Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Merlin líklega selt fyrir helgi Danska blaðið Börsen segir í dag að verslunarkeðjan Merlin í Danmörku verði líklega seld fyrir helgi. Merlin er þekkt vörumerki í raftækjum og þvottavélum en keðjan er í eigu Sverris Berg Steinarssonar. 22.10.2008 08:48
Lækkun í Asíu í morgun Hlutabréf á Asíumörkuðum tóku dýfu í morgun í kjölfar lækkunar vestanhafs í gær. Nikkei-vísitalan lækkaði um sex prósent og KOSPI-vísitalan í Kóreu um rúmlega átta sem er mesta lækkun þeirrar vísitölu á einum degi í langan tíma. 22.10.2008 08:17
Norðmenn kæra Glitni fyrir fjárdrátt Norðmenn hafa kært Glitni fyrir að stinga undan sjö milljörðum íslenskra króna eftir að lán til þriggja aðila hafði verið greitt til baka og runnið í sjóði bankans, en ekki til upphaflegs lánardrottins. 22.10.2008 07:09
Bankahólfið: Fá peninginn án flotaaðstoðar „Hrun íslenska hagkerfisins hefur verið ófögur sjón og hið versta er að breskir sparifjáreigendur virðast hafa tapað á öllu saman," sagði nýverið í sunnudagsblaði The Times. Blaðið benti þó á að fátt væri svo með öllu illt að ekki boðaði nokkuð gott og kvað Breta geta „endurheimt eitthvað af peningum sínum og það án þess að senda flotann á vettvang". 22.10.2008 06:00
Borgun leiðréttir um fimm prósent Borgun, aðalleyfishafi Mastercard hér á landi, hefur leiðrétt kortagengi hjá þeim sem notuðu kort sín erlendis hinn 7. október, um fimm prósent. Með því mun gengi Borgunar og Valitors þá dagana vera svipað. 22.10.2008 05:00
Hefðbundinn matur í sókn Kaupmenn þykjast merkja breytta hegðun landsmanna í matarinnkaupum sökum efnahagslægðarinnar sem nú ríki. Á þessu vekur Bændablaðið athygli í forsíðufrétt þar sem rætt er við Pétur Allan Guðmundsson, kaupmann í Melabúðinni. Hann segir samdrátt í margvíslegri munaðarvöru, en kveðst þó ekki merkja að fólk sé almennt að færa sig frá innfluttum varningi í innlendan „þó megi sjá mjög ákveðna sókn í hefðbundinn íslenskan mat – heimilismatinn – eins og slátur, svið og súpukjötið“, hefur Bændablaðið eftir Pétri. 22.10.2008 00:01
Líkin hrannast upp í Bretlandi Lík hrannast nú upp í líkhúsum í Bretlandi, en fjármálakreppan þar í landi hefur gert að verkum að aðstandendum gengur illa að selja eignir úr dánarbúum til að greiða fyrir útför ættingja sinna. Hið opinbera veitir nærri 900 evra styrk til greftrunar, en seinagangur og skriffinnska í breska ríkisbákninu gerir að verkum að greiðslur berast seint. 22.10.2008 00:01
Þekking fjármálafólksins virkjuð „Bankarnir tóku allt besta fólkið. Nú verðum við að virkja þá sem missa vinnuna og koma í veg fyrir að það fari úr landi,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi. 22.10.2008 00:01
Af sprotum sprettur ný framtíð „Það er fullt af tækifærum," segir dr. Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks, nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins. Hann mælir með því að fólk hætti að horfa til fortíðar, brjóti baksýnisspegilinn og gefi í fram á veg. Hann segir ekkert að óttast. 22.10.2008 00:01
Bretar lána Íslendingum 582 milljarða til að standa skil á Icesave Breska fjármálaráðuneytið er að leggja lokahönd á lán til Íslendinga upp á þrjá milljarða punda, eða um 582 milljarða íslenskra króna. Þetta er fullyrt í breska viðskiptablaðinu Financial Times í kvöld. Þar er sagt að lánið sé hugsað til þess að íslensk yfirvöld geti staðið skil á skuldum vegna innlána breskra sparifjáreigenda hjá Icesave. Eins og Vísir greindi frá fyrr í kvöld er von á sendinefnd frá breska fjármálaráðuneytinu til landsins í vikunni og segir FT að tilgangur ferðarinnar sé að ganga frá skilmálum lánsins og hefur það eftir íslenskum ráðamönnum. 21.10.2008 22:40
Fall íslensku bankanna leikur Bayern LB grátt Þýski bankinn Bayern Landesbank varð í dag fyrsti bankinn til þess að óska eftir fjárstuðningi frá þýska ríkinu eftir að Þjóðvervjar ákváðu að koma á fót sérstökum 500 milljarða evra björgunarpakka fyrir bankastofnanir í vanda. Bayern LB óskar eftir allt að 5,4 milljörðum evra í aðstoð og samkvæmt þýskum miðlum er 1,5 milljarður af þeirri upphæð rakinn til þess hve bankinn hafi verið duglegur við að lána íslenskum bönkum. 21.10.2008 20:13
Green lítur til annara félaga Í miðvikudagsútgáfu breska blaðsins The Times er úttekt á Sir Philip Green þar sem sagt er að hann hafi skotið áformum um að kaupa skuldir Baugs á frest og að hann sé að líta í aðrar áttir. Í greininni er Green sagður búa sig undir að kaupa fjölda verslana og fyrirtækja í því árferði sem nú er í verslunargeiranum í Bretlandi. Sagt er að kaupin á hluta Baugs séu enn mjög óljós í ljósi ástandsins á Íslandi en að hann sjái tækifæri annarsstaðar. 21.10.2008 21:57
Hagur Apple vænkast Bandaríski hátækniframleiðandinn Apple hagnaðist um 1,14 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 126 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi. Hann er sá fjórði bókum félagsins. Til samanburðar nam hagnaðurinn 904 milljónum dala á sama tíma í fyrra. 21.10.2008 21:08
Hagnaður Yahoo dregst verulega saman Hagnaður bandaríska netleitarfyrirtækisins Yahoo drógust saman um 64 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Fyrirtækið leitar nú leiða til að draga úr rekstrarkostnaði, svo sem með uppsögnum. 21.10.2008 20:50
Talsvert fall á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa féll almennt á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfesta þykja greina fá merki um bata í efnahagslífinu þó sumir reikni með mýkri lendingu en búist var við. 21.10.2008 20:21
Saga Capital bregst við veðkalli - Ákvörðun FME kemur verulega á óvart Saga Capital hefur í dag orðið við veðkalli Seðlabanka Íslands frá því í gær og lagt fram viðbótarveð í formi reiðufjár og ríkisskuldabréfa í samræmi við reglur Seðlabankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en í henni undrast forstjóri Saga Capital ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. 21.10.2008 17:42
Um 20 milljarða króna viðsnúningur hjá sveitarfélögum vegna lóðaskila Sveitarfélögin á landinu berjast nú við mikinn vanda í kjölfar efnahagsástandsins í landinu. Sem dæmi má nefna að talið er að endurgreiðsla á lóðum og byggingarrétti muni valda 20 milljarða kr. viðsnúningi í bókhaldi sveitarfélaganna þar sem félögin höfðu áður reiknað með þessu sem tekjum. 21.10.2008 16:16
Kaupþing segir lífeyriseigur tryggar Inneign sjóðfélaga í lífeyrisafurðum Kaupþings er aðskilin eignum bankans og ekki er hægt að ráðstafa henni upp í skuldbindingar bankans. Þetta þýðir að eignir sjóðanna eru eignir sjóðfélaga en ekki bankans. Þetta kemur fram í orðsendingu frá Kaupþingi í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir rekstur Kaupþings. 21.10.2008 16:00
Eimskip hækkaði mest í dag Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hækkaði um 6,1 prósent í Kauphöllinni í dag. Það er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi Össur, sem hækkaði um 3,35 prónset, Century Aluminum fór upp um 0,85 prósent, Bakkavör um 0,79 prósent og Færeyjabanki um 0,32 prósent. 21.10.2008 15:30
Straumur lagði fram viðbótarveð til SÍ upp á 18 milljarða Straumur lagði í dag fram viðbótarveð hjá Seðlabankanum (SÍ) upp á 18,3 milljarða króna. Er þetta vegna kröfu SÍ um aukin veð vegna óvarinna verðbréfa útgefnum af viðskipabönkunum þremur. 21.10.2008 15:27
Hitaveitugull lagt inn í Sparisjóðinn í Keflavík Grindavíkurkaupstaður færði í gær 2 milljarða kr. inn á reikning í Sparisjóðnum í Keflavík en bæjarfélagið hefur verið með um 4 milljarða kr. inn á innlánsreikningi í Landsbankanum eftir sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja fyrr á árinu. Víkurfréttir greina frá þessu. 21.10.2008 14:38
Skilanefndarmenn fá um 265.000 krónur í mánaðarlaun Nefndarmenn hinna svokölluðu skilanefnda sem falin var stjórn Landsbanka Íslands, Glitnis og Kaupþings fá greiddar rúmlega 265.000 krónur á mánuði fyrir störf sín. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu eru nefndarmenn starfsmenn eftirlitsins samkvæmt tímabundnum ráðningasamningum sem við þá hafa verið gerðir. 21.10.2008 13:43
Hnútar að leysast í Bretlandi að sögn SÍ Sá hnútur sem hefur orðið á í greiðsluflæði milli Íslands og Bretlands virðist hafa verið leystur að mestu, ef marka má tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.Bankinn segir að búast megi við að það taki nokkra daga að koma greiðslum í eðlilegt horf. 21.10.2008 13:42
Krónan veldur usla í netbókunarkerfi SAS Það er víðar en á Íslandi sem íslenska krónan veldur usla. Þannig segja norrænir miðlar frá því að SAS-flugfélagið hafi ekki getað selt flugmiða frá Íslandi til Noregs að undanförnu vegna bilunar í netbókunarkerfi. Hana má svo rekja til óvissunnar gengi íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. 21.10.2008 13:33
Áætlar að um 200 bankamenn séu í atvinnuleit í öðrum löndum Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, áætlar að um helmingur þeirra bankastarfsmanna sem sagt hefur verið upp, eða um 200 manns, sé nú að leIta hófanna um atvinnu í öðrum löndum. 21.10.2008 13:19
Misjöfn staða fjármálafyrirtækja vegna krafna Seðlabankans Forsvarsmenn SPRON segja félagið hafa átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hafi gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar vegna frétta af því að Seðlabankinn hyggist krefja nokkrar fjármálastofnanur um auknar tryggingar vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta. 21.10.2008 12:55
Segir bréf SÍ til erlendra seðlabanka hafa farið beint í ruslið Indriði Ívarsson sölustjóri hjá Ögurvík segir að greinilegt sé að bréf Seðlabanka Íslands til erlendra seðlabanka um að þeir liðki til fyrir gjaldeyrisviðskiptum við Ísland hafi farið beint í ruslið. 21.10.2008 12:46
VBS vill að staðið verði við gerða samninga vegna kröfu SÍ VBS fjárfestingarbanki hf (VBS) hefur sent frá sér tilkynningu vegna kröfu Seðlabanka Íslands á hendur fjármálafyrirtækjum um auknar tryggingar. Segir VBS að verði staðið við gerða samninga er eigið fé VBS ekki í hættu vegna þessa. En vanefndir á samningnum af hálfu mótaðila VBS hefðu neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins. 21.10.2008 12:42
Bati á millibankamarkaði erlendis kemur Íslendingum til góða Nokkur bati hefur orðið á millibankamörkuðum erlendis síðustu daga og er það til marks um að umfangsmiklar aðgerðir yfirvalda í helstu iðnríkjum til að afstýra alþjóðlegri bankakreppu séu farnar að skila árangri. Þetta kemur lántakendum á Íslandi til góða. 21.10.2008 12:29
Spá 15,8 prósent verðbólgu í október Greining Glitnis spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 2,1% í október. Gangi spáin eftir verður 12 mánaða verðbólga 15,8%. 21.10.2008 12:04
IMF spáir stöðnun í Evrópu, Ísland verður verst úti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) spáir stöðnun í efnahagslífi Evrópu á næsta ári. Nokkur lönd munu upplifa kreppu og í þeim efnum verður Ísland verst úti að mati IMF. 21.10.2008 11:14
Seðlabankinn mun ekki krefja Byr um auknar tryggingar Í ljósi umræðna um Sparisjóðabankann (áður Icebank) og önnur fjármálafyrirtæki vill Byr sparisjóður koma því á framfæri, að á undanförnum árum hefur Byr lagt ríka áherslu á sjálfstæði gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum. Öll dagleg uppgjörð og innlend greiðslumiðlun fer nú í gegnum Seðlabanka Íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands. 21.10.2008 10:58
SPB horfir fram á gjaldþrot ef SÍ stendur við kröfu sína Agnar Hansson forstjóri Sparisjóðabanka Íslands (SPB) segir að það sé augljóst að bankinn stefni í gjaldþrot ef Seðlabanki Íslands stendur við kröfu sína um auknar tryggingar upp á 60 milljarða kr. frá SPB. 21.10.2008 10:31
Atorka hækkar um 80 prósent í afar fáum viðskiptum Gengi hlutabréfa í Atorku skaust upp um 80 prósent í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma falla erlend félög hratt. Afar lítil viðskipti hafa átt sér stað í Kauphöllinni og skýrir það öfgakenndar sveiflur. 21.10.2008 10:20
SÍ krefur Sparisjóðabankann um 60 milljarða kr. tryggingu Seðlabanki Íslands hefur krafið Sparisjóðabanka Íslands (áður Icebank) um 60 milljarða kr, í auknar tryggingar. 21.10.2008 10:09
Green hefur enn áhuga á eignum Baugs Breski auðjöfurinn Philip Green segist enn hafa áhuga á skuldum Baugs en segir ekki víst að samningar náist alveg á næstunni. Þetta er haft eftir honum á fréttavef Breska ríkisútvarpsins. 21.10.2008 08:47
Sparisjóðir kaupa Glitni Bank í Noregi Samband sparisjóða í Noregi hefur fest kaup á Glitni Bank í Noregi og er kaupverðið 300 milljónir norskra króna eða sem svarar til 5,1 milljarðs kr. 21.10.2008 08:25
Asíubréf upp Hlutabréf hækkuðu á Asíumörkuðum í morgun vegna aukinnar bjartsýni á Wall Street í New York. Flestar Asíuvísitölur hækkuðu og Dow Jones rauk upp í gær í ljósi þess að talið er að bandarísk stjórnvöld muni leggja fram annan hjálparpakka bönkunum til handa. 21.10.2008 07:22
Kaupþing í mál við bresku stjórnina Kaupþing mun hugsanlega fara í mál við bresku stjórnina vegna ákvörðunar hennar um að loka Kaupþing Singer og Friedlander-bankanum. 21.10.2008 07:18
Þrautaganga Seðlabankans Seðlabanki Íslands gerði ítrekaðir tilraunir fyrr á þessu ári til að auka gjaldeyrisforða þjóðarinnar án árangurs. Erlendir Seðlabankar töldu íslensku bankana vera of stóra. 20.10.2008 18:41
Seðlabankinn frestar útgáfu ríkisskuldabréfa Seðlabankinn ákvað í dag að fresta útgáfu ríkisskuldabréfa sem fyrirhuguð var þann 23. október næstkomandi. Ástæða frestunarinnar er sögð vera „þær sérstöku aðstæður“ sem nú séu uppi á markaði. 20.10.2008 18:15
Gætu fengið aðgang að samtölum Browns og Darlings Svo gæti farið að lögmenn Kaupþings í Bretlandi fái aðgang að samtölum Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Alistairs Darlings, fjármálaráðherra landsins, fallist breskir dómstólar á að taka fyrir mál bankans á hendur breskum stjórnvöldum. 20.10.2008 16:57
Búið að selja Glitnir Securities í Noregi Dótturfélag Glitnis í Noregi, Glitnir Securities, hefur verið selt til verðbréfafyrirtækisins RS Platou. 20.10.2008 16:37
Plúsdagur í kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,8% í dag og endaði í 655 stigum. Er þetta fyrsti jákvæði dagurinn í kauphöllinni í langan tíma. 20.10.2008 16:31
Íslensk útrás á Azoreyjum Iceland Drilling (UK) Ltd, dótturfélag Jarðborana, hefur undirritað samning við orkufyrirtækin Sogeo og GeoTerceira á Azoreyjum um borun á rannsóknar- og vinnsluholum háhitasvæðum á eyjunum og verður orkan nýtt til raforkuframleiðslu. 20.10.2008 16:18