Fleiri fréttir

Er öryggi sjúklinga og starfsfólks ógn eða hótun?

Auðbjörg Reynisdóttir skrifar

Gott fólk .Hvernig er líðan þeirra sem þurfa að leita til LSH eða leggjast inn á spítalann við síendurteknar upphrópanir um að öryggi þeirra sé ógnað? Starfsmenn eru uggandi, kvíða hverri vakt og fegnir að sleppa heim í vaktarlok án teljandi vandræða.

Fyrirmyndarstjórinn við Tjörnina

Álfrún Pálsdóttir skrifar

Veistu hver þetta er?“ ég sný mér að dóttur minni þar sem við röltum um vesturbæ Reykjavíkur. Hún lítur á úlpuklædda manninn með hund og húfu sem gengur fram hjá okkur og hristir hausinn. "Þetta er borgarstjórinn,“ segi ég og barnið snýr sig næstum úr hálslið til að berja manninn augum.

Lyfjaeitranir barna

Teitur Guðmundsson skrifar

Þegar maður er ungur að aldri, þá gildir einu af hvoru kyninu, er forvitnin ein af driffjöðrunum við að rannsaka heiminn. Það er gaman að fylgjast með börnum vaxa úr grasi, sjá þau læra með tímanum hvernig umhverfi þeirra virkar, hvaða hættur eru til staðar og hvernig beri að varast þær.

Húsnæðisvísitala

Már Wolfgang Mixa skrifar

Stefnt er að því af hálfu stjórnvalda að einungis verði hægt að taka óverðtryggð lán til fasteignakaupa. Þó taka um tveir þriðjuhlutar íslenskra heimila verðtryggð lán í dag, sem bera lægri raunvexti en óverðtryggð lán. Leigugjald peninga til fasteignakaupa yrði því dýrara.

Getur Ísland siglt eitt á báti?

Michel Sallé skrifar

Það sem í myrkrinu leynist er enn flóknara því að hér snertum við rætur íslensku þjóðarinnar, átakamikla og erfiða sögu hennar. Íslenska þjóðin þurfti þó hvorki að þola stríð né einræðisstjórn. Frumtilgangur stofnunnar ESB er einmitt höfnun á því tvennu. Þýðir þetta að Ísland geti siglt eitt á báti? Það er synd og skömm að ekkert hefur heyrst rætt um það.

Yfirvöld koma í veg fyrir að ungt fólk flytji að heiman

Ingvar S. Birgisson skrifar

Staðan er sú í dag að það er mun dýrara fyrir ungt fólk að flytja að heiman en á árum áður. Velmeinandi, en íþyngjandi, reglugerðir, lóðaskortur og háir skattar stuðla að háu húsnæðisverði svo erfitt er fyrir einkaaðila að koma til móts við þarfir ungs fólks sem vill hentugt húsnæði á viðráðanlegu verði.

Vinnustaðakex

Berglind Pétursdóttir skrifar

Á vinnustöðum er kex. Það er í reglugerðinni um vinnustaði. 1.gr. Á vinnustöðum skal vera kex. 2. gr. Kexið skal vera við hliðina á kaffivélinni. Það eru reyndar undantekningar frá þessu eins og flestu. Til dæmis þegar ég vann sem ballettkennari, þá var aldrei kex. En förum ekki nánar út í það hér.

Raki, mygla – meinsemd, meðul

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Umræðan um vandamál af völdum raka og myglu í húsnæði hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Mannkyninu hefur enn ekki auðnast að vinna bug á þessari meinsemd þrátt fyrir miklar rannsóknir sem farið hafa fram á seinni tímum

Hinn tvíræði sigurvegari

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Hafi Samfylkingin verið ótvíræður sigurvegari í Reykjavík var Framsókn hinn tvíræði sigurvegari. Hún fór undan í flæmingi þegar knúið var á um skýr svör um moskumálið, sagði það sem hentaði hverju sinni, talaði tungum tveim en undirtextinn var ævinlega sá sami: Hér er múslimaógn sem enginn þorir að tala um nema við.

Áhugaleysi og lýðskrum

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Tvennt stendur upp úr sem alvarlegt umhugsunarefni eftir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn. Annars vegar er það hin litla kjörsókn. Hún er enn minni en fyrir fjórum árum og í Reykjavík minnkar hún um meira en tíu prósentustig. Þetta er til marks um áframhaldandi áhugaleysi og óþol almennings gagnvart pólitík.

Hver veldur framtíðinni?

Ólafur Páll Jónsson skrifar

Vertu gerandi í þínu eigin lífi! Ekki vera passífur þiggjandi, ekki leiksoppur umhverfis og kringumstæðna. Ekki snúast eins og vindhani sem tekur nýja stefnu í hvert sinn sem vindurinn skiptir um stefnu. Stattu fyrir eitthvað – eitthvað sem er þitt. En vertu samt ekki þvergirðingur, þumbari, þurs, þykkskinnungur.

Viðbrögð við stórtækum breytingum

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Áform Vísis hf. um að loka fiskvinnslu fyrirtækisins á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi og færa alla starfsemina til Grindavíkur eru að líkindum toppurinn á ísjaka sem er næsta hagræðingarhrina í íslenzkum sjávarútvegi.

Landið er dýrmæt auðlind

Gunnar Bragi Sveinsson og Monique Barbut skrifar

Um einn milljarður jarðarbúa býr í dreifðum byggðum þróunarríkja þar sem flestir byggja lífsviðurværi sitt á sjálfsþurftarbúskap eða eru smábændur. Dýrmætasta auðlindin er frjósamur jarðvegur og landeyðing er skæður óvinur.

Af hverju ættir þú að kjósa Dögun?

Ása Lind Finnbogadóttir og Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir skrifar

Dögun er umfram allt grasrótarflokkur sem hefur að skipa hugsjónafólki úr ýmsum áttum. Sem dæmi hafa þrír af frambjóðendum Dögunar fengið tilnefningar, styrki og verðlaun fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum utangarðsfólks og gegn fordómum.

Nýtum kosningaréttinn okkar

Berglind Vignisdóttir skrifar

Farið á kjörstað og sannið að stjórnmál eru ekki einungis málefni fullorðinna, stjórnmálamanna eða hagfræðinga heldur samfélagsins í heild.

Framtíðin byrjar í dag

Margrét Marteinsdóttir skrifar

Borgarbúar geta í dag haft mikil áhrif á hvernig næstu ár verða í borginni okkar. Björt framtíð leggur mikla áherslu á mannréttindi, líkt og Besti flokkurinn hefur gert síðustu 4 ár. Mannréttindi fyrir alla, sama hvaðan þeir koma eða hvert þeir eru að fara eða hvað þeir gerðu í millitíðinni.

Ég hvet þig til að kjósa

Dagur B. Eggertsson skrifar

Skemmtilegri – en nokkuð rólegri kosningabaráttu er að ljúka. Í dag er kjördagur. Umræðan hefur einkennst af því að Reykjavík stendur að mörgu leyti vel. Það hefur verið kærkomin ró yfir stjórn borgarinnar á liðnu kjörtímabili.

Griðastaðurinn Reykjavík

S. Björn Blöndal skrifar

Ástkæri Reykvíkingur Í dag getur þú haft áhrif á það hvernig næstu fjögur ár verða í borginni okkar. Reykjavík er í mikilli mótun. Gríðarlegar breytingar hafa orðið hér á allra síðustu árum. Við eigum að taka þeim fagnandi og með opnum hug.

Sameinuðu þjóðirnar bjóða til kosninga

Berglind Sigmarsdóttir skrifar

Það má með sanni segja að allt snúist um kosningar þessa dagana. Á þessu ári gangast Sameinuðu þjóðirnar einnig fyrir kosningum. Í fyrsta skipti í sögunni bjóða Sameinuðu þjóðirnar hverjum einstaklingi í heiminum að hafa sitt að segja um framtíð þróunarstarfs í heiminum.

Í dag getum við

Halldór Halldórsson skrifar

Í dag göngum við Reykvíkingar til kosninga. Við gerum upp við kjörtímabilið sem er að líða og ákveðum hvernig við viljum að borginni okkar verði stjórnað næstu fjögur ár.

Velferð í Garðabæ

Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar

Foreldrahlutverkið er eitt hið ábyrgðarmesta á lífsleiðinni, við þekkum vel hvernig lífið gjörbreytist við tilkomu barns. Garðabær er fjölskyldubær með sterka þjónustu við ungmenni og aðstæður sem skapa öryggi og tækifæri til vaxtar. Að taka þá ákvörðun að setja foreldrahlutverkið í öndvegi er lykilákvörðun til farsældar barna, foreldra og bæjarfélags.

Kennarar, ykkur duga sjúskuð húsgögn, lélegur tækjakostur og vont kaffi

Lára Óskarsdóttir skrifar

Ég hóf störf sem kennari síðastliðið haust en áður starfaði ég í einkageiranum og sem sjálfstætt starfandi. Á meðan nýjabrumið hangir enn á mér, ætla ég að tjá mig varðandi vinnuaðstöðu og aðbúnað kennara. Svo því sé haldið til haga er efniviður greinarinnar fenginn hvort tveggja úr heimsóknum mínum í skóla og á eigin vinnustað.

Að virða vilja borgarbúa

Júlíus Vífill Ingvarsson skrifar

Þau sem krefjast kurteislegra samskipta verða að byrja á sjálfum sér. "Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig“. Samskiptaferlum borgarinnar við borgarbúa verður að breyta og hefja undirbúning mála fyrr í góðu samráði og á jafnræðisgrunni.

Á að gera hlutina öðruvísi?

Þorsteinn Pálsson skrifar

Að morgni kjördags eru úrslitin að sjálfsögðu ekki gefin. En reikna má með að talning atkvæða í kvöld staðfesti í höfuðdráttum kannanir síðustu daga.

Fortíðarþrá eða framtíðarsýn

Már Ingólfur Másson skrifar

Ég fermdist árið 1996. Fermingardagurinn sjálfur er ekkert voðalega eftirminnilegur en gjafirnar eru það, sérstaklega utanlandsferðin til Köben að heimsækja stóra bróður. Ég man vel eftir því að sitja í Leifsstöð með Walkman-vasadiskó að hlusta á Skunk Anansie-kassettu, að sjálfsögðu kveikti ég á Dynamic Bass Boost til að fá meiri kraft í þetta.

Landið eitt sveitarfélag

Snærós Sindradóttir skrifar

Við erum 326 þúsund talsins og okkur er skipt niður á 74 sveitarfélög. Ef okkur væri deilt jafnt væru öll sveitarfélög á stærð við Fjarðabyggð. Þar eru fimm grunnskólar og fimm leikskólar. Sveitarfélagið rekur þrjú hjúkrunarheimili, sér um húsnæðismál fatlaðra, sinnir heimaþjónustu og útvegar stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn gjaldfrjálst.

Hvar verður þú eftir 4 ár?

Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar

Kópavogsbær hefur lagt mikla vinnu í ný húsnæði á síðustu árum, en samt höfum við unga fólkið einhvern veginn gleymst í öllum hamaganginum. Við, umbótasinnar Dögunnar, viljum byggja upp almennan leigumarkað í Kópavogi þar sem verður tekið tillit til einstaklinga, para og nýfjölskyldna.

Garðabær- fyrir okkur öll

Steinþór Einarsson og Guðrún Arna Kristjánsdóttir skrifar

Nú erum við í fyrsta skipti að kjósa í sameinuðu sveitarfélagi Garðabæjar og Álftaness. Stærra sameinað sveitarfélag gefur okkur mörg tækifæri í þjónustu og uppbyggingu sem við eigum að nýta okkur á sem bestan hátt.

Pólitískar getnaðarvarnir

Ragnar Hansson skrifar

Það les enginn pólitíska pistla nema fólk sem pælir* í pólitík. Ekki láta það þá koma þér á óvart ef þessi pistill er vaðandi í málfræðivillum. Ég las hann líklega ekki yfir áður en ég sendi hann inn.

Sveitalubbi fer í framboð

Kristín Elfa Guðnadóttir skrifar

Ég elska Reykjavík en ég er ekki alltaf dús við hana. Hvers vegna eru svona margir Reykvíkingar í þeim sporum að eygja litla sem enga von um að nokkurn tímann verði hlustað á þá?

Ég er Pírati út af skólamálum

Katla Hólm Vilbergs Þórhildardóttir skrifar

Kennarar þurfa frjálsar hendur, skólarnir þurfa meira fjármagn, foreldrar og nemendur eiga að fá að taka þátt í ákvörðunum, launin þurfa að hækka! Því að framtíð samfélagsins er í húfi. Þess vegna er ég Pírati.

Setjum saman sterkan minnihluta í Garðabæ

Halldór Jörgensson skrifar

Þörf er fyrir uppbyggilega umræðu í bæjarstjórn Garðbæjar sem leitt getur til lausna sem er í virku samtali og sátt við bæjarbúa.

Áfram lækkun skulda og skatta - forgangsmál

Jón Finnbogason skrifar

Efst á blaði stefnuskrár Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi er niðurgreiðsla á skuldum bæjarsjóðs og lækkun skatta. Verði haldið áfram á þeirri braut mun það tryggja þann trausta grunn sem skynsamleg fjármálastjórn hefur skilað.

Ástríðan

Tryggvi Gunnarsson skrifar

Það eru bæjarbúar sem geta tryggt það að L – listinn verði áfram leiðandi afl í bænum okkar fagra.

Traust

Gísli H. Halldórsson skrifar

Ég tel mig með mína reynslu eiga fullt erindi í embætti bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar á næsta kjörtímabili. Ég tel mikilvægt að sú reynsla verði nýtt í þágu bæjarbúa með þeim hætti. Ég legg þessa ákvörðun í ykkar hendur kæru kjósendur.

Félagsleg réttlæti: bréf til Íslenskra félagshyggjumanna

René Biasone skrifar

Við berjumst saman einnig gegn frjálshyggjustefnu sem eyðileggur réttindi og mannlega reisn Íslendinga. Saman munum við berjast fyrir lýðræðislegu, friðsömu og einhuga Íslandi, landi þar sem félagslegt réttlæti mun ríkja.

Að skapa bjarta framtíð í velferðarþjónustu á Íslandi

Freyja Haraldsdóttir og Ilmur Kristjánsdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir skrifa

Til þess að samfélag virki og þar ríki jafnvægi og friður er grundvallaratriði að það sé ekki álitið náttúrulögmál að sumir hafi það betra en aðrir. Við viljum taka þátt í að skapa nýjar hugmyndir og ný viðhorf til velferðarþjónustunnar þar sem fagleg þekking og sjálfstæði einstaklinganna eru hornsteinar.

Stofnendur Eirar gangist við ábyrgð

Sigrún Pálsdóttir skrifar

Íbúahreyfingin vill að Mosfellsbær gangist við ábyrgð sinni og hafi forgöngu um að gamla fólkið eigi áhyggjulaust ævikvöld.

Eitt loforð eða framtíð Kópavogs

Sverrir Óskarsson skrifar

Í spjalli við íbúa Kópavogs kemur skýrt fram áhersla þeirra á öfluga og sveigjanlega þjónustu en líka væntingar um skynsamlega ráðstöfun á okkar sameiginlegu fjármunum. Þeir segja að bæjarstjórn og bæjarfélagið eigi að vinna markvissar og í meiri sátt við íbúa Kópavogs.

Góður bær fyrir fjölskyldur

Almar Guðmundsson skrifar

Það er gott að búa í Garðabæ. Það staðfesta fjölmargar þjónustukannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Fjárhagslegur stöðugleiki, góð þjónusta og lágar álögur á íbúa eru á meðal þess sem fólk nefnir í því samhengi.

Sjá næstu 50 greinar