Viðskipti innlent

Fallið frá skilyrðum

Íslandsbanki er hættur við að krefjast þess að þeir sem taka 100 prósent íbúðalán taki jafnframt lánatryggingu. Það hefur sætt gagnrýni að slík trygging hefur í för með sér að tryggingartaki þarf að gefa ýmsar viðkvæmar persónuupplýsingar og einnig að svara spurningum um heilsufar ættingja. Í frétt frá Íslandsbanka segir að sérstök lánatrygging bjóðist lánþegum hjá Sjóvá-Almennum, dótturfélagi bankans. Fram kemur í tilkynningunni að niðurstaðan hafi fengist eftir viðræður við forsvarsmenn Öryrkjabandalags Íslands.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×