Gjaldfallin skuldabréf Glitnis hækka í verði erlendis 11. febrúar 2009 13:35
Gjaldfallin skuldabréf Glitnis hafa meir en tvöfaldast í verði erlendis þar sem fjárfestar telja nú að skilanefnd bankans takist að endurheimta meira fé úr eignum bankans en áður var talið. Samkvæmt frétt á Bloomberg-fréttaveitunni hafa skuldabréfin hingað til verið seld á 6% af nafnverði eða 6 sent fyrir evruna. Verðið hefur nú hækkað í 14 sent eftir að fundur var haldinn með kröfuhöfum bankans í London í síðustu viku á vegum KNG Securities. Um er að ræða varin skuldabréf Glitnis en KNG segir að ekkert muni fást fyrir óvarin skuldabréf sem bankinn gaf út fyrir bankahrunið á Íslandi s.l. haust. Bloomberg hefur eftir Bill Blain verðbréfasala hjá KNG að skuldabréfin hafi snarhækkað í verði þessa vikuna sökum væntinga fjárfesta um að mun meira fáist upp í skuldir Glitnis en áður var talið. Eins og fram hefur komið í fréttum þessa vikuna er talið að skilanefnd bankans nái að endurheimta um 20-40% af eignum bankans upp í skuldir hans.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira