Fleiri fréttir
Dauðalisti tungumálsins 17.10.2009 00:01 Þegar á reynir Anna Stefánsdóttir og Kristján Sturluson skrifar Rauði kross Íslands hefur það hlutverk í almannavörnum landsins að sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sjálfboðaliðar Rauða krossins starfa í 50 deildum sem mynda neyðarvarnanet um allt land og hafa gert sérstakar áætlanir um viðbrögð í kjölfar áfalla. Það gerir Rauða krossinum kleift að bregðast tafarlaust við neyð heima í héraði og á landsvísu. 16.10.2009 06:00 Leynisamningar Landsvirkjunar Jón Steinsson skrifar Á undanförnum árum hafa Landsvirkjun og önnur opinber orkufyrirtæki gert stóra orkusölusamninga til mjög langs tíma við erlend iðnfyrirtæki sem reist hafa álbræðslur hér á landi. Þrátt fyrir að hér sé um eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar að ræða hafa stjórnvöld til þessa komist upp með að upplýsa ekki um verðið sem álbræðslurnar greiða fyrir orkuna. 16.10.2009 06:00 Meirihlutinn vill skutlið áfram Fyrir ári fluttu fulltrúar Samfylkingar og VG í Umhverfis- og samgönguráði tillögu um að hefja þegar vinnu við mótun grænnar samgöngustefnu í hverfum borgarinnar í samvinnu við hverfisráð, frístundaaðila, íbúasamtök og aðra sem málið varðar. Markmiðið var að börn og fullorðnir gætu á öruggan og auðveldan hátt komist á milli staða í hverfinu án þess að nota bíl og áhersla var lögð á að eyða þörfinni fyrir skutl. 16.10.2009 06:00 Skorumst ekki undan Svandís Svavarsdóttir skrifar Frá því á Umhverfisþingi um liðna helgi þar sem ég fjallaði meðal annars um samningsmarkmið Íslands í loftslagsmálum hafa ýmsir 16.10.2009 06:00 Byltingarkynslóðin Valur Gunnarsson skrifar Davíð Þór ritaði um daginn baksíðugrein um hina svokölluðu „krúttkynslóð“. Hún hefur áður verið gagnrýnd af mörgum, af Atla Bollasyni fyrir að vera ekki nógu söluvænleg og af mér fyrir að vera ekki nógu gagnrýnin á sölumennskuna. Það segir síðan ýmislegt um íslenska umræðuhefð að okkur 16.10.2009 06:00 Viðskiptavinir hafa byggt upp Bónus Jóhannes Jónsson skrifar Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með umræðunni um Bónus undanfarna daga. Hver á fætur öðrum koma þeir embættismennirnir og lýsa óánægju sinni með fyrirtækið. Það þurfi að fylgjast með eigendunum. Það þurfi að fylgjast með hvar þeir kaupi inn vöruna. Það þurfi að fylgjast með hvernig þeir verðleggja vöruna. Það þurfi að fylgjast með hver selur hverjum hvað. Það þurfi að fylgjast með hvernig keppinautunum reiðir af í samkeppninni við Bónus og svo framvegis. Óánægjan er alveg að fara með þessa menn. 15.10.2009 06:00 Jarðtengdir stjórnmálamenn óskast Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon skrifar Nú rúmu ári eftir hrunið sjá íslensk fyrirtæki ekki enn til lands. Rekstrarumhverfi þeirra er skelfilegt – endurfjármögnun er í uppnámi, háir vextir gera það fjármagn sem í boði er of dýrt til að réttlæta framkvæmdir, há verðbólga, fallandi eða hrunin eftirspurn, handónýtur gjaldmiðill og svo mætti áfram telja. 15.10.2009 06:00 Með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi Jórunn Frímannsdótti skrifar Borgarfulltrúi Björk Vilhelmsdóttir fer stórum orðum í grein í Fréttablaðinu í gær um að til standi að flytja þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða 300 metra til austurs. Hún gerir samráðsleysi og ákvarðanatöku borgarstjóra að umtalsefni en hefur greinilega gleymt að kynna sér staðreyndir málsins. 15.10.2009 06:00 Embættismaður í pólitík Þorleifur Gunnlaugsson skrifar Það er ekki algengt að embættismenn eða starfsfólk opinberra fyrirtækja blandi sér í stjórnmálaumræðuna. Nú hefur stjórnarformanni Orkuveitunnar, framsóknarmanninum Guðlaugi Sverrissyni tekist að fá forstjóra Orkuveitunnar, Hjörleif Kvaran með sér í pólitískan leiðangur. 15.10.2009 06:00 Opið bréf til heilbrigðisráðherra Ragnhildur Jóhannsdóttir skrifar Mikið hefur verið fundað í Heilbrigðisráðuneytinu um starfsemi Kragasjúkrahúsanna frá því haustið 2008. Til að gera langa sögu stutta ákvað nefnd á vegum Guðlaugs Þ. Þórðarsonar fyrrum heilbrigðisráðherra að loka skurðdeild St. Jósefsspítala Hafnarfirði, flytja átti hluta starfseminnar til Keflavíkur. Mikil mótmæli urðu við þeirri ákvörðun. 15.10.2009 06:00 Er SP-fjármögnun að brjóta samningsskilmála? Þórdís Sigþórsdóttir skrifar SP-fjármögnun (SP) hefur fjármagnað bílakaup fyrir stóran hluta landsmanna síðustu árin. Fyrirtækið er dótturfyrirtæki Landsbankans og tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur bankans þegar neyðarlögin tóku gildi sl. haust. 15.10.2009 06:00 11 milljarðar í ný hjúkrunarheimili Magnús Orri Schram skrifar Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stefna að byggingu nýrra hjúkrunarheimila með 361 rými á árunum 2010 til 2012. Verkefnið kemur á góðum tíma fyrir byggingariðnað á krepputíma og hefur í för með sér verulega breytingu á aðstæðum aldraðra. 15.10.2009 06:00 Árás Bretastjórnar Jón Sigurðsson skrifar Enda þótt ár sé liðið fer því víðs fjarri að áhrifin af tilhæfulausri árás Bretastjórnar á Íslendinga séu farin að minnka. Því fer líka fjarri að upplýst hafi verið til fulls hverjar ástæður Bretastjórn notaði sem yfirskin til þessara aðgerða. Síst af öllu kemur til mála að Íslendingar gleymi þessu tilræði. Þvert á móti eigum við að hafa þetta fólskubragð vel hugfast. 15.10.2009 06:00 Þegar allt breyttist ekki Dr. Gunni skrifar Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. 15.10.2009 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Ekki drepa málum á dreif Jón Sigurðsson skrifar Yfir þjóðina rignir blaðagreinum, sjónvarpsþáttum og bókum um bankahrunið. Innan um annað hefur ýmislegt skynsamlegt og sannfærandi verið sagt um þessa atburði. Þó mun nokkuð enn líða áður en vænta má viðhlítandi skýringa. 23.10.2009 06:00
Kaupmátturinn og dýrðin Brynhildur Björnsdóttir skrifar Nú líður að jólaverslun með tilheyrandi auglýsingum, útbíuðum í jólatrjám og jólasveinum, löngu áður en það er einu sinni hægt að láta börn undir sex ára telja niður daga sem eru þrisvar sinnum fleiri en tær og fingur. Að vanda munu þrír helstu verslunarkjarnar höfuðborgarsvæðisins keppa um hylli neytenda (hylli neytenda er einn uppáhaldsfrasinn minn) með því að bjóða betri kjör, meiri söng, fleiri piparkökur og mörg tonn af ókeypis skyndijólaskapi sem verður úðað út í mengað stórborgarloftið. Við þessi árlegu tímamót er vert að skoða hvernig kjarnarnir þrír taka á móti viðskiptavinum sínum og kunningjum. 23.10.2009 06:00
Skrefi á undan Svanhildur Konráðsdóttir skrifar Reykjavíkurborg býður til Hugmyndaþings í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á sunnudaginn milli kl. 13 og 16. Hugmyndaþingið er liður í þeirri viðleitni borgarstjórnar að hvetja til aukinnar þátttöku íbúa í ákvarðanatöku og stefnumótun fyrir borgina. 23.10.2009 06:00
Hreppur eða borg Pawel Bartoszek skrifar Þrátt fyrir hina miklu bílaeign þjóðarinnar eru bílar almennt ekki sérlega vel liðinn hlutur. Flestum er raunar afar illa við alla aðra bíla en þeirra eiginn. Hinir bílarnir eru of margir, keyra og hratt, leggja ólöglega, virða ekki stöðvunarskyldur og gefa ekki stefnuljós. Annarra manna bílar eru einhver versti gestur og nágranni sem menn geta óskað sér. Ef „íbúar í nágrenninu“ fengju einhverju ráðið yrðu allar götur annað hvort botnlangar eða einsstefnugötur, eða jafnvel hvort tveggja. Sem væri raunar dálítið fyndið. 23.10.2009 06:00
Rangfærslur leiðréttar Baldur Guðlaugsson skrifar Fréttablaðið birti í gær frétt þess efnis að ástæður þess að Fjármálaeftirlitið hafi í sumar ákveðið að endurupptaka athugun sem lauk í maí sl. á viðskiptum mínum með hlutabréf í Landsbanka Íslands í september 2008 séu annars vegar þær að Fjármálaeftirlitið hafi komist að því að upplýsingar um yfirvofandi fall íslensku bankanna hafi í mars 2008 verið kynntar á fundi í samráðshópi ráðuneyta og stofnana sem ég átti sæti í og hins vegar fundur sem ég sat ásamt fleiri fulltrúum Íslands með fjármálaráðherra Breta haustið 2008. 22.10.2009 06:00
Endurreisn eða annað hrun? Eygló Harðardóttir skrifar Í stjórnarsáttmála Samfylkingar og VG segir: „Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá endurreisn atvinnulífsins sem fram undan er. Það er því afar mikilvægt að skapa greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða.“ Í kjölfarið segir að áætlun um innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda taki gildi í upphafi næsta fiskveiðiárs, hinn 1. september 2010. 22.10.2009 06:00
Músík og mannasiðir Þorvaldur Gylfason skrifar Vinur minn einn hefur farið svo víða og gert svo margt, að hann á að heita má ekkert eftir. Honum finnst tvennt skara fram úr öllu öðru, sem hann hefur tekið sér fyrir hendur: að tína sveppi og renna sér á skautum. Þegar hann gifti sig, bauð hann konunni með sér að tína sveppi. 22.10.2009 06:00
Hagræði fyrir alla Margrét kristmannsdóttir skrifar Eitt af því sem góðærið leiddi af sér var að afgreiðslutími verslana hér á landi var lengdur. Afgreiðslutími á virkum dögum var lengdur, fimmtudagskvöldin bættust við, lengri afgreiðslutími á laugardögum, sunnudögum, um helgar, lengri afgreiðslutími fyrir jólin og opið allan sólarhringinn. Kaupmenn kepptust hver um annan þveran að lengja afgreiðslutímann og oft var eins og lengri afgreiðslutími væri eina svarið við aukinni samkeppni. Nú situr íslensk verslun uppi með einn lengsta afgreiðslutíma sem þekkist í nágrannalöndunum, ef ekki þann lengsta. 22.10.2009 06:00
Kirkjunni ber að vera öruggt skjól Prestar skrifar Í bréfi til Biskups Íslands, dagsettu 12. september 2009, frá sex starfandi prestum og fjórum prestum sem hættir eru störfum er gagnrýnd sú ákvörðun að færa sóknarprestinn á Selfossi til í starfi. Þar er einkum byggt á þeim rökum að með því sé ekki farið eftir þeim lögum sem í landinu ríkja og þar af leiðandi verði til fordæmi á þá leið að auðvelt gæti reynst að koma presti úr embætti með jafnvel tilefnislausum ákærum. Við lýsum okkur ósammála þessu bréfi og þeirri röksemdafærslu sem þar birtist. 22.10.2009 06:00
Framtíðarsýn Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf. Já veröldin var skrýtin, það var allt orðið breytt, því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt,“ söng Vilhjálmur Vilhjálmsson árið 1969 á plötunni Hún hring minn ber. 22.10.2009 06:00
Fólk í fréttum? Þurý Björk Björgvinsdóttir skrifar Fimmtudaginn 15. október stofnaði ég hóp á Facebook sem ber nafnið Burt með slúðurfréttirnar af Vísi.is. Hef ég á stuttum tíma fengið miklar og góðar viðtökur en þegar þetta er ritað eru alls 724 meðlimir í hópnum og fjölgar þar stöðugt. Það er deginum ljósara að ég er ekki ein um þær skoðanir sem hér á eftir fara. 22.10.2009 06:00
Hættuleg meinloka Tryggvi Agnarsson skrifar Sú alvarlega meinloka virðist nú ríkjandi meðal ýmissa ráðamanna þjóðarinnar og hjá ríkisbönkunum að alls ekki megi koma skuldugum fyrirtækjum til hjálpar með niðurfærslum eða afskriftum skulda nema nýir eigendur taki fyrst við rekstri þeirra. 22.10.2009 06:00
Aðstandendur sjúklinga Kolbrún Ýrr Ronaldsdóttir skrifar Að vera aðstandandi sjúklings með lífshættulegan sjúkdóm er krefjandi. Enginn getur verið almennilega undirbúinn undir það að fjölskyldumeðlimur greinist með slíkan sjúkdóm. Ákveðið ferli fer í gang og í sumum tilfellum hefst það á skjótri reiði; mikil óvissa myndast, vitneskja um sjúkdóminn og lífslíkur eru kannski ekki miklar og forgangsröðun í lífinu gjörbreytist. 22.10.2009 06:00
Háskólinn Eiríkur Bergmann skrifar Á uppgangstíma efnahagslífsins óx háskólakerfið með sama ógnarhraða og mörg önnur svið samfélagsins. Samkeppni varð boðorð dagsins og háskólarnir hófu að keppa hver við aðra um nemendur. Samkeppnin átti í orði kveðnu að auka gæði og fjölbreytni í háskólastarfi. 21.10.2009 06:00
Réttlæti þeirra ríku og voldugu Páll Baldvin Baldvinsson skrifar Embættismaður liggur undir grun um að hafa nýtt sér trúnaðarupplýsingar til að bjarga eigin skinni með sölu á hlutabréfum í banka. Hann er viðfangsefni í opinberri umræðu og sætir nú öðru sinni opinberri rannsókn grunaður um innherjaviðskipti. Hann situr sem fastast og þverneitar að láta af störfum þótt almenn réttlætiskennd boði að honum verði vikið tímabundið úr starfi. 21.10.2009 06:00
Milliliðalaust Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Ríkisstjórnin bað í gær þegna landsins um að beina reiði sinni ekki að persónum og heimilum. Rétt væri að skilja þar á milli og þrátt fyrir að réttur fólks til mótmæla væri vissulega viðurkenndur, sé mikilvægt að þau mótmæli séu skipulögð, friðsamleg og rúmist innan allsherjarreglu samfélagsins. 21.10.2009 06:00
Framboð og eftirspurn Silja Bára Ómarsdóttir skrifar Síðastliðinn föstudag birtist frétt á Lögregluvefnum um að vísbendingar séu um að skipulögð glæpastarfsemi færist í vöxt hér á landi [http://www.logreglan.is/displayer.asp?cat_id=81&module_id=220&element_id=14546]. Það er vissulega ástæða til að fagna því að lögreglan veki athygli á þeim glæpum sem eiga sér stað hér og byggja á nauðung fólks, en þegar snýr að mansali til kynferðislegar misneytingar er aðallega um konur að ræða. Bæði karlar og konur eru seld mansali til nauðungarvinnu af öðru tagi. 21.10.2009 06:00
Lagt inn í hugmyndabankann Halla Tómasdóttir skrifar Fáar þjóðir hafa fengið annað eins tækifæri upp í hendurnar og það sem Íslendingar hafa nú. Kreppan er ekki bara vond. Hún felur í sér möguleika á að hugsa upp á nýtt og bæta samfélagið. 20.10.2009 06:00
Virkisborgin Ísland Frá árinu 1996 og til ársloka 2008 sóttu rúmlega 650 einstaklingar um hæli á Íslandi. Þar af dró rúmlega fjórðungur umsóknir sínar til baka eða hvarf af landi brott. Íslensk stjórnvöld hafa því einungis þurft að afgreiða um fjörutíu umsóknir um hæli á ári að meðaltali undanfarin tólf ár - vissulega nokkru fleiri á síðustu árum. Þrátt fyrir það virðast þau veigra sér við það verk því að einungis tæpur helmingur þessara umsækjenda fékk efnislega meðferð á málefnalegum forsendum. Hinir voru sendir úr landi á grundvelli svo kallaðrar „Dyflinnarreglu" sem ætlað er að koma í veg fyrir að einn einstaklingur geti átt umsóknir í mörgum ríkjum samtímis. 20.10.2009 06:00
Stieg vinur minn Fyrir nokkrum mánuðum rændi Svíi hjarta mínu. Já, þetta gerðist þrátt fyrir að ég sé vel að mér um Íslendingasögur og viti að Svíar eru undantekningarlaust vondir menn, göldróttir og jafnvel berserkir. Ég var stödd úti í bókabúð, ákveðin í að kaupa mér skemmtilegt léttmeti og komin með kilju í hönd. Í biðröðinni hitti ég fyrir annan viðskiptavin. Honum þótti augljóslega lítið til bókarinnar í höndum mér koma en ýtti að mér annarri bók. Bókin hét Karlar sem hata konur og hafði ég verið þess fullviss að þar væri á ferð femínískt fræðirit en ég var ekki á höttunum eftir slíku riti þennan eftirmiðdag. En af því að þessi maður í bókabúðinni var nú sjálfur Egill Helgason, sem margir telja nestor íslenskrar bókmenntaumræðu, og af því að röðin var komin að mér við kassann gerðist ég meðvirk mjög og skipti umhugsunarlaust um skruddu. Þegar út var komið sá ég samstundis eftir skiptunum og var skapi næst að bíða eftir því að Egill og önnur gáfumenni sem höfðu hreiðrað um sig inni í búðinni færu burt svo ég gæti skilað henni. 20.10.2009 06:00
Til öryggis Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Fyrir bara tveimur örstuttum árum vorum við á hátindi oflætisins og okkur allir vegir færir. Rjómi íslenska aðalsins spókaði sig í bönkum og kauphöllum heimsins og gerði feita díla á báðar hendur, svo rosalega snjalla. Við hin vorum reyndar ábekingar en höfðum ekki hugmynd um það. Skammsýni okkar og trúgirni borgum við nú dýru verði. Eins og undanfarið ár hafi ekki verið nógu harkalegur skellur á hrjáðri þjóð, þá byrjar vetur númer tvö af engu minna offorsi. Ofan á efnahagshörmungar bætast fleiri ógnir gegn heimilum og heilsufari. Öfugt við stemminguna fyrir tveimur árum þegar við vorum öll svakalega alþjóðleg og smartheitin komu viðstöðulaust frá útlöndum, þá kemur nú þaðan ekkert nema lífshætta. 19.10.2009 06:00
Vígð smámenni Davíð Þór Jónsson skrifar Kristur tók sér alltaf stöðu með hinum kúguðu og forsmáðu, gegn kúgurum og valdníðingum. Kirkja sem ekki gerir það getur ekki gert neina kröfu til þess að teljast kirkja Krists á jörð. Þetta er svona einfalt. Stofnun sem tekur sér stöðu með þeim sem uppvís hefur orðið að siðferðisbroti, gegn fórnarlömbunum, er ekki kirkja heldur ömurleg afskræming alls þess sem kirkja á að vera. 19.10.2009 06:00
Uss! Fyrsta grein óskráðra reglna íslenskra stjórnmála, stjórnsýslu og viðskipta er að yfir málum skuli hvíla leynd nema annað sé sérstaklega ákveðið. Af þessari óskráðu reglu eru stjórnmálin, stjórnsýslan og viðskiptin gegnsýrð. 19.10.2009 06:00
Ruslið í ríkinu Haukur Már Helgason skrifar um málefni innflytjenda Rusl er merkilegt orð. Annars vegar vísar það til þeirra hluta sem hafa misst gildi sitt, notagildi eða annað, og eru orðnir óþarfir. Benda má og spyrja: Er þetta rusl? Ef svarið er já, hvað er þá, hins vegar, gert við það? Því er hent í ruslið. Þar er hin merking orðsins – staðurinn fyrir það sem hefur misst gildi sitt. 19.10.2009 06:00
Útistofan - skemmtileg skólastofa Hermann Valsson skrifar um skólastarf skrifar Í starfi mínu sem kennari í Norðlingaskóla hef ég notið þeirra forréttinda að taka þátt í þróun útikennslu við skólann. Útikennsla hefur á síðustu árum fengið þó nokkra athygli og eru margir leik- og grunnskólar að tileinka sér vinnubrögð sem henta útikennslu. Vaxandi áhugi á útikennslu er ekki bundinn við Ísland. Við virðumst vera þó nokkrum árum á eftir nágrönnum okkar hvort sem litið er austur til Evrópu til Norðurlanda eða vestur um haf til Bandaríkjanna. Skólar á Íslandi nálgast útikennslu á margvíslegan máta og tekur sú nálgun jafnan mið af þeirri aðstöðu sem er til staðar í nágrenni skólanna. Þessi fjölbreytni í nálgun er líka mikilvæg og í raun fjársjóður í reynslubanka skólastarfs. 19.10.2009 06:00
Góður árangur við erfiðar aðstæður Óskar Bergsson skrifar Sex mánaða uppgjör Reykjavíkurborgar birtir tvær mismunandi niðurstöður í efnahagsumhverfi borgarinnar. Annars vegar er það rekstur Reykjavíkurborgar þar sem tekist hefur að ná frábærum árangri við erfiðar aðstæður og hins vegar ytra umhverfi, gengisfall krónunnar og áhrif þess á eiginfjárhlutfall B-hluta fyrirtækjanna. 17.10.2009 06:00
„Græna“ fólkið og skotmörkin Við sem störfum í íslenska orkugeiranum búum í tvískiptri veröld þegar kemur að umræðum um umhverfismál. Á erlendri grundu snýst umhverfisumræðan gjarnan um loftslagsmál jarðar og mikilvægi þess að draga – hnattrænt – úr notkun jarðefnaeldsneytis á borð við olíu og kol. Ræddar eru leiðir til að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa á borð við vatnsafl, vindorku og jarðvarma. 17.10.2009 06:00
Lífsstíll og brjóstakrabbamein Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein hjá konum og geta um 10% kvenna átt von á að fá brjóstakrabbamein einhverntíma á lífsleiðinni. Horfur þessara kvenna er þó betri en við greiningu flestra annarra illkynja sjúkdóma og jafnvel betri en ýmissa hjarta- og lungnasjúkdóma. 17.10.2009 06:00
Forsenda velferðarvarna Þorsteinn Pálsson skrifar Orkunýting og stóriðja eru málefni sem greina menn að í stjórnmálum. Það er ekki nýtt. Deilurnar hafa löngum staðið um tvennt: Annars vegar um hlutfallið milli nýtingar og náttúruverndar. Hins vegar um aðkomu erlendra fjárfesta. 17.10.2009 06:00
Upprætum mansal Mál litháísku konunnar sem hvarf um skeið í vikunni hefur loksins vakið fólk til umhugsunar um eðli og umfang mansals hér á landi. Málið er til marks um alvarleika þess vandamáls sem mansal er og mikilvægi þess að hér sé vandaður og vel skilgreindur viðbúnaður til staðar. 17.10.2009 04:00
Þegar á reynir Anna Stefánsdóttir og Kristján Sturluson skrifar Rauði kross Íslands hefur það hlutverk í almannavörnum landsins að sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi. Sjálfboðaliðar Rauða krossins starfa í 50 deildum sem mynda neyðarvarnanet um allt land og hafa gert sérstakar áætlanir um viðbrögð í kjölfar áfalla. Það gerir Rauða krossinum kleift að bregðast tafarlaust við neyð heima í héraði og á landsvísu. 16.10.2009 06:00
Leynisamningar Landsvirkjunar Jón Steinsson skrifar Á undanförnum árum hafa Landsvirkjun og önnur opinber orkufyrirtæki gert stóra orkusölusamninga til mjög langs tíma við erlend iðnfyrirtæki sem reist hafa álbræðslur hér á landi. Þrátt fyrir að hér sé um eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar að ræða hafa stjórnvöld til þessa komist upp með að upplýsa ekki um verðið sem álbræðslurnar greiða fyrir orkuna. 16.10.2009 06:00
Meirihlutinn vill skutlið áfram Fyrir ári fluttu fulltrúar Samfylkingar og VG í Umhverfis- og samgönguráði tillögu um að hefja þegar vinnu við mótun grænnar samgöngustefnu í hverfum borgarinnar í samvinnu við hverfisráð, frístundaaðila, íbúasamtök og aðra sem málið varðar. Markmiðið var að börn og fullorðnir gætu á öruggan og auðveldan hátt komist á milli staða í hverfinu án þess að nota bíl og áhersla var lögð á að eyða þörfinni fyrir skutl. 16.10.2009 06:00
Skorumst ekki undan Svandís Svavarsdóttir skrifar Frá því á Umhverfisþingi um liðna helgi þar sem ég fjallaði meðal annars um samningsmarkmið Íslands í loftslagsmálum hafa ýmsir 16.10.2009 06:00
Byltingarkynslóðin Valur Gunnarsson skrifar Davíð Þór ritaði um daginn baksíðugrein um hina svokölluðu „krúttkynslóð“. Hún hefur áður verið gagnrýnd af mörgum, af Atla Bollasyni fyrir að vera ekki nógu söluvænleg og af mér fyrir að vera ekki nógu gagnrýnin á sölumennskuna. Það segir síðan ýmislegt um íslenska umræðuhefð að okkur 16.10.2009 06:00
Viðskiptavinir hafa byggt upp Bónus Jóhannes Jónsson skrifar Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með umræðunni um Bónus undanfarna daga. Hver á fætur öðrum koma þeir embættismennirnir og lýsa óánægju sinni með fyrirtækið. Það þurfi að fylgjast með eigendunum. Það þurfi að fylgjast með hvar þeir kaupi inn vöruna. Það þurfi að fylgjast með hvernig þeir verðleggja vöruna. Það þurfi að fylgjast með hver selur hverjum hvað. Það þurfi að fylgjast með hvernig keppinautunum reiðir af í samkeppninni við Bónus og svo framvegis. Óánægjan er alveg að fara með þessa menn. 15.10.2009 06:00
Jarðtengdir stjórnmálamenn óskast Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon skrifar Nú rúmu ári eftir hrunið sjá íslensk fyrirtæki ekki enn til lands. Rekstrarumhverfi þeirra er skelfilegt – endurfjármögnun er í uppnámi, háir vextir gera það fjármagn sem í boði er of dýrt til að réttlæta framkvæmdir, há verðbólga, fallandi eða hrunin eftirspurn, handónýtur gjaldmiðill og svo mætti áfram telja. 15.10.2009 06:00
Með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi Jórunn Frímannsdótti skrifar Borgarfulltrúi Björk Vilhelmsdóttir fer stórum orðum í grein í Fréttablaðinu í gær um að til standi að flytja þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða 300 metra til austurs. Hún gerir samráðsleysi og ákvarðanatöku borgarstjóra að umtalsefni en hefur greinilega gleymt að kynna sér staðreyndir málsins. 15.10.2009 06:00
Embættismaður í pólitík Þorleifur Gunnlaugsson skrifar Það er ekki algengt að embættismenn eða starfsfólk opinberra fyrirtækja blandi sér í stjórnmálaumræðuna. Nú hefur stjórnarformanni Orkuveitunnar, framsóknarmanninum Guðlaugi Sverrissyni tekist að fá forstjóra Orkuveitunnar, Hjörleif Kvaran með sér í pólitískan leiðangur. 15.10.2009 06:00
Opið bréf til heilbrigðisráðherra Ragnhildur Jóhannsdóttir skrifar Mikið hefur verið fundað í Heilbrigðisráðuneytinu um starfsemi Kragasjúkrahúsanna frá því haustið 2008. Til að gera langa sögu stutta ákvað nefnd á vegum Guðlaugs Þ. Þórðarsonar fyrrum heilbrigðisráðherra að loka skurðdeild St. Jósefsspítala Hafnarfirði, flytja átti hluta starfseminnar til Keflavíkur. Mikil mótmæli urðu við þeirri ákvörðun. 15.10.2009 06:00
Er SP-fjármögnun að brjóta samningsskilmála? Þórdís Sigþórsdóttir skrifar SP-fjármögnun (SP) hefur fjármagnað bílakaup fyrir stóran hluta landsmanna síðustu árin. Fyrirtækið er dótturfyrirtæki Landsbankans og tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur bankans þegar neyðarlögin tóku gildi sl. haust. 15.10.2009 06:00
11 milljarðar í ný hjúkrunarheimili Magnús Orri Schram skrifar Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stefna að byggingu nýrra hjúkrunarheimila með 361 rými á árunum 2010 til 2012. Verkefnið kemur á góðum tíma fyrir byggingariðnað á krepputíma og hefur í för með sér verulega breytingu á aðstæðum aldraðra. 15.10.2009 06:00
Árás Bretastjórnar Jón Sigurðsson skrifar Enda þótt ár sé liðið fer því víðs fjarri að áhrifin af tilhæfulausri árás Bretastjórnar á Íslendinga séu farin að minnka. Því fer líka fjarri að upplýst hafi verið til fulls hverjar ástæður Bretastjórn notaði sem yfirskin til þessara aðgerða. Síst af öllu kemur til mála að Íslendingar gleymi þessu tilræði. Þvert á móti eigum við að hafa þetta fólskubragð vel hugfast. 15.10.2009 06:00
Þegar allt breyttist ekki Dr. Gunni skrifar Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. 15.10.2009 06:00