Viðskipti innlent

SI veitir umtalsverðu fé til mennta- og nýsköpunar

Á morgun 11. febrúar á Menntadegi iðnaðarins 2009 verður kynnt ákvörðun stjórnar Samtaka iðnaðarins um að verja umtalsverðum fjármunum til ákveðinna verkefna á sviði menntamála og nýsköpunar á næstu þremur árum. Veittir verða nokkrir styrkir til stofnana og verkefna.

Málþingið sem haldið verður á Grand hótel Reykjavík, Hvammi, hefst með ávarpi Helga Magnússonar, formanns SI en Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI afhendir styrki til menntamála. Þá ávarpar Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra gestina.

Að því loknu tekur málþing Menntadagsins við þar sem til máls taka Gunnar Guðni Tómasson, forseti Tækni- og verfræðideildar HR, Jón Þór Ólafsson, vörustjóri Marel og Ingibjörg Óðinsdóttir, mannauðsstjóri Skýrr.

Fundarstjóri er Ingi Bogi Bogason, forstöðumaður menntunar og mannauðs hjá SI








Fleiri fréttir

Sjá meira


×