Magnús krafinn um milljarð fyrir ógreiddan skatt 10. febrúar 2009 18:29
Skattayfirvöld krefja Magnúsi Þorsteinsson um tæpan milljarð fyrir ógreiddan skatt af hagnaði við sölu á hlut hans í Samson eignarhaldsfélagi árið 2005. Félag á bresku Jómfrúareyjunum í eigu Magnúsar var skráð fyrir hlutnum. Magnús hyggst kæra málið til yfirskattanefndar. Miklar umræður hafa verið um eignarhald á félögum í skattaparadísum og hvort Íslendingar séu að fela eignarhaldið í þeim tilgangi að sniðganga skattalög. Skattyfirvöld hafa átt erfitt með að afla upplýsinga frá þessum ríkjum þar sem í sumum tilfellum engin skattayfirvöld eru til staðar til að svara fyrir slíkt. Í flestum tilvikum eru félög sem skráð eru í svona umhverfi bara nafnið tómt þar sem engin sýnileg starfsemi né starfsstöð er í viðkomandi ríki. Þar til fyrir ári voru félög sem högnuðust af sölu hlutabréfa í íslenskum fyrirtækjum skattskyld hér á landi þó svo þau væru skráð í skattaparadísum. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að félagið Mirol Investment sem er í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, og var skráð á bresku Jómfrúareyjunum, hafi selt hlut sinn í Samson eignarhaldsfélagi sem hann átti með Björgólfsfeðgum með verulegum hagnaði í maí árið 2005. Samson var stærsti hluthafi Landsbankans. Tilkynning um söluna birtist í Kauphöllinni og upphæðina 6,8 milljarðar má finna í ársreikningi Samson. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Magnús hafi ekki greitt skatt af hagnaðnum hér á landi og að skattayfirvöld hafi nú beint skattlagninu auk viðurlaga sem nemur tæpum milljarði að Magnúsi sjálfum. Yfirmaður skattasviðs hjá KPMG sem vinnur að málinu fyrir hönd Magnúsar segir skattayfirvöld fara fram með oforsi þar sem ekki séu til lagaleg rök fyrir þessu máli. Félagið hafi verið flutt til Lúxemborgar frá bresku Jómfrúareyjunum hálfu ári fyrir söluna. Vegna tvísköttunarsamnings við Lúxemborg liggi skattlagningarrétturinn á söluhagnaðinum hjá yfirvöldum í þar en ekki á Íslandi. Málið er komið í kærumeðferð og verður kært til yfirskattanefndar. Enginn úrskurður eða dómur hefur fallið um hvort skattlagning af þessu tagi stenst íslensk lög og er því um fordæmisgefandi mál að ræða.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira