Viðskipti innlent

Skuldabréf Atorku færð á Athugunarlista í kauphöllinni

Skuldabréf útgefin af Atorku hafa verið færð á Athugunarlista í kauphöllinni vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu, dags. 11. febrúar 2009, um greiðsluerfiðleika félagsins.

Í tilkynningu frá Atorku í gær segir að í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Atorku Group hf. með viðskiptabönkum félagsins, hefur Atorka Group hf. samið við alla eigendur skuldabréfa í eftirtöldum flokkum um kyrrstöðu til 20. mars 2009.

Þeir flokkar sem um ræðir eru: ATORKA 07 2, útgefinn að verðmæti 3,5 milljarða kr. og ATORKA 06 1, vegna vaxtagjalddaga, útgefinn að verðmæti 2 milljarða kr..

Í samningnum felst að komið er á fót nefnd sem í eiga sæti fulltrúar eigenda skuldabréfa í flokkunum. Sú nefnd vinnur að tillögum um samninga sem tryggja eiga hag eigenda skuldabréfa í flokknum.

Þegar niðurstaða hefur verið fengin mun verða tilkynnt um hana.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×