Minnsta atvinnuleysi í 20 ár 14. febrúar 2008 14:34
Í nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði kemur fram að hlutfallslegt atvinnuleysi reiknast 1,1% af vinnuafli. Þetta er minnsta atvinnuleysi í þessum mánuði í 20 ár. Greint er frá þessu í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þegar tekið hefur verið tillit til árstíðarleiðréttingar er atvinnuleysishlutfallið 0,9% og stendur það óbreytt milli mánaða. Samtals fjölgaði atvinnulausum á skrá um 208 í mánuðinum og helmingur þeirrar fjölgunar var á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnulausum fjölgaði mest utan höfuðborgarsvæðisins í Fjarðabyggð, Ölfusi og Vestmannaeyjum en þeim fækkaði í Fjallabyggð og Norðurþingi. Um það bil 300 manns komu nýir inn á atvinnuleysisskrá í janúar sem er fjölgun frá fyrra mánuði. Enda þótt fjölgun í þessum hópi sé undanfari vaxandi atvinnuleysis er fjöldi þeirra sem koma nýir inn á atvinnuleysisskrá ennþá lítill. Fjölgað hefur í hópi þeirra sem verið hafa á skránni 4-8 vikur, minna í hópi þeirra sem verið hafa á skrá frá 2-6 mánuði á meðan ennþá fækkar í hópi þeirra sem hafa verið án atvinnu lengur en hálft ár. Hingað flyst enn erlent vinnuafl og fjöldi á vegum starfsmannaleiga er meiri en hann var í síðasta mánuði. Bendir þetta til þess að enn ríki mikil spenna á vinnumarkaði. Í nýrri þjóðhagsspá er hlutfallslegu atvinnuleysi spáð að aukast nokkuð í ár. Nýliðin þróun bendir til að sú aukning verði minni en þar er gert ráð fyrir.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira