Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sissnener hættur hjá Kaupþingi í Noregi Jan Petter Sissener, framkvæmdastjóri Kaupþings í Noregi og yfirmaður hlutabréfamiðlunar samstæðunnar, er hættur af persónulegum ástæðum. 13.2.2008 09:40
Afkoma Storebrand talsvert yfir væntingum Norska fjármálafyrirtækið Storebrand hagnaðist um 675,8 milljónir norskra króna, 8,3 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi. Þetta er talsvert yfir væntingum. Kaupþing og Exista eiga tæp þrjátíu prósent í fyrirtækinu. 13.2.2008 09:09
Dýr dropinn Bensín hækkaði um rúmar tvær krónur hjá stóru olíufélögunum í gær og er algengt sjálfsafgreiðsluverð nú tæpar 138 krónur fyrir lítrann og díselolíulítrinn fór upp í rúmar 147 krónur. 13.2.2008 08:19
Skilaboðaþjónn framtíðar kynntur „Talmálið er framtíðin,“ segir Eric Figueras, spænskættaður frumkvöðull, sem með þeim Birki Marteinssyni og Arnari Gestssyni hefur komið á fót upplýsingatækni- og farsímafyrirtækinu AmiVox. Þeir hafa þróað og eru með í prófunum búnað í farsíma sem þeir binda vonir við að geti orðið smáskilaboðaþjónusta framtíðarinnar. 13.2.2008 02:15
Hörð lending eða tilslökun vaxta Skiptar skoðanir eru um hvaða stefnu Seðlabanki Íslands tekur á fyrsta vaxtaákvörðunardegi ársins sem er á morgun. Greiningardeild Kaupþings lýsti nýverið þeirri skoðun að lækkuðu stýrivextir ekki hratt mætti hér gera ráð fyrir mjög harðri lendingu í efnahagslífinu og spáir umtalsverðri lækkun strax. Greiningardeildir Glitnis og Landsbankans spá aftur á móti óbreyttum vöxtum. 13.2.2008 00:01
Bankahólfið: Tilviljun? Fjölmiðla- og afþreyingarsamstæðan 365, sem meðal annars gefur út Fréttablaðið og Markaðinn, skilaði sínu besta uppgjöri í rekstri til þessa í síðustu viku þrátt fyrir rúmlega tveggja milljarða króna niðurfærslu á eignarhlut félagsins í olnbogabarninu, bresku prentsmiðjunni Wyndeham. 13.2.2008 00:01
Þörf á þriðja sæstrengnum eftir fimm ár Nýr fjarskiptasæstrengur, Danice, verður tekinn í notkun um næstu áramót. Framkvæmdastjóri Farice telur að þörf verði á nýjum streng eftir fimm ár. Forstjóri Hibernia Atlantic segir engar tímasetningar uppi um lagningu strengs frá Írlandi. Ekki sé freistandi að fara í samkeppni við ríkið við svo búið. 13.2.2008 00:01
Stórfelld fækkun fiskvinnslufólks Fimm þúsund störf hafa horfið úr fiskvinnslunni undanfarin tíu ár. Konum í fiskvinnslu fækkar meira en körlum. Yfir tíu prósent fiskvinnslufólks hafa misst vinnuna á fiskveiðiárinu. 13.2.2008 00:01
Við núllið í Bandaríkjunum Helstu hlutabréfavísitölur leituðu jafnvægis í átt til núllsins eftir stökk uppá við í upphafi viðskiptadagsins í kjölfar þess að auðkýfingurinn Warren Buffett, einn af ríkustu mönnum heims, bauðst til að baktryggja nokkur af stærstu skuldatryggingafyrirtækjum Bandaríkjanna. 12.2.2008 21:04
Saga Capital undirbýr nýtt mál gegn Dögg Gestur Jónsson, lögmaður Saga Capital, segir að niðurstaða Hæstaréttar í máli skjólstæðings síns gegn Dögg Pálsdóttur og fyrirtæki hennar og sonar hennar, In Solidium, í dag felist enginn dómur um gildi krafna Saga Capital á hendur In Solidium. 12.2.2008 19:18
FL Group fær 1,7 milljarð í arð frá Glitni FL Group, sem er stærsti hluthafi Glitnis með rétt rúm 30% hlut, fær 1,7 milljarð króna í arðgreiðslu fyrir árið 2007 ef tillaga stjórnar bankans um að greiða 5,506 milljarða króna í arð af hagnaði rekstrarársins 2007, sem nam 27,651 milljörðum króna eftir skatta. 12.2.2008 19:06
Marelforstjóri með 100 milljónir í laun og kaupréttargróða Hörður Arnarson, forstjóri Marels, fékk rétt um 100 milljónir frá Marel á síðasta ári í formi launa og ágóða af kaupréttarsamningum samkvæmt ársskýrslu fyrirtækisins sem send var til Kauphallarinnar fyrir skömmu. 12.2.2008 17:17
Hagnaður Marels 602 milljónir króna í fyrra Marel hagnaðist um 6,1 milljón evra, jafnvirði rúmra 602 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Til samanburðar nam hagnaðurinn 200 þúsund evrum í hitteðfyrra. 12.2.2008 17:16
Hefur ekki trú á stýrivaxtalækkun „Ég hef ekki trú á því að þeir geri það en þörfin er hinsvegar mikil,“ sagði Bjarni Benediktsson þingmaður aðspurður hvort hann héldi að Seðlabankinn myndi lækka stýrivexti á fimmtudaginn. Bjarni var gestur Sindra Sindrasonar í Lok Dags hér á Vísi fyrir stundu. 12.2.2008 17:11
Hæstiréttur hafnar kröfu Saga Capital á hendur Dögg og syni Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Saga Capital gegn Insolidum, fyrirtæki í eigu Daggar Pálsdóttur, lögfræðings og varaþingmanns, og sonar hennar, Ágústs Páls Ólafssonar. 12.2.2008 16:40
Eigið fé Kistu aukið þegar eignir rýrna Kista Fjárfestingafélag, sem er í helmingseigu SPRON, á ekki í vandræðum jafnvel þótt verðmæti eignarhluts félagsins í Exista sé komið rúmum fjórum milljörðum undir skuldir þess. Guðmundur Hauksson, stjórnarformaður félagsins, segir að eigið fé verði aukið eftir þörfum. 12.2.2008 16:37
Fyrsta hækkun í Kauphöllinni í hálfan mánuð Gengi hlutabréfa í Existu rauk upp um 7,3 prósent síðla dags í Kauphöllinni. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem Úrvalsvísitalan hækkar í enda dags í hálfan mánuð. 12.2.2008 16:29
Gengi evrunnar við hundraðkallinn Gengi evrunnar fór í morgun í fyrsta sinn yfir hundrað krónur. Þegar evran tók fyrst gildi 5. janúar árið 1999 var gengi hennar áttatíu og ein króna. 12.2.2008 12:40
Landsbankinn upp í morgun Landsbanki Íslands er það félag sem hefur hækkað hvað mest í morgun. Bankinn hefur hækkað um 0,36% síðan markaðir opnuðu í Kauphöllinni og stendur gengi bankans nú í 27,6. 12.2.2008 11:18
Exista fjarri því að vera tæknilega gjaldþrota Danska blaðið Börsen heldur því fram í grein í dag um íslenskt efnahagslíf að Exista sé nálægt því vera tæknilega gjaldþrota þar sem eigið fé félagsins hafi gufað upp að undanförnu. Sigurður Nordal, talsmaður Exista, segir það fjarstæðu að eigið fé félagsins sé "tæknilega uppurið". 12.2.2008 10:27
Álið fram úr sjávarafurðum Greiningardeild Kaupþings banka áætlar að útflutningsverðmæti áls aukist úr 80 milljörðum króna í fyrra upp í 135 milljarða króna á þessu ári og muni útflutningsverðmæti áls fara fram úr útflutningsverðmæti sjávarafurða. Þessi mikla aukning vegur þungt í minnkandi viðskiptahalla við útlönd, að mati greiningardeildarinnar. 12.2.2008 08:20
Glitnir bregst við orðum Vilhjálms Vísi barst fyrir stundu yfirlýsing frá stjórn Glitnis banka vegna þeirra ummæla Vilhjálms Bjarnasonar í Silfri Egils í gær að hann ætlaði að höfða skaðabótamál á hendur Glitnis vegna starfslokasamnings sem bankinn gerði við Bjarna Ármannsson í fyrra. 11.2.2008 17:31
Exista lækkaði um 5,17% Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,28% í dag. Exista lækkaði mest, eða um um 5,17%. Glitnir banki lækkaði um 4,20% og Landsbanki Íslands lækkaði um 3,68%. 11.2.2008 16:54
Exista niður um tæp 7% Gengi Exista hefur lækkað um 6,64% það sem af er degi í Kauphöllinni. Gengi bréfa í félaginu er nú 10,83 og hefur fallið um 45% frá áramótum. 11.2.2008 14:27
Skoðaði mál Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni í morgun „Við fórum í gegnum þetta niður í ráðuneyti í morgun og lögin um hlutafélög eru mjög skýr. Að svo komnu máli sýnist mér að það þurfi ekki að kalla á breytingar á þeim,“ segir Björgvin G Sigurðsson viðskiptaráðherra um mál Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni. 11.2.2008 12:23
Exista hefur lækkað mest í morgun Það er Exista sem hefur lækkað mest frá opnun markaðar í Kauphöllinni í morgun. Félagið hefur lækkað um 3,45% og stendur gengið nú í 11,20. FL Group hefur einnig lækkað um 2,23% og stendur í 9,22. 11.2.2008 10:48
Exista enn við 20 prósenta þröskuldinn í Sampo Finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista á stóran hlut í, tilkynnti í morgun að Exista hafi framlengt samkomulag um kaup á bréfum í Sampo sem gert var 9. ágúst 2007, fram til 11. ágúst næstkomandi. Með samningnum getur Exista bætt við hlut sinn og ráðið tuttugu prósentum í finnska tryggingafyrirtækinu. 11.2.2008 10:31
Neikvæð fjölmiðlaumfjöllun stoppar ekki Icesave Þrátt fyrir neikvæðar fréttir í garð Icesave, innlánareikning Landsbankans, í Bretlandi halda Bretar áfram að stofna reikninga. Í gær stofnuðu 1100 nýir einstaklingar reikninga í Icesave sem er þrefalt meira en dagsmeðaltal frá stofnun. 11.2.2008 10:23
Nýtt hlutafé í Société Generale með afslætti Franski bankinn Société Generale hóf í dag hlutafjárútboð sem reiknað er með að muni bæta eiginfjárstöðu hans um 5,5 milljarða evra, jafnvirði tæpra 550 milljarða íslenskra króna. Athygli vekur að hlutafjárútboðið er með afslætti og heilum 38,9 prósentum undir lokagengi bréfa í bankanum á föstudag í síðustu viku. 11.2.2008 09:11
Landsbankastjóri hlynntur því að taka upp evruna Sigurjón Árnason landsbankastjóri er hlynntur því að Íslendingar taki upp evruna sem gjaldmiðil í náninni framtíð. Þetta kom fram hjá honum í spjalli við Sigmund Erni Rúnarsson í þættinum Mannamál á Stöð 2 í kvöld. 10.2.2008 20:30
Nær 200.000 dönsk börn í kauphallarviðskiptum Nær 200.000 dönsk börn, undir 16 ára aldri, stunda kauphallarviðskipti. Og ef bætt er við unglingum upp að 19 ára aldri er fjöldinn 250.000. Að meðaltali fjárfestir hvert barn í þessum hópi fyrir 35.000 dkr. eða rúmlega 400.000 kr. 9.2.2008 13:00
Yahoo ætlar að hafna tilboði Microsoft Stjórn Yahoo ætlar sér að hafna tilboði Microsoft að því er segir í Wall Street Journal. Microsoft hafði í hyggju að greiða 44,6 milljarða dollara fyrir Yahoo eða sem svarar til nær 3.000 milljörðum króna. 9.2.2008 18:11
Myndir frá Glitnismaraþoni verðlaunaðar Ljósmyndaröð frá Glitnismaraþoninu í Kaupmannahöfn í hlaut í gær verðlaun World Press Photo samkeppninnar, en það var danski blaðaljósmyndarinn Erik Refner hjá Berlingske Tidende sem hlaut verðlaunin. 9.2.2008 14:48
Góð afkoma hjá Vinnslustöðinni í Eyjum Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, eina útgerðarfélagið sem er eftir á aðallista Kauphallar Íslands, hagnaðist um 636 milljónir kr. á síðasta ári sem var tvöfalt betri afkoma en árið áður. 9.2.2008 09:33
Eik banki hækkaði en mörg félög skrapa botninn Hinn færeyski einkbanki hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 2,07 prósent. Flaga hækkaði um tæp tvö prósent og 365 um 0,6 prósent. 8.2.2008 16:40
Nýr forstjóri Icelandic Group Finnbogi Baldvinsson hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group, og tekur hann við af Björgólfi Jóhannssyni, sem tók við forstjórastarfi Icelandair Group um miðjan síðasta mánuð. 8.2.2008 16:34
Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Straumi fékk 273 milljónir Guðmundur Þórðarson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Straums-Burðarás, fékk rúmlega 273 milljónir í laun og hlunnindi á síðasta ári samkvæmt tilkynningu frá félaginu sem send var Kauphöllinni í morgun. 8.2.2008 13:39
Laun helstu forstjóra í Kauphöllinni Laun helstu forstjóra Kauphallarinnar eru allt frá 54 milljónum til 273 milljónum króna á ári. Innifallið í upphæðunum eru auk launa í sumum tilfellum árangurstengdar greiðslur, ýmis hlunnindi og stundum lífeyristengdar greiðslur. 8.2.2008 13:18
Dagsbrúnardraugurinn er dauður Ari Edwald, forstjóri 365 hf, segir að eignarhlutur félagsins i bresku prentsmiðjunni Wyndeham, orsaki það tap sem var á rekstrinum árið 2007. 8.2.2008 12:55
Hagnaður Eyris dróst saman milli ára Eyrir Invest hagnaðist um 797 milljónir króna á síðasta ári samanborið við tæpa 1,6 milljarða krónur í hitteðfyrra. Eigið fé Eyris jókst um 51 prósent í fyrra með hagnaði og hlutafjáraukningu. 8.2.2008 11:50
Vinur verðbréfaskúrksins handtekinn Franska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði í gæsluvarðhaldi verðbréfamiðlara sem talinn er geta átt aðild að umsvifamiklum verðbréfaviðskiptum Jerome Kerviels. Kerviels tapaði 4,9 milljörðum evra, jafnvirði um 480 milljörðum íslenskra króna, í áhættusömum og framvirkum verðbréfaviðskiptum í nafni franska bankans Societe Generale. Þetta er umsvifamesta tap miðlara í heimi. 8.2.2008 10:40
Langþráð hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um tæp 1,8 prósent þegar viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgja Exista og FL Group, sem bæði hafa hækkað um rúmt prósent. Önnur félög hafa hækkað minna. Straumur rekur lestina með 0,16 prósenta hækkun. 8.2.2008 10:14
Ráðherrar funda um efnahagshorfur Fjármálaráðherra sjö stærstu iðnríkja heims eru nú staddir í Tókýó í Japan en þeir munu funda um dræmar efnahagshorfur á næstu mánuðum á morgun. 8.2.2008 09:58
Hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðurinn hefur farið vel af stað í Evrópu í dag eftir fremur slappa viku. Gærdagurinn var sérstaklega slæmur en fjárfestar voru almennt óánægðir með stýrivaxtaákvörðun bæði í Bretlandi og á evrusvæðinu. 8.2.2008 08:58
Álið fram úr fiskinum í ár Útflutingsverðmæti áls mun í fyrsta sinn fara fram úr verðmæti útfluttra sjávarafuða á þessu ári samkvæmt útreikningum greiningardeildar Kaupþings. Vitnað er til þeirra á vef Samorku, Samtaka orku- og veitufyrirtækja. 7.2.2008 17:32