir tæpum tveimur árum. 8.9.2010 07:00
ESB mundar pennann Viðræður standa nú yfir um leigu sendinefndar Evrópusambandsins (ESB) hér á landi á húsnæði í miðborg Reykjavíkur. Stefnt mun að því að skrifa undir leigusamning í vikulokin og áætlar nefndin að opna upplýsingaskrifstofu fyrir gesti og gangandi sem vilja fræðast um ESB í nýju húsnæði á næsta ári. 8.9.2010 07:00
Færðu 90 milljarða frá Englandsbanka Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans varð að semja við nokkra af stærstu bönkum Evrópu svo þeir tækju ekki innstæður hennar upp á jafnvirði níutíu milljarða króna upp í kröfur. Bankarnir eru margir hverjir kröfuhafar þrotabús Landsbankans. 8.9.2010 06:30
Lánin öll kosta sextán milljarða króna Seðlabankinn áætlar að vaxtakostnaður við lánin sem tekin voru í tengslum við efnahags-áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nemi 104 milljónum evra, jafnvirði sextán milljarða króna, á ári verði þau öll nýtt. Lánin mynda gjaldeyrisforða Seðlabankans. 8.9.2010 06:00
Forstjóri rauk upp í tekjum Urgur var meðal starfsmanna Símans eftir að álagningarskrár skattstjóra í sumar gáfu til kynna að forstjóri félagsins, Sævar Freyr Þráinsson, hefði rokið upp í launum milli 2008 og 2009, fengið 5,3 miljónir króna á mánuði í stað 2,5 milljóna áður. Starfsmenn Símans sem höfðu yfir 350 þúsund krónur á mánuði tóku á sig launalækkun eftir hrunið. 8.9.2010 04:00
SA: Misvísandi skilaboð um hagþróun Samtök atvinnulífsins vilja vekja sérstaka athygli á þýðingu fjárfestinga fyrir íslenskt samfélag nú þegar afar misvísandi skilaboð um hagþróun koma fram og skapa mikla óvissu um þróun atvinnulífsins og efnahags þjóðarinnar. 7.9.2010 16:28
GAMMA: Skuldabréfavísitalan hækkaði lítillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 16,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 7,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 7,5 ma. viðskiptum. 7.9.2010 16:00
Starfsmenn eignast hlut í H&M Fatavörukeðjan H&M hefur ákveðið að setja á fót nýtt hvatakerfi fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Tilgangurinn er að auka hollustu starfsmanna við fyrirtækið. 7.9.2010 14:16
Afkoma Íslandsbanka jákvæð um rúma átta milljarða Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshluta 2010 var samkvæmt könnuðum árshlutareikningi jákvæð um 8,3 milljarða króna og er tekjuskattur tímabilsins áætlaður 2.347 milljónir króna. Frá þessu er greint á heimasíðu bankans en eiginfjárhlutfall hans var 21,5% sem er talsvert hærra en það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið hefur sett bankanum. Arðsemi eigin fjár var 17,1%. 7.9.2010 14:00
Samorka óttast spekileka í jarðhitanýtingu Stjórn Samorku lýsir verulegum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin vegna tafa á verkefnum í jarðhitanýtingu hérlendis. Í tilkynningu frá Samorku segir að á örfáum misserum hafi orðið gríðarlegur tekjusamdráttur hjá lykilþjónustuaðilum orkufyrirtækja á borð við Jarðboranir, ÍSOR-Íslenskar orkurannsóknir og verkfræðistofurnar. 7.9.2010 11:46
Raungengi krónunnar hefur hækkað um 12,5% í ár Raungengi krónu hækkaði í ágústmánuði um 2,1% frá fyrri mánuði, sé miðað við hlutfallslegt neysluverð. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var vísitala raungengis á ofangreindan mælikvarða 76,6 stig í júlí. Það sem af er ári hefur raungengið hækkað um 12,5% á þennan mælikvarða. 7.9.2010 10:45
Actavis haslar sér völl á sviði líftækni Actavis ætlar að hasla sér völl á sviði líftækni og mun hefja áreiðanleikakönnun á svissneska líftæknifyrirtækinu Biopartners á næstunni. Ef af kaupunum verður eignast Actavis 51% hlut í Biopartners. 7.9.2010 09:32
Nýskráningar bíla aukast um 21,6% Nýskráningar bíla í janúar-ágúst voru 2.822 sem er 21,6% aukning frá janúar- ágúst í fyrra. 7.9.2010 09:16
Raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í janúar-júlí í ár miðað við janúar-júlí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 3,5 % á sama tíma. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 9,8% (miðað við meðaltal vísitölunnar í janúar-júní) sem veldur 3,8% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu. 7.9.2010 09:12
Vöruskiptin hagstæð um 2,4 milljarða í ágúst Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2010 var útflutningur 41,8 milljarður króna og innflutningur 39,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 7.9.2010 09:02
Mikill viðsnúningur á íbúðamarkaðinum í sumar Greining Íslandsbanka segir að mikill viðsnúningur til hins betra hafi orðið á íbúðamarkaðinum hérlendis í sumar. Kaupsamningum hafi fjölgað um 50% miðað við sama tíma í fyrra. 7.9.2010 08:24
Börsen segir Össur hf. vera gullegg að klekjast út Danska viðskiptablaðið Börsen fer mjög lofsamlegum orðum um stoðtækjaframleiðandann Össur hf. Segir Börsen að Össur sé gullegg sem sé um það bil að klekjast út. 7.9.2010 08:01
Stærsta skattahneyksli Danmerkur í uppsiglingu Stærsta skattahneyksli í sögu Danmerkur er líklega í uppsiglingu. Upphæðin nemur 1.000 milljörðum danskra króna eða yfir 20.000 milljörðum króna. 7.9.2010 07:22
Telur líkur á að Seðlabanki sporni við frekari styrkingu krónunnar Leiða má líkur að því að Seðlabankinn kunni að sporna við frekari styrkingu krónunnar með kaupum sínum á gjaldeyri á markaðinum hérlendis. Ástæðan er sú að með sterkari krónu veikist samkeppnisstaða innlendra atvinnuvega sem myndi draga úr afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum. 7.9.2010 07:18
KB ráðgjöf hættir með Vista sparnað Arion banki og KB ráðgjöf hafa hætt að bjóða upp á nýja samninga í lífeyrissparnaðarleiðinni Vista á meðan bankinn endurskoðar reglur um upphafsþóknun í kaupsamningunum. 7.9.2010 05:00
Þingið ræðir söluna á Vestia Utandagskrárumræða um þátttöku lífeyrissjóðanna í endurreisn atvinnulífsins fer fram á Alþingi á morgun. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi en til andsvara er fjármálaráðherra. 6.9.2010 23:37
Deutsche Bank tilkynnti ESB um yfirtökuna á Actavis Actavis samheitalyfjafyrirtækið lýtur fullkomnum yfirráðum Deutsche Bank, ef eitthvað er að marka tilkynningu Deutsche Bank til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Björgólfur Thor taldi fyrir réttu ári að Actavis væri yfirskuldsett og gæti ekki geta staðið undir greiðslum á lánum. Þá taldi hann eigið fé uppurið. Þetta kemur fram í tölvupósti sem hann sendi samstarfsmönnum sínum. 6.9.2010 19:00
GAMMA: Óvanalega mikil velta á mörkuðum í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag í 21,1 ma. viðskiptum sem er fjórði veltumesti dagur ársins. 6.9.2010 16:25
Landinn drakk minna í sumar Sala áfengis dróst örlítið saman yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst miðað við sömu mánuði í fyrra. Á heimasíðu ÁTVR kemur fram að sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni hafi verið meiri en sömu mánuði 2009, en sala á bjór og sterkum vínum var minni. 6.9.2010 16:22
Ásta Dís verður framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar Ásta Dís Óladóttir mun á næstu dögum taka við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu Isavia ohf. 6.9.2010 16:18
Dró stórlega úr innflutningi á hráefni til fiskvinnslu Innflutt hráefni til fiskvinnslu dróst saman um 66 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram á vef Hagstofunanr en út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009. Í ritinu kemur fram að innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra. 6.9.2010 14:08
Seðlabankinn í óreglulegum kaupum á gjaldeyri Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri Seðlabankans segir að ekki sé rétt að bankinn hafi byrjað boðuð gjaldeyriskaup sín á gjaldeyrismarkaðinum áður en Peningastefnunefnd ákvað upphafsdagsetningu slíkra kaupa. 6.9.2010 12:48
Dregur úr tekjuhallanum Tekjuhalli hins opinbera var 30 milljarðar á öðrum ársfjórðungi 2010 og hefur dregið úr tekjuhallanum miðað við sama tíma í fyrra þegar hallinn nam 42 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Hagstíðindum Hagstofunnar sem koma út í dag. „Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 8,0% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 18,6%. Á sama ársfjórðungi 2009 mældist tekjuhallinn 11,1% af landsframleiðslu og 28,3% af tekjum hins opinbera,“ segir á vef Hagstofunnar en að mati stofnunarinnar skýrist þessi bætta afkoma fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem hækkað hafa verulega milli umræddra tímabila á sama tíma og dregið hefur verulega úr fjárfestingu hins opinbera eða um tæplega þriðjung. 6.9.2010 10:46
Auðugir Kínverjar hafna veisluboði frá Gates og Buffett Tveir af ríkustu mönnum heimsins hafa boðið kínverskum auðmönum til veislu í Bejing. Töluverður fjöldi hinna auðugu Kínverja hafa hafnað þessu boði. 6.9.2010 08:14
Gjaldeyriskaup Seðlabankans fyrr á ferðinni en ákveðið var Stjórn Seðlabanka Íslands hóf boðuð gjaldeyriskaup sín tæplega viku áður en Peningastefnunefnd bankans ákvað að kaupin skyldu hefjast. 6.9.2010 07:19
Stórt gap í kröfum Lýsingar Málflutningur fyrir hæstarétti hefst í vaxtamálinu svokallaða í fyrramálið. Stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna segir stórt gap í kröfum Lýsingar sem þurfi að fylla. 5.9.2010 19:25