Fleiri fréttir

Ólíklegt að aðrir keppi

Fyrstu viðbrögð norskra fjölmiðla við kaupum Íslandsbanka á BNbank í Noregi voru tortryggni um að verðið sem Íslandsbanki bauð væri nógu hátt. Norskir fjölmiðlar gerðu því skóna að hugsanlega væru aðrir til að bjóða hærra verð fyrir norska bankann.

Útrás líkust innrás

Nálægð við gjöful fiskimið er ekki lengur driffjöður hagsældar á Íslandi og útrás íslenskra fyrirtækja er orðin svo kröftug að nær lagi væri að tala um innrás. Þetta kom fram í máli Arnar Daníels Jónssonar prófessors í Háskóla Íslands á miðvikudag.

Bjart yfir efnahagslífi Norðurland

Hagvöxtur verður mestur á Íslandi á Norðurlöndunum þetta ár og það næsta samkvæmt nýrri skýrslu norrænu efnahagsnefndarinnar um efnahagsumhverfi á Norðurlöndum út árið 2005. Íslendingar skila minnstum afgangi af fjármálum hins opinbera á þessu ári, en Svíar fá þann vafasama heiður árið 2005. Íslendingar munu einnig státa af mestri verðbólgu Norðurlandanna fyrir tímabilið.

Svipað og í nágrannalöndunum

Reglur um íslenska lífeyrissjóði eru sambærilegar við þær sem gilda um lífeyrissjóði í löndunum í kringum okkur og fjármálakerfið hér á landi er vel í stakk búið að taka á hugsanlegum vandamálum sem upp kunna að koma. Þetta er mat Tryggva Þórs Herbertssonar hagfræðings.

Kmart og Sears sameinast

Verslunarkeðjan Kmart hefur fest kaup á verslunarkeðjunni Sears og verða fyrirtækin sameinuð. Búist er við að tekjur hins sameiginlega félags nemi um 55 milljörðum dala árlega. Það samsvarar um 3.800 milljörðum íslenskra króna.

Tvöfaldast í Noregi

Íslandsbanki hefur gert tilboð í öll hlutabréf Bolig og Næringsbanken, BNbank, í Noregi fyrir um 33 milljarða króna. Íslandsbanki hefur þegar tryggt sér um 30 prósenta hlutafjár í bankanum og auk þess samþykki 16 prósenta í viðbót. Íslandsbanki liðlega tvöfaldast að stærð við kaupin og eignir hans við yfirtöku norska bankans verða yfir þúsund milljarðar.

Fyrsta skóflustungan að stöð í Rvk

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tekur skóflustungu að fyrstu bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík klukkan tvö í dag á svokallaðri Sprengisandslóð á horni Bústaðavegar og Breiðholtsbrautar.

Smásala vex

Smásala dagvöru var 4,4 prósentum meiri í október í ár en í sama mánuði í fyrra. Verslun með áfengi jókst um fjögur prósent og lyfsala var 4,3 prósentum meiri en í fyrra.

Aðeins tvö félög hafa hækkað

Rólegt hefur verið á hlutabréfamarkaði undanfarna daga en Úrvalsvísitalan hefur sigið upp á við eftir mikla niðursveiflu um miðjan október. Þrátt fyrir að vísitalan hafi hækkað á ný er verð á sumum fyrirtækjum enn mun lægra en það var fyrir rúmum mánuði.

Kaupa í Noregi

Íslandsbanki bauðst í dag til að kaupa öll hlutabréf í norska, Bolig og næringsbanken. Fyrir hafði Íslandsbanki tryggt sér yfirráð yfir 46 prósentum hlutafjárins í bankanum. Við yfirtökuna eykur Íslandsbanki veltu sína um helming.

Olíuverð lækkar enn

Verð á hráolíu heldur áfram að lækka á fjármálamörkuðum. Í gær fór verðið niður í 46 Bandaríkjadali á tunnu. Verðið er þó enn mjög hátt í sögulegu samhengi.

Starfsmenn sáttir

Starfsmenn verslunarkeðjunnar Magasin du Nord í Danmörku tóku tíðindum um eigendaskipti vel ef marka má frétt í danska dagblaðinu Jyllands Posten.

Varar við breytingum

Seðlabankinn varar eindregið við því að lögum um Íbúðalánasjóð verði við núverandi aðstæður breytt á þann veg að sjóðnum verði heimilt að lána 90 prósent af kaupverði íbúða.

Ágreiningur um rafmagnsverð

Upp úr viðræðum Landsvirkjunar og Norðuráls um orku til stækkaðs álvers á Grundartanga slitnaði vegna ágreinings um rafmagnsverð. Norðurál mun í staðinn ganga til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur og verður viljayfirlýsing um það undirrituð næstkomandi miðvikudag.

Almenn ánægja með Magasinkaup

Danir virðast almennt hafa brugðist vel við fregnum af kaupum Baugs og Straums fjárfestingarbanka á ráðandi hlut í hinni fornfrægu dönsku vöruhúsakeðju Magasin du Nord.

Segir sjávarútveg vanmetinn

Ragnar Árnason segir að framlag sjávarútvegs til hagkerfisins sé nær því að vera 30 prósent heldur en 10 prósent eins og hagtölur segja til um. Hann segir að afleiddar atvinnugreinar séu ekki eins mikilvægar þótt þær kunni að mælast stærri í þjóðhagsreikningum. </font /></b />

Kaupir á lægra verði

Samkvæmt fréttum í breskum fjölmiðlum í gær hefur náðst samkomulag milli Baugs og eigenda Big Food Group um hvernig fara eigi með miklar eftirlaunaskuldir samsteypunnar. Þetta mál hefur staðið endanlegum samningaviðræðum fyrir þrifum.

Skilyrða sölu kjölfestueigenda

Eignatengsl fyrirtækja eru ekki nógu skýr, að mati Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Páll Gunnar var einn framsögumanna á fundi Verslunarráðs Íslands um eignatengsl. Hann segir að Fjármálaeftirlitið muni áfram sem fyrr beina sjónum sínum að eigendum virkra eignarhluta í fjármálafyrirtækjum

Tveir sjóðir sameinast

Gengið hefur verið frá formlegri sameiningu Frjálsa lífeyrissjóðsins og Séreignalífeyrissjóðsins. Við sameininguna fluttust yfir eignir 3.866 sjóðfélaga Séreignalífeyrissjóðsins, sem námu rúmum þremur milljörðum króna.

Kaupa flaggskip danskrar verslunar

Íslendingar hafa eignast meirihluta í þekktasta vöruhúsi Dana, Magasin Du Nord við Kóngsins Nýjatorg í Kaupmannahöfn. Birgir Þór Bielvedt, sem rekið hefur Dominos í Kaupmannahöfn, Baugur og Straumur fjárfestingarbanki hafa keypt 69 prósent í TH. Wessel & Wett sem rekur vöruhúsið

Kaupa tískukeðju með Landsbankanum

Verið er að leggja lokahönd á kaup Baugs á kvenfatakeðjunni MK One. MK One selur ódýran tískufatnað og hefur verið í örum vexti að undanförnu. Kaupverðið með skuldum er 55 milljónir punda eða sjö milljarðar króna. Verslun með ódýran tískufatnað hefur að undanförnu vaxið þrisvar sinnum hraðar en önnur fataverslun í Bretlandi.

KB banki hækkar vexti

KB banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum um 0,25 prósentustig þannig að kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa hækka úr 9,40 prósentum upp í 9,65. Bankinn segist gera þetta í kjölfar þess að Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti um 0,50 prósentustig.

Verðbólgan vex áfram

Verðbólga heldur áfram að vaxa og er farin að slaga upp undir sex prósent samkvæmt mælingum Hagstofunnar.Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,21 prósent frá síðasta mánuði. Undanfarna tólf mánuði hefur hún hækkað um tæp fjögur prósent, þar af um tæplega 1,5 prósent síðustu þrjá mánuðina, sem jafngildir 5,7 prósenta verðbólgu á einu ári.

Hlutafé fyrir 3,8 milljarða selt í Flugleiðum hf.

Hlutafjárútboði Flugleiða hf. er lokið. Voru seldir hlutir að nafnverði 420 milljónir króna á genginu 9,10. Nemur söluverð hlutafjárins því rúmum 3,8 milljörðum króna, en hlutafjárútboðinu var beint til fagfjárfesta. Í tilkynningu frá Flugleiðum segir að fjárfestar hafi óskað eftir að kaupa hlutafé fyrir tæpa 6 milljarða króna. Umframeftirspurn var því 56,4%.

Lánin verða enn dýrari

Vextir af yfirdráttarlánum eru nú um og yfir fimmtán prósent en eins og sagt var frá í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld eru íslensk heimili um 61 milljarð yfir á tékkareikningunum sínum. Það eru dýr lán sem búast má við að verði enn dýrari því greiningardeildir bankanna eiga von á að Seðlabankinn muni enn hækka stýrivexti á næstunni.

Viðræður við Morgan Stanley

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur, eftir mat á fjórtán tilboðum frá innlendum og erlendum fjármálastofnunum og ráðgjafarfyrirtækjum sem nefndinni bárust, ákveðið að ganga til viðræðna við Morgan Stanley í London um gerð samnings um þjónustu vegna fyrirhugaðrar sölu á hlutabréfum ríkisins í Landssíma Íslands hf.

Þorsteinn í fjármálaráðuneytið

Fjármálaráðherra hefur skipað Þorstein Þorgeirsson í embætti skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þorsteinn er hagfræðingur að mennt og á að baki fjölþætta starfsreynslu innan lands og utan. Hann hefur m.a. starfað sem hagfræðingur hjá EFTA og hjá Efnahags- og samvinnustofnuninni, OECD.

Morgan Stanley ráðleggur

Einkavæðingarnefnd hefur ákveðið að ganga til viðræðna við fjármálafyrirtækið Morgan Stanley í Lundúnum um að vera nefndinni til ráðgjafar við sölu á eignarhlut ríkisins í Símanum.

Fallið frá skilyrðum

Íslandsbanki er hættur við að krefjast þess að þeir sem taka 100 prósent íbúðalán taki jafnframt lánatryggingu.

Met hjá Marel

Marel hagnaðist um 1,4 milljónir evra, eða 122 milljónir króna, á þriðja ársfjórðungi. Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins var 5,2 milljónir evra eða um 450 milljónir króna. Hagnaður Marels hefur aldrei verið jafn mikill á þriðja ársfjórðungi

Actavis með fjóra milljarða

Hagnaður Actavis var 4,1 milljarður króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam fjórtán milljónum evra eða 1,2 milljörðum króna. Afkoman er lítillega undir því sem greiningardeildir bankanna spáðu.

Hagnaður SH 241 milljón króna

Hagnaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á þriðja ársfjórðungi var 241 milljón króna eftir skatta samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Hagnaður af sölustarfsemi félagsins í Bretlandi, Asíu og Spáni var talsvert yfir áætlunum en afkoma Coldwater í Bretlandi undir áætlunum.

Vilja engin samskipti

Olíufélagið Essó tilkynnti í gær um breytingar sem ætlaðar eru til að koma í veg fyrir grunsemdir um óeðilegt samstarf olíufélaganna. Í tilkynningu er þátttaka félagsins í samráði íslenskra olíufélaga hörmuð og beðist velvirðingar.

Órólegur markaður

Herra markaður er skrítinn karl. Reyndir fjárfestar, eins og Warren Buffet, sem hafa þekkt karlinn frá ómunatíð hafa oft bent þeim sem skemmri kynni hafa haft af karlinum að hann sé ólíkindatól. Eins sjarmerandi og skemmtilegur hann getur verið einn daginn, þá getur hann lagst fyrirvaralaust í bælið, breitt upp fyrir haus og séð ekkert framundan nema svartnættið eitt.

KB banki býður upp á 100% lán

KB banki hefur ákveðið að bjóða upp á 100% íbúðalán líkt og Íslandsbanki kynnti í gær. Í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér fyrir stundu segir að framvegis gefist lántakendum kostur á lánsfjárhæð jafn hárri markaðsvirði hinnar veðsettu eignar sé um íbúðakaup að ræða. Lánsfjárhæð með 100% fjármögnun getur að hámarki verið 25 milljónir.

Landsbankinn fylgir í kjölfarið

Landsbanki Íslands fylgir í kjölfar Íslandsbanka og KB banka og mun bjóða viðskiptavinum sínum 100% lán til íbúðakaupa. Í tilkynningu segir að lánin séu með sambærilegum skilyrðum og kjörum og aðrir bankar bjóða. Íslandsbanki reið á vaðið í gær og KB banki fylgdi á eftir fyrr í dag. Hin nýju kjör munu standa til boða frá og með mánudegi.

Dollarinn ekki lægri á árinu

Gengi Bandaríkjadals er nú 67,74, sölugengi og hefur það ekki verið svo lágt allt þetta ár. Þetta kemur fram á vefsíðu Landsbanka Íslands.

Vill meiri sektarheimildir

Fjármálaeftirlitið tók til athugunar níu mál vegna hugsanlegra innherjasvika frá miðju ári 2003 til sama tíma í ár. Þar á meðal voru mál sem beindust að mörgum aðilum tiltekinna viðskipta. Ríkislögreglustjóra hefur verið gerð grein fyrir einu þessara mála. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Fjármálaeftirlitisins.

SH kaupir í Bretlandi

Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, hefur keypt breskt félag, Cavaghan & Gray Seafood, sem framleiðir kældar sjávarafurðir fyrir breskar smásöluverslanir. Kaupverðið er 1,6 milljarðar króna. Með kaupunum eykst framleiðsla SH á kældum matvörum á breskum markaði til muna. "Þetta er þriðjungsaukning á okkar framleiðslu á þessum markaði," segir Gunnar Svavarsson, forstjóri SH.

Hagvöxtur án atvinnu

Störfum hefur farið fækkandi og mikil framleiðniaukning er í hagkerfinu, segja Samtök atvinnulífsins. Áætlaður vöxtur landsframleiðslu á hvern starfandi einstakling á Íslandi er sex prósent samkvæmt áætlun SA.

Hagnaður Kaldbaks 1,7 milljarðar

Hagnaður Kaldbaks nam 1.737 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samkvæmt greiningardeild Landsbankans. Hagnaður félagsins skiptist þannig að óinnleystur hagnaður nemur 1.149 milljónum króna en innleystur hagnaður nemur 587 milljónum.

Eignatengsl og íbúðalán áhyggjuefn

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins telur brýnt að fjármálastofnanir hugi að áhættustýringu og áhættustöðu sinni vegna nýrra íbúðalána. "Almenningur hefur nýtt sér þetta í talsvert miklum mæli, en í september síðastliðnum numu heildaruppgreiðslur á lánum Íbúðalánasjóðs um 12,3 milljörðum króna," sagði Páll Gunnar Pálsson á ársfundi Fjármálaeftirlitisins.

Samstaða á síðustu stundu

Allt fram til síðustu mínútu fyrir hluthafafund Íslandsbanka leit út fyrir að fylkingar tækjust á um kjör í bankaráð Íslandsbanka. Fylkingar náðu saman rétt áður en fundur hófst og dró einn fulltrúi hvorrar fylkingar framboð til baka og varð því sjálfkjörið í bankaráðið.

Lyfja eignast 66% í Litís

Lyfja hf. hefur eignast 66% hlut í Litís hf. en það félag rekur tvær keðjur apóteka í Litháen undir merkjum Farma. Með kaupunum er stigið fyrsta skrefið í útrás Lyfju, að því er segir í tilkynningu frá félaginu, en markmiðið er að víkka út tekjugrunn félagsins með því að sækja á erlenda markaði.

Kauptækifæri og hægur bati

Fjárfestar og miðlarar á markaðnum fóru fremur lystarlitlir í hádegismat í gær. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hafði þá lækkað um tæp sjö prósent. Hlutabréf tóku að hækka á ný eftir hádegið, en eftir sem áður lækkaði úrvalsvísitalan tíunda daginn í röð. Lækkunin nam 2,71 prósenti og hefur vísitalan lækkað um 18,5 prósent frá því að hún náði hámarki 8. október.

Sjá næstu 50 fréttir