Varar við breytingum 15. nóvember 2004 00:01
Seðlabankinn varar eindregið við því að lögum um Íbúðalánasjóð verði við núverandi aðstæður breytt á þann veg að sjóðnum verði heimilt að lána 90 prósent af kaupverði íbúða. Seðlabankinn telur að slík breyting kunni að ýta undir ofþenslu og raska fjármálastöðugleika. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir skýrsluna ekki breyta fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um breytingu á húsnæðislánakerfinu. Skýrslan var unnin að beiðni félagsmálaráuneytisins vegna fyrirhugaðra breytinga. Seðlabankinn segir meðal annars að fyrirhuguð kerfisbreyting sé "til þess fallin að auka þenslu í þjóðarbúskapnum í nokkur ár sem væri sérlega óheppilegt í ljósi efnahagshorfa næstu ár," og að breytingin gæti valdið því að Seðlabankinn þyrfti að "bregðast við með hærri stýrivöxtum en ella". Árni Magnússon segir að sér hafi verið kynnt skýrslan í haust og síðan hafi margt breyst. "Það er ósköp fróðlegt að fletta í gegnum hana en fyrir mér er hún fyrst og fremst sagnfræði. Ég hef hvatt þá til að fylgjast með því sem er að gerast á markaðnum núna og það sem við ætlum okkur að gera í ljósi frumvarpsins sem ég hef lagt fram í þinginu ruggar þessum bát ekki miðað við það sem bankarnir hafa gert," segir hann. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði bendir á að skýrslan hafi að mestu verið unnin síðasta vetur og í vor áður en bankarnir byrjuðu að bjóða íbúðalán með allt að hundrað prósenta veðsetningarhlutfalli. "Við erum ekki sammála þessu mati Seðlabankans," segir hann.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira