Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rótgróinn risi fetar nýja braut mestum fjármunum. Gamalreynd flaggskip íslenskrar útrásar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að þessi fyrirtæki voru ásamt Flugleiðum einu fyrirtækin sem ráku umfangsmikla erlenda starfsemi. SÍF stendur nú á tímamótum. 31.10.2004 00:01
Enn lækkanir í Kauphöll Hlutabréfaverð í Kauphöll Íslands hélt áfram að lækka í gær. Nú hefur Úrvalsvísitalan lækkað átta daga í röð og á síðustu fimm dögum hefur gildi hennar fallið um 11,94 prósent. 29.10.2004 00:01
Stýrivextir hækka Seðlabankinn tilkynnti í gær um hækkun stýrivaxta. Hækkunin tekur gildi um mánaðamót og verða stýrivextir bankans 7,25 prósent. Hækkunin í gær nam hálfu prósentustigi. 29.10.2004 00:01
Breytingar innan Norðurljósa Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður lét af störfum framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins eftir stjórnarfund í Norðurljósum í gær. Marinó Guðmundsson, fjármálastjóri félagsins, hefur líka ákveðið að láta af störfum og tilkynntu þeir þetta í innanhússpósti til starfsmanna seint í gærkvöldi. 28.10.2004 00:01
Úrvalsvísitalan lækkar áfram Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hélt áfram að lækka í gær og hefur þá lækkað um samtals 10% á einni viku, þar af um 8,6% síðustu þrjá dagana. Verðbréf féllu um allt að 5% fyrst eftir opnun markaðarins í gær en fór svo að sveiflast upp á við hjá ýmsum fyrirtækjum undir hádegi og endaði lækkunin í 1,6%. 28.10.2004 00:01
11,7 milljarða hagnaður KB banka Hagnaður KB banka fyrstu níu mánuði ársins, eftir skatta, var 11,7 milljarðar króna. Það er rúmlega hundrað og þrjátíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 32,5 prósent en var rúmlega 21 prósent á sama tíma í fyrra. 28.10.2004 00:01
Sami hagnaður og hjá KB banka Hagnaður Landsbanka Íslands fyrstu níu mánuði ársins var 11,7 milljarðar króna eftir skatta eða jafnmikill og hjá KB banka sem greint var frá fyrr í dag. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður Landsbankans 2,5 milljarðar. 28.10.2004 00:01
Barist um sætin í Íslandsbanka Níu framboð eru um sjö sæti í bankaráði Íslandsbanka sem kosið verður um á hluthafafundi 3. nóvember næstkomandi. Hópur hluthafa sem í eru bankaráðsmenninrnir Karl Wernersson, Einar Sveinsson og Jón Snorrason, telur sig hafa sterka stöðu og eigi fyrir fimm mönnum í bankaráðið. Auk þeirra eru í hópnum Steinunn Jónsdóttir sem einnig býður sig fram til setu í bankaráðinu. 28.10.2004 00:01
Landsbankinn undir væntingum Landsbankinn hagnaðist um 5,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi og hefur hagnast um 11,7 milljarða það sem af er ári. Þetta er nokkuð minna en greiningardeildir hinna bankanna höfðu gert ráð fyrir. 28.10.2004 00:01
OgVodafone eignast Norðurljós Og Vodafone og Norðurljós verða sameinuð undir merkjum Og Vodafone en félagið hefur eignast 90 prósent í Norðurljósum. Innan Norðurljósa starfa ljósvakamiðlar Íslenska útvarpsfélagsins og dagblöð Fréttar, Fréttablaðið og DV. 28.10.2004 00:01
Úrvalsvísitalan lækkar áfram Úrvalsvísitalan hélt áfram að lækka í Kauphöll Íslands í morgun í miklum viðskiptum. Flest bendir til að margir smærri hlutafjáreigendur séu að innleysa hagnað undanfarinna missera af ótta við enn frekari lækkun. 27.10.2004 00:01
Hagnaður Burðaráss aldrei meiri Hagnaður Burðaráss hf. og dótturfélaga á fyrstu níu mánuðum ársins hefur aldrei verið meiri, eða 11,7 milljarðar króna . Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi var 11.124 milljónir en hagnaður dótturfélags Burðaráss, Eimskipafélag Íslands, var 607 milljónir króna. Arðsemi eigin fjár á fyrstu níu mánuðum ársins var 78% á ársgrundvelli. 27.10.2004 00:01
Hagnaður Bakkavarar 1,5 milljarðar Hagnaður Bakkavarar fyrstu níu mánuði ársins var 1.470 milljónir króna fyrir skatta, eða 522 milljónir króna eftir skatta, og er það bati upp á 43% frá síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 768 milljónum króna á móti 671 milljón króna á sama tímabili í fyrra. Veltufé frá rekstri var 537 milljónir króna. 27.10.2004 00:01
Landsbankinn efstur Landsbanki Íslands hefur rutt KB banka úr efsta sæti á lista yfir þær fjármálastofnanir sem hafa milligöngu um mest viðskipti í Kauphöll Íslands. Í fyrra var Landsbankinn í þriðja sæti á eftir KB banka og Íslandsbanka. 27.10.2004 00:01
Burðarás undir væntingum Hagnaður Burðaráss það sem af er ári er 11,7 milljarðar króna. Í gær gaf félagið út afkomutölur fyrir þriðja ársfjórðung og nam hagnaður á því tímabili 4,7 milljörðum. 27.10.2004 00:01
Flugleiðum hrósað fyrir dirfsku Greiningardeild fjármálarisans J.P. Morgan hælir Flugleiðum fyrir kaup á hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðir hafa eignast yfir tíu prósent í breska félaginu. "Við hyllum stjórnendur Flugleiða fyrir að taka skýra afstöðu til hlutabréfa sem við teljum undirverðlögð á markaði," segir sérfræðingur J.P. Morgan í greiningarskýrslu í kjölfar kaupa Flugleiða í easyJet. 27.10.2004 00:01
Fjármálastarfsemin heim Hagnaður Bakkavarar fyrstu níu mánuði ársins nam 1.470 milljónum króna. Hagnaður þriðja ársfjórðungs af reglulegri starfsemi nam 432 milljónum króna sem er 66 prósenta aukning. Afkoma Bakkavarar er í samræmi við væntingar stjórnenda félagsins, en örlitlu lægri en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. 27.10.2004 00:01
Hlutabréfamarkaðurinn hrynur ekki Ágúst Einarsson, prófessor í viðskiptafræði, segir að lækkun á hlutabréfamarkaði síðustu daga bendi til þess að markaðurinn sé að svara varnaðarorðum sérfræðinga um að ekki hafi verið innistæða fyrir miklum hækkunum síðustu tvö ár. Hann segir að ekkert bendi til þess að markaðurinn hrynji. 27.10.2004 00:01
Tíu milljarðar í hagnað Íslandsbanki græddi tíu milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður þriðja ársfjórðungs var 3,3 milljarðar króna og í samræmi við spár greiningardeilda. Bjarni Ármannsson segir niðurstöðuna blöndu af hagstæðum ytri skilyrðum og góðum rekstri. 26.10.2004 00:01
Flugleiðir kaupa meira Flugleiðir juku í gær hlut sinn í breska lággjaldaflufélaginu easyJet. Hlutur Flugleiða er nú rúm tíu prósent. Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, segir engu við fyrri yfirlýsingar að bæta þegar félagið keypti ríflega átta prósenta hlut í easyJet fyrir nokkrum dögum 26.10.2004 00:01
Framboðið lækkar markaðinn Aukið framboð hlutabréfa er líklegasta ástæða lækkana hlutabréfamarkaðar að mati greiningardeildar Landsbankans. Þegar hefur verið gefið út nýtt hlutafé fyrir 121 milljarð króna á markaði og sé gert ráð fyrir sölu Símans má búast við að framboð nýs hlutafjár á næstunni verði tæpir 158 milljarðar króna. 26.10.2004 00:01
Mesta lækkun á tveimur dögum Síðustu dagar hafa verið nokkuð átakamiklir í Kauphöll Íslands. Úrvalsvísitalan hefur nú lækkað um 7,08 prósent á tveimur dögum. Aldrei fyrr hefur lækkunin verið jafnmikil á tveimur dögum. 26.10.2004 00:01
Sjötíu milljarða lækkun Úrvalsvísitala hlutabréfa í Kauphöll Íslands féll um 4,23 prósent í gær. Daginn áður lækkaði hún um 2,97 prósent. Aldrei áður hefur vísitalan lækkað jafnhratt á tveimur dögum en samanlögð lækkun er 7,08 prósent. 26.10.2004 00:01
Fjórtán vilja í ráðgjöf Fjórtán tilboð hafa borist Einkavæðinganefnd vegna ráðgjafar við sölu á Símanum. Að sögn Illuga Gunnarssonar, nefndarmanns og aðstoðarmanns utanríkisráðherra, var farið yfir tilboðin á fundi í gær. 26.10.2004 00:01
Straumur fram úr væntingum Fjárfestingarbankinn Straumur skilaði níu mánaða uppgjöri í gær. Hagnaður fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi nam 3.141 milljónum króna. Þetta er nokkuð umfram þær væntingar sem greiningardeildir bankanna höfðu. Það sem af er ári hefur Straumur skilað 6,3 milljarða króna hagnaði. 26.10.2004 00:01
Hagar kaupa Skeljung Hagar hf. hafa eignast allt hlutafé í Skeljungi hf. með kaupum á eignarhaldsfélaginu Sólvindum. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag. 25.10.2004 00:01
Rússneskar pönnukökur Kaup SÍF á franska matvælafyrirtækinu Labeyrie fyrir 29 milljarða króna hafa vakið talsverða athygli. Fyrirtækið framleiðir meðal annars rússneskar pönnukökur en þeim hafa Íslendingar ekki átt að venjast í gegnum tíðina. 25.10.2004 00:01
Stór uppgjör í dag Í dag verða birt uppgjör fjögurra stórra fyrirtækja í Kauphöll Íslands. Íslandsbanki, Tryggingamiðstöðin, Össur og Straumur gefa út afkomutölur fyrir þriðja ársfjórðung. 25.10.2004 00:01
Aldrei meiri stigalækkun Úrvalsvísitalan hefur aldrei lækkað um jafnmörg stig á einum degi eins og í gær. Í byrjun dags stóð hún í 3.820 stigum en féll stöðugt á meðan markaðurinn var opinn og fór lægst í 3.695 stig. 25.10.2004 00:01
VÍS af markaði Stærstu hluthafar í Vátryggingarfélagi Íslands hafa komist að samkomulagi sem felur í sér að félagið verður tekið af markaði. Smærri hluthöfum hefur verið gert tilboð um að selja hluti sína á genginu 49 sem er síðasta viðskiptagengi með bréf í félaginu áður en samkomulagið var undirritað. 25.10.2004 00:01
Hagar eignast Skeljung Hagar sem reka meðal annars verslanir Bónuss og Hagkaupa hafa keypt olíufélagið Skeljung. Hagar keyptu allt hlutafé Sólvinda af Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni sem hafa átt í sameiningu fjárfestingarfélagið Feng. Í skiptum fékk Fengur hlutafé í Högum. 25.10.2004 00:01
Niðurfærsla í Frakklandi Afkoma SÍF fyrstu níu mánuði ársins var nokkru lakari en greiningaraðilar höfðu spáð. Félagið tapaði 1,7 milljörðum króna á tímabilinu. Stærstur hluti tapsins er vegna þess að verðmæti fasteigna og vörubirgða í Frakklandi var fært niður um 1,2 milljarða króna. 25.10.2004 00:01
Kaupir franskt matvælafyrirtæki SÍF er að kaupa franskt matvælafyrirtæki fyrir 29 milljarða króna. Verið er að ganga frá kaupunum. Franska fyrirtækið heitir Labeyrie Group og er að sögn SÍF leiðandi í framleiðslu og dreifingu á kældum matvælum fyrir smásölu. 24.10.2004 00:01
Kaup fyrir 29 milljarða króna SÍF er að ljúka kaupum á franska matvælafyrirtækinu Labeyrie Group fyrir 29 milljarða króna. Þetta eru ein stærstu fyrirtækjakaup íslenskrar viðskiptasögu. Þá hefur SÍF selt dóttturfyrirtæki sitt í Bandaríkjunum og hlut sinn í SH. 24.10.2004 00:01
Sparisjóðirnir fjármagna mest Flestar uppgreiðslur á lánum Íbúðalánasjóðs koma frá sparisjóðunum, eða 32,5 prósent allra uppgreiðslna lána. Þetta kemur fram í svari Íbúðalánasjóðs við fyrirspurn sem Jóhanna Sigurðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, lagði fram á Alþingi sjötta þessa mánaðar. 24.10.2004 00:01
Kaupverð EasyJet 6,3 milljarðar Breskir fjölmiðlar og fjármálasérfræðingar velta fyrir sér kaupum Flugleiða á 8,4 prósenta hlut í lággjaldaflugfélaginu EasyJet í gær. Fullyrt er í blaðinu<em> Independent</em> að kaupverðið á hlutnum sé fimmtíu milljónir punda, eða um 6,3 milljarðar króna. 23.10.2004 00:01
Tilfinningar ráða meiru en rökvísi Á hverju ári verja íslensk fyrirtæki á bilinu 5,5 til sex milljörðum króna í auglýsingar og upphæðin er að líkindum töluvert hærri ef allur kostnaður við kynningu og markaðssetningu er tekinn saman. Þrátt fyrir að hér sé um gríðarlega mikla fjárfestingu að ræða hafa fyrirtæki enn ekki fundið leiðir til þess að meta raunverulega arðsemi hennar. 23.10.2004 00:01
Avion ætlar að kaupa Easy Jet Nýi íslenski flugrisinn, Avion Group, sem á meðal annars flugfélagið Atlanta, ætlar sér að kaupa eitt þekktasta og stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, Easy Jet. Þetta kemur fram í dagblaðinu <em>Guardian</em> í dag. 22.10.2004 00:01
Öll íslensku flugfélögin nefnd Íslenskt flugfélag er orðað við eitt stærsta lágfargjaldaflugfélag Evrópu. Breskir fjölmiðlar segja orðróm um yfirtökutilboð á kreiki. Avion Group, Icelandair og Iceland Express eru öll nefnd sem hugsanlegir kaupendur. 22.10.2004 00:01
Tap upp á 66 milljónir króna Rekstrartap á Íslenska sjónvarpsfélaginu, sem rekur Skjá einn, var rúmlega 66 milljónir í fyrra samkvæmt ársreikningi. Fyrirtækið hafði tæpar fimm hundruð milljónir króna í auglýsingatekjur á árinu en reksturinn kostaði um 570 milljónir. 22.10.2004 00:01
Flugleiðir keyptu í easyJet Flugleiðir hafa keypt 8,4% hlutabréfa í easyJet sem er annað af tveimur stærstu lággjaldaflugfélögum í Evrópu. Ársvelta félagsins er tæplega 130 milljarðar króna á ári og hagnaður um níu milljarðar króna síðastliðið ár. 22.10.2004 00:01
Gróði hjá Gates Hugbúnaðarrisinn Microsoft hagnaðist um 2,9 milljarða Bandaríkjadala á síðasta ársfjóðungi. Þetta samsvarar um tvö hundruð milljörðum íslenskra króna. Þetta er ellefu prósent hækkun frá því á sama tíma í fyrra. 22.10.2004 00:01
Rekstrarbati hjá Nýherja Nýherji skilaði 27 milljón króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi í ár. Þetta er nokkur viðsnúningur frá fyrri hluta ársins þegar tap var á rekstrinum. 22.10.2004 00:01
Ný kjölfesta í Iceland Express Jóhannes Kristinsson mun eignast meirihluta í Iceland Express. Samkomulag hefur náðst við núverandi eigendur um aðkomu hans að félaginu. Nýtt hlutafé verður gefið út og ný stjórn skipuð þegar áreiðanleikakönnun lýkur. Búist er við að það verði í næstu viku. 22.10.2004 00:01
Hátækni er hálf stóriðjan Samtök iðnaðarins telja að útflutningsverðmæti hátæknivöru verði yfir 21 milljarður króna í ár. Mikill vöxtur hefur verið í þessum þætti útflutningstekna á síðustu árum og eru gjaldeyristekjurnar nú komnar upp í helming af því sem þjóðarbúið fær fyrir útflutning á vörum úr stóriðju. 21.10.2004 00:01
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent