Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
3,1 prósents samdráttur milli ársfjórðunga Landsframleiðsla dróst saman um 3,1 prósent að raungildi milli fyrsta og annars ársfjórðungs, að því er fram kemur í áætlunum sem Hagstofa birti í gær. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 7,4 prósent, einkaneysla um 3,2 prósent og fjárfesting um 4,7 prósent. Samneysla jókst um 1 prósent. Útflutningur jókst um 2,8 prósent og innflutningur dróst saman um 5,1 prósent. 4.9.2010 05:15
Telur of snemmt að blása kreppuna af Nýjar tölur um landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi þessa árs eru mikið áhyggjuefni, að mati Bjarna Más Gylfasonar hagfræðings Samtaka iðnaðarins. Þær gefa til kynna að hagkerfið sé enn í samdrætti og framleiðsla að minnka. Hann segir of snemmt að blása kreppuna af. 3.9.2010 20:00
Björgólfur Thor gæti aftur orðið ríkasti maður landsins Björgólfur Thor Björgólfsson gæti, sem einn ríkasti maður landsins, gengið frá samkomulagi við lánardrottna sína með tugi milljarða króna í vasanum ef áætlanir um vöxt Actavis ganga eftir. 3.9.2010 18:50
Högnuðust um rúmar 60 milljónir Íslensk verðbréf högnuðust um 63 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samkvæmt tilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum. 3.9.2010 16:16
Rösklega 18 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI stóð í stað í dag í 18,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 9,4 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 6,9 ma. viðskiptum. Samtals hækkaði GAMMA: GBI um 2,42% í vikunni, GAMMAi: Verðtryggt um 2,97% og GAMMAxi: Óverðtryggt um 0,98%. Meðal dagsvelta í vikunni var 15,98 ma., þar af 9,39 ma. með verðtryggt og 6,59 ma. með óverðtryggt. 3.9.2010 16:10
Rupert Murdoch með 2 milljarða króna í árstekjur Tekjur Ruperts Murdoch, eiganda dagblaðanna The Times, The Sun og News of The World lækkuðu um 6% á síðasta ári eða í 16,8 milljónir bandaríkjadala. 3.9.2010 14:46
Mun færri sagt upp í ár Mun færri starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum í hópuppsögnum í ár en í fyrra, eftir því sem fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka. 3.9.2010 11:27
Mesti samdráttur síðan 1945 Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,8% í fyrra samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2009, sem er um 0,3 prósentustigum meira en gert var ráð fyrir í áætlun frá því í mars síðastliðnum. 3.9.2010 09:07
Samdráttur um 3,1% Landsframleiðsla dróst saman um 3,1% að raungildi frá 1. ársfjórðungi til 2. ársfjórðungs, að því er bráðabirgðatölur Hagstofunnar benda til. 3.9.2010 09:01
Eyjamenn vísa ásökunum um fjárhagsvandræði á bug Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum gagnrýnir harðlega þau vinnubrögð Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, að setja Vestmannaeyjar í hóp sveitarfélaga í alvarlegum fjárhagsvanda, og hefur óskað eftir fundi með nefndinni til að leiðrétta það. 3.9.2010 08:10
Stórir bankar eru hættulegir Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir nauðsynlegt að stjórnvöld séu tilbúin að loka hreinlega stórum bönkum ef þeir standa á brauðfótum og gætu tekið fjármálakerfi landsins með sér í fallinu. 3.9.2010 05:00
Björgólfur Thor: Persónulegar ábyrgðir ekki felldar niður Björgólfur Thor Björgólfsson segir á vefsíðu sinni að persónulegar ábyrgðir vegna lána hans hér á landi séu ekki felldar niður, þeim sé aðeins frestað. 2.9.2010 18:41
Peningastefnunefnd sammála um stýrivaxtalækkun Peningastefnunefnd Seðlabankans var samhljóða í ákvörðun um eins prósentustigs lækkun vaxta á vaxtaákvörðunarfundi sínum þann 16. - 17. ágúst síðastliðinn. Þetta kemur fram í fundargerð Peningastefnunefndar sem birt var á vef Seðlabankans í gær. 2.9.2010 12:11
Riftunarmál gegn fyrrverandi bankastjórum þingfest Riftunarmál Landsbankans vegna uppgjörs á kaupaukasamningum upp á 400 milljónir króna rétt fyrir bankahrun voru þingfest í morgun. Riftunarmálin beinast gegn fyrrverandi bankastjórum Landsbankans og einum millistjórnanda. 2.9.2010 11:48
Hagkerfi í ESB að ná sér Nýjar hagtölur af Evrusvæðinu og aðildarríkjum Evrópusambandsins eru til vitnis um að horfurnar eru góðar í Evrópu og að hagkerfi ESB eru nú mörg hver óðum að ná sér eftir fjármálakreppuna, segir Greining Íslandsbanka í nýju Morgunkorni. 2.9.2010 11:38
Frestur til endurútreikninga á lánum framlengdur Fjármálaeftirlitið hefur veitt fjármálafyrirtækjum lengri frest til að endurútreikna lán með óskuldbindandi gengistryggingarákvæðum til viðskiptavina sinna á grunni sameiginlegra tilmæla FME og Seðlabanka Íslands frá 30. júní sl. 2.9.2010 10:09
Skulda skatt vegna séreignasparnaðar Viðskiptavinir Vista, séreignasparnaðarleiðar KB ráðgjafar, gætu átt von á tugþúsunda bakreikningi frá skattinum. Ástæðan er sú að sex greiðslur, frá þriðja mánuði samningstíma til þess áttunda, renna ekki í sparnað, sem er undanþeginn skatti, heldur í upphafsþóknun til fyrirtækisins. 2.9.2010 07:00
N1 greiðir skuldir eigendanna Olíuverðstríð í byrjun sumars kostaði N1 þrjú hundruð milljónir. Félagið er í sjálfskuldarábyrgð við móðurfélagið sem gat ekki greitt milljarðaskuldir um mitt ár. Eigendur gætu selt reksturinn, segir forstjóri Hermann Guðmundsson. 2.9.2010 06:15
Verðlagning fyrirtækja orðin eðlilegri Auður Capital tapaði 26 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Til samanburðar nam tapið á sama tíma í fyrra 55 milljónum. 2.9.2010 06:00
Eignir FL ofmetnar viljandi Póstsamskipti milli helstu stjórnenda FL Group sýna að eignir félagsins voru vísvitandi ofmetnar þegar þær voru settar inn í félagið Northern Travel Holding í því skyni að viðskiptin með flugfélagið Sterling myndu „meika sens út á við“. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta hluta úttektar á málinu í Viðskiptablaðinu í dag. 2.9.2010 06:00
Verslað fyrir 44 milljónir á dag Heildarviðskipti með hlutabréf í nýliðnum mánuði námu rúmum 935 milljónum króna, eða 44 milljónum að meðaltali á dag. Þessu til samanburðar nam hlutabréfaveltan 661 milljón, eða 30 milljónum króna á dag, í mánuðinum á undan. 2.9.2010 05:00
Bylting í manneldisvinnslunni Skip HB Granda hafa landað rúmlega 27 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld og makríl á Vopnafirði á þessu ári. Í fyrra hafði tæplega 41 þúsund tonnum af þessum tegundum verið landað á Vopnafirði. Vinnsla til manneldis hefur stóraukist á milli ára og er aukningin rúmlega þreföld ef miðað er við afurðamagn. 2.9.2010 05:00
Allar persónulegar ábyrgðir BTB á Íslandi felldar niður Íslenskir kröfuhafar Björgólfs Thors Björgólfssonar felldu niður allar persónulegar ábyrgðir á hendur honum og var það hluti af samkomulagi um allsherjaruppgjör sem leitt var af Deutsche Bank, stærsta kröfuhafa Actavis, en íslensku bönkunum var stillt upp við vegg af þýska bankanum. 1.9.2010 18:30
Íslandsbanki lækkar vexti Íslandsbanki lækkar vexti á inn- og útlánum frá og með deginum í dag, 1. september 2010. 1.9.2010 16:20
HS Veitur skila hagnaði 135 milljón króna viðsnúningur varð á rekstri HS Veitna miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður janúar til júní 2010 er 91 milljón á móti tapi fyrir sama tímabil 2009 upp á 43 milljónir. 1.9.2010 15:43
Sparisjóður Suður-Þingeyinga hagnaðist um 40 milljónir Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga nam 40 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem gerir rúmlega 31 milljón króna eftir skatta samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 1.9.2010 15:22
Skuldatryggingarálagið hefur lækkað um 162 punkta Skuldatryggingarálagið á Ríkissjóð Íslands stóð í gær í 320 punktum (3,20%%) og hefur það lækkað um 162 punkta frá áramótum að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka. 1.9.2010 11:48
Gjaldeyriskaup höfðu engin áhrif á krónuna Kaup Seðlabankans á gjaldeyri á millibankamarkaði sem hófust að nýju í gær höfðu engin sjáanleg áhrif á gengi krónunnar. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að þetta sé í samræmi við það sem bankinn hafði að leiðarljósi, það er að segja, að umfang viðskiptanna yrði með þeim hætti að áhrif á gengið yrðu sem minnst. 1.9.2010 11:40
Vísitölur GAMMA hækkuðu mikið í ágúst Skuldabréfavísitölur GAMMA hækkuðu mikið í ágúst og hefur mánaðarhækkun ekki verið meiri frá maí 2009. GBI vísitalan hækkaði um 5,04%. GAMMAxi óverðtryggð vísitala hækkaði um 5,59% en GAMMAi, verðtryggt, hækkaði um 3,64%. GBI vísitalan hefur hækkað um 14,85% það sem af er ári. 1.9.2010 10:54
Fjölskyldan er búin að missa allt - og fallið er hátt „Fjölskyldan hefur misst allt erlendis sem og á Íslandi. Fallið er hátt,“ er haft eftir einstaklingi sem stendur nærri Jóhannesi Jónssyni, áður eiganda Bónus, á bresku fréttasíðunni The Daily Telegraph. 1.9.2010 10:08
Kaffi gæti hækkað um allt að 30 prósent Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað um 33 prósent frá því í júní sökum uppskerubrests og breytinga á kaupháttum. Kaffiverð hefur ekki verið hærra í 13 ár og segja íslenskir kaffiframleiðendur að verðhækkanir séu óhjákvæmilegar hér á landi. 1.9.2010 06:15
Leitað að kaupendum að Magma-bréfinu Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur grennslast fyrir um áhuga mögulegra innlendra kaupenda að skuldabréfi á Geysi Green Energy vegna kaupanna á HS Orku. Uppreiknað virði bréfsins er um sjö milljarðar og er langstærsta peningalega eign bæjarfélagsins, sem á í töluverðum fjárhagskröggum og hefur ekki getað greitt af 1,8 milljarða erlendu láni sem fallið er í gjalddaga. Nú er unnið að færslu skuldabréfsins frá Geysi til Magma Energy. 1.9.2010 05:00