Þegar allt breyttist ekki Dr. Gunni skrifar 15. október 2009 06:00 Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. Maður hélt að allt myndi breytast. Að lífið yrði aldrei aftur eins. Svo gerðist ekki neitt nema helst að það varð ævintýralega mikið vesen að komast í gegnum flugvelli. Á flugvellinum í Las Vegas árið 2002 komu tvær löggur og tóku mig afsíðis eftir ábendingu vænisjúks flugvallargests. Ég gæti náttúrulega alveg eins verið brjálaður hryðjuverkamaður með þennan hökutopp. Löggurnar voru kurteisin uppmáluð og ég auðvitað með allt tandurhreint í mínu pokahorni. Þetta var upplifun mín af stríðinu gegn hryðjuverkum. Sömu „nú breytist allt"-tilfinninguna fékk maður þarna fyrir ári þegar þjóðin vaknaði upp við vondan draum. Ég var með í maganum í viku á meðan Geir Haarde kom daglega flóttalegur til augnanna með nýjustu tíðindi af heimsenda. Ég fékk martraðir um AGS og missti nokkur kíló af áhyggjum. Í sturtunni í Laugum heyrði ég menn helst binda vonir við að annars staðar færi allt til andskotans líka svo við litum ekki út eins og algjörir aumingjar. Ég sá fram á að líf mitt færðist aftur til ársins 1980. Ég vonaði bara að internetinu yrði ekki lokað vegna skulda. Öfugt við í New York blakti hvergi íslenski fáninn hjá okkur. Við klikkuðum á því. Ég hefði auðvitað getað sagt mér það strax að slappa af. Ári síðar er maður í svipuðum sporum, stritandi til að borga reikningana, úti er haustsuddi og það styttist í jólin. Í þessu eins og öðru ræður maður því sjálfur hvort glasið er hálftómt eða hálffullt. Það er helst að maður sakni sígaunanna sem voru alltaf að spila á harmóníkur fyrir framan matvörubúðir í mesta góðærinu. Þeir sjást ekki lengur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun