Erum ekki að fara að selja Sterling 15. febrúar 2008 12:09 Pálmi Haraldsson segir engin áform uppi um að selja danska flugfélagið Sterling.
Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður Northern Travel Holding, sem á meðal annars danska flugfélagið Sterling vísar því algjörlega á bug að stefnt sé á sölu á Sterling á næstunni líkt og kom fram í danska viðskiptablaðinu Börsen í dag. FL Group gerir það sömuleiðis í fréttatilkynningu sem send var Vísi. "Við erum ekki að fara að selja félagið heldur byggja það upp og efla undirstöðurnar," segir Pálmi í samtali við Vísi. Northern Travel Holding er í eigu Fons (44%), FL Group (34%) og Sund (22%). Auk Sterling á félagið Iceland Express, 51% hlut í breska leiguflugfélaginu Astraeus, 29,26% hlut í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket sem skráð er á sænska hlutabréfamarkaðinn og allt hlutafé í dönsku ferðaskrifstofunni Hekla Travel. Athugasemd FL Group vegna fréttar á Vísi.is um frétt Börsen: FL Group vísar á bug fullyrðingum í frétt Börsen þess efnis að FL Group sé að undirbúa sölu á Sterling. Í frétt Börsen er snúið út úr orðum Jóns Sigurðssonar, forstjóra FL Group, sem aðspurður um hvort hann teldi að FL Group yrði enn meðal hluthafa í Sterling eftir 5 ár, sagðist hann telja líklegt að innan fimm ára væru komnir nýjir hluthafar að Sterling. Það þýðir ekki að FL Group sé að undirbúa sölu á Sterling. Einnig skal tekið fram Sterling er ekki í beinni eigu FL Group, heldur norræna ferðaþjónustufyrirtækisins Northern Travel Holding, sem einnig á Iceland Express og Astraeus að fullu leyti, ásamt hlutum í ferðaskrifstofum í Svíþjóð og Danmörku. Eignarhlutur FL Group í NTH er 34%.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira