Samstaða á síðustu stundu 3. nóvember 2004 00:01
Allt fram til síðustu mínútu fyrir hluthafafund Íslandsbanka leit út fyrir að fylkingar tækjust á um kjör í bankaráð Íslandsbanka. Fylkingar náðu saman rétt áður en fundur hófst og dró einn fulltrúi hvorrar fylkingar framboð til baka og varð því sjálfkjörið í bankaráðið. Einar Sveinsson var endurkjörinn formaður bankaráðsins, en auk hans voru úr fylkingunni kjörin í bankaráðið Karl Wernersson, Jón Snorrason, Róbert Melax og Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fyrsta konan sem kjörin er aðalmaður í bankaráð Íslandsbanka. Þessi hópur hefur nú fulla stjórn á bankanum og fylkir sér að baki forstjóra bankans, Bjarna Ármannssonar. Hin fylkingin fékk tvo fulltrúa, þá Helga Magnússon og Úlfar Steindórsson. Úr bankaráðinu fóru Víglundur Þorsteinsson, Guðmundur B. Ólafsson og Orri Vigfússon, en Orri var kjörin varamaður í bankaráðið. Þessi fylking telur sig eiga meira inni, en Straumur gat ekki nýtt átta prósent af hlut sínum í bankanum vegna þess að ekki liggur fyrir heimild Fjármálaeftirlitsins til eignar meira en tíu prósenta hluts Straums í bankanum. Hin fylkingin mat stöðuna svo að lífeyrissjóðir ætluðu sér ekki að blanda sér í átök um stjórn bankans og því einsýnt að ekki væru atkvæði fyrir nema einum manni miðað við að Straumur gæti ekki beitt fullum atkvæðisrétti. Með þessari niðurstöðu er talið að friður verði um stjórn bankans um sinn. Hins vegar má búast við að aftur verði tekist á um stjórn bankans þegar og ef Fjármálaeftirlitið samþykkir hæfi Straums til að eiga virkan eignarhlut í bankanum. Bjarni Ármannsson, forstjóri bankans, fór yfir rekstur hans að undanförnu. "Það eru spennandi tímar fram undan hjá Íslandsbanka. Markviss vöxtur hefur skilað sér í traustum rekstri og mikilli arðsemi," sagði Bjarni við hluthafa bankans. Engin sundrung einkenndi hluthafa bankans á fundinum. Einróma var samþykkt heimild til stjórnar til hlutafjáraukningar sem bankinn hyggst nýta til frekari sóknar.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira