FL Group tapar 67 milljörðum 13. febrúar 2008 16:42 Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group
FL Group tapaði 67,3 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt uppgjöri sem birt var í dag. Þar af nam tapið 63,2 milljörðum á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Um er að ræða mesta tap íslensks félags frá upphafi.Fram kemur í tilkynningu frá FL Group til Kauphallarinnar að heildareignir félagsins hafi aukist um 60 prósent í fyrra og námu 422 milljörðum í árslok. Meðal nýrra eigna félagsins voru Tryggingamiðstöðin sem keypt var í fyrra. Eigið fé var um 156 milljarðar króna í lok árs sem er aukning um 13,2 milljarða króna frá árslokum 2006. Aukningin skýrist m.a. af hlutafjáraukningu í tengslum við kaup félagsins á Tryggingamiðstöðinni og fasteignafélögum af Baugi Group á síðari hluta ársins.FL Group segir að við birtingu ársreiknings hafi FL Group endurfjármagnað andvirði 47,1 milljarða króna af lánum með gjalddaga árið 2008 en eftir standa um 8,5 milljarðar.Hafa selt hluti í AMR, Finnair og Commerzbank fyrir 80 milljarðaBent er á að félagið hafi lagst í umfangsmiklar skipulagsbreytingar á félaginu, markaðsáhætta minnkuð og Kaupmannahafnarskrifstofu lokað. Í þessu sambandi má einnig benda á að félagið minnkaði hlut sinn í AMR, móðurfélagi American Airlines, og Finnair. Seldir voru hlutir fyrir 35,2 milljarða króna. Þá seldi félagið hlut í Commerzbank fyrir 20,7 milljarða. Til viðbótar hefur félagið selt bréf í bankanum fyrir um 34 milljarða króna. Auk þess var eignasafn undir Markaðsviðskiptum minnkað um 29 milljarða tilviðbótar á fjórðungnum.Kjarnaeignir FL Group eru í Glitni banka, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property og mun félagið halda áfram að vinna með stjórnendum þessara félaga og styðja framtíðarvöxt þeirra og arðsemi, eftir því sem segir í tilkynningu.Telja rekstur kjarnaeigna geta staðið af sér óróa „Órói á erlendum fjármálamörkuðum á síðari hluta ársins 2007 hafði mikil og bein áhrif á okkar afkomu þar sem verðmæti allra okkar helstu eigna hefur lækkað umtalsvert. Við teljum hinsvegar að rekstur okkar kjarnaeigna standi vel og að FL Group geti staðið af sér frekari óróa á markaði og í framhaldinu skoðað áhugaverð tækifæri," segir Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group.„Við höfum brugðist hratt við breyttum aðstæðum á mörkuðum og markvisst minnkað markaðsáhættu félagsins í hlutabréfum, ásamt því að auka hlutafé félagsins. Jafnframt höfum við lokað skrifstofu okkar í Kaupmannahöfn og er það liður í lækkun rekstrarkostnaðar félagsins. Með endurfjármögnun undanfarinna vikna, ásamt framangreindum aðgerðum höfum við staðið vörð um fjárhagslegan styrk félagsins."
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira